Saga - 2016, Side 154
Húsmenn og letimagar á lausu gólfi
Þá langar mig að beina umræðunni að húsmönnum og samhengi þeirri við
lausamennina, eða við „letimaga“ á „lausu gólfi“, eins og þeir eru stundum
nefndir í ritinu (bls. 184, 192). Vinnuhjú og lausafólk eru þeir tveir megin-
hópar sem sjónum er beint að í rannsókninni, hópar sem ekki hafi fengið
athygli sem skyldi í sagnfræðirannsóknum. Húsmenn eru hér ekki teknir
fyrir sem hópur, þótt vikið sé að þeim við og við. Þeir eru þó nátengdir þeim
fyrrnefndu en samt að mörgu leyti erfiðari hópur til að festa hönd á. Aginn
var ekki eins mikill, þó svo að lög giltu um húsmenn líka. Þá virðist einnig
lítið bera á góma í dómabókum og því ef til vill erfiðara að festa hendur á
mögulegu andófi þeirra.
en ein leiðin til að forðast vinnumennskuna var samt sem áður að fara í
húsmennsku, ekki bara að fara í lausamennsku. Og menn gátu búið einir
sem húsmenn eða húskonur. Heildarsýn yfir sviðið hefði aukist ef tekið hefði
verið á húsmennsku samhliða lausamennsku. Húsfólk kemur við sögu hér
og þar í ritgerðinni, þótt sá hópur sé ekki tekinn fyrir skipulega á sama hátt
og hinir hóparnir. Hér verða því tekin upp nokkur atriði sem þeim tengjast.
Löggjöfin, allt frá 15. öld fram til 19. aldar, fjallar að öllu jöfnu um þessa
þrjá hópa samhliða: vinnuhjú, húsfólk og lausafólk. Þetta voru þeir mögu-
leikar sem fólk hafði almennt til að starfa og sjá fyrir sér án þess að vera
sjálft búandi. Húsmenn bjuggu við meira sjálfræði en vinnufólk, en lítt er
tekið á því í rannsókninni hver staða þeirra var á 19. öldinni og hvernig þeir
tengjast lausafólki og vinnuhjúum. Löggjöfin á sjöunda áratug 19. aldar
setur þó lög annars vegar um vinnuhjú og hins vegar um lausafólk og hús-
fólk saman. Í þeirri síðarnefndu er sérstaklega tekið fram að nauðsynlegt sé
að hafa þá hópa undir sömu lögum.
Með hliðsjón af því sem að framan var rætt um fyrirhugaðar undanþág-
ur frá vistarbandinu árið 1833,7 þar sem húsmenn voru undanþegnir, er vert
að velta nánar fyrir sér vistarskyldunni. Var það leið út úr vinnu mennsk -
unni að fara í húsmennsku frekar en í lausamennsku? Voru lausamennirnir
ekki lengur lausamenn á 19. öld, eins og vikið var að hér að framan, heldur
raunverulega lausgangarar sem ekki gátu bjargað sér með öðrum hætti en
að hluta til „utan samfélagsins“ og féllu e.t.v. milli laga í félagskerfi 19.
aldar? Húsmenn eða búðarmenn — eða hvaða nöfn sem á þann hóp voru
sett — hafi aftur á móti verið hluti samfélagsins á Íslandi allt frá miðöldum
enda verið í löggjöfinni ásamt hinum hópunum allt frá Píningsdómi á 15.
öld. Í þessu samhengi má spyrja hvernig sjá megi fyrir sér húsfólkið í
tengslum við vinnuhjú og lausafólk á 19. öldinni eins og því er lýst í þessari
rannsókn. Varð breyting á þeirra stöðu á 19. öld miðað við fyrri aldir?
andmæli152
7 Lbs. Lbs. 200. fol. Udkast til en Anordning om Huusmænd, Løsemænd og
Tieneste tyende i Island.
Saga vor 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:09 Page 152