Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Side 24

Víkurfréttir - 16.12.2021, Side 24
JÓLAVERÖLD VAKNAR er nýtt jólalag eftir Gunnar Inga Guðmundsson og Nínu Richter, í flutningi Rakelar Pálsdóttur. Lagið kom út á mið- nætti aðfaranótt 15. nóvember.Texti lagsins fjallar um sigur ljóssins yfir myrkrinu á þessum fallega árstíma og ætti því að geta snert hátíðlega taug í öllum, óháð jólahefðum. Rakel flytjandi lagsins lærði söng við FÍH og tók þátt í söngvakeppni sjón- varpsins 2017 og 2018. Lagið er ljúft og sykursætt en tenórsaxófónleikur Jens Hanssonar úr Sálinni hans Jóns míns rammar tónlistina inn á sjarm- erandi máta sem kallast jafnvel á við vinsælustu ítalsk- og breskættuðu jólasmelli landans frá tíunda ára- tugnum,“ segir í tilkynningu um lagið. Gunnar Ingi Guðmundsson er höfundur lagsins Jólaveröld vaknar, „Lagið var samið í desember 2020 og tók það stóran hluta af þessu ári að fullklára lagið hvað varðar útsetn- ingu og raddsetningu hljóma, auk laglínu. Það hefur reynst mér best að Hér má hlusta á lagið á Spotify og Nínu Richter Nýtt jólalag eftir Gunnar Inga semja bara mjög lítið í einu ég tek kannski 30–40 mínútur á dag og oftast koma bestu hug- myndirnar þá,“ segir Gunnar. „Ég sendi Rakel lítið demo af laginu og var hún strax til í þetta. Upptökur fóru svo fram í sept- ember á þessu ári. Við fórum í stúdíó Bambus til Stefáns Arnar Gunn- laugssonar og tókum upp grunn sem við byggðum ofan á og útkoman er létt jólapopplag. Sigurdór Guð- mundsson hjá Skonrokk studio sá um masteringu,“ sagði Gunnar jafn- framt. Gunnar Ingi Guðmundsson, höf- undur lagsins, lærði bassaleik, píanó- leik og lagasmíðar við tónlistarskóla FÍH og Berklee College of Music í Boston. Hann hefur samið lög fyrir Ragnheiði Gröndal, Sjonna Brink, Skítamóral, Arnar Dór, og fleiri, auk þess sem hann samdi Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja árið 2003 sem flutt var af Skítamóral sem hlaut tölu- verða vinsælda. Nína Richter er textasmiður og kynningarfulltrúi. Hún hefur samið texta fyrir fjölda listamanna, þar á meðal Jóhönnu Guðrúnu, Hönnu Míu, Eyþór Inga og Lay Low, til dæmis smellinn Aftur heim til þín frá árinu 2019, og jólalag Eyþórs Inga, Desemberljóð frá 2011. Gunnar Ingi Guðmundsson Hljóðverið Nína Richter Rakel Pálsdóttir www.airportassociates.com Gleðileg jól og farsælt komandi ár 24 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.