Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 66
Eigin sköpun og útgáfa
Ljósmyndaverkefnin sem Einar
Falur hefur farið í eða tekið að sér
hafa verið stór og tímafrek, tekið um
þrjú, fjögur ár hvert og hafa yfirleitt
endað á bókaútgáfu og sýningum.
„Valgerður Guðmundsdóttir,
menningarfulltrúi Reykjanesbæjar,
bauð mér árið 2006 að halda ljós-
myndasýningu í Listasafni Reykja-
nesbæjar í Duushúsum árið 2007
á Ljósanótt. Ég sótti um starfslaun
listamanna og fékk úthlutað þremur
mánuðum í verkefnið. Ég fékk launa-
laust leyfi frá Mogganum og hætti þá
sem myndstjóri. Einar Falur kallaði
verkefnið Aftur þar sem hugmyndin
var að snúa aftur á heimaslóðirnar
í Keflavík og mynda þær út frá
bernskuminningum.
„Ég skrifaði tökuhandrit og hvað
ég ætlaði að gera, þ.e. finna slóðir
bernsku minnar út frá minningum.
Ég fékk leyfi til að fara inn á gömlu
heimilin mín og mynda gömlu her-
bergin mín, ég leitaði að gömlum
skólafélögum, kennurum og ætt-
ingjum. Ég ákvað að mynda allt
á stóra viðarmyndavél með 4x5
tommu litfilmublöðum en það krefst
hægra og vandaðra vinnubragða þar
sem maður planar allt vel fyrirfram
því það er dýrt að taka hverja ein-
ustu mynd.“
Verkin voru síðan sýnd á Ljósa-
nóttinni 2007 og víðar eftir það,
bæði hérlendis sem erlendis.
Hefur ekki litið um öxl
Einar Falur hefur verið að vinna að
stórum og viðamiklum verkefnum
síðan 2007. Sögustaðir var eitt
þeirra verkefna sem varð að sýningu
á Listahátíð 2010 og veglegri bók.
„Þar vann ég verkefni eftir vatnslita-
myndum sem breski málarinn W.G.
Collingwood gerði árið 1897 í Ís-
landsheimsókn sinni.“ Úr varð mjög
stór sýning sem opnaði í Þjóðminja-
safninu og hefur síðan verið sett upp
víða um lönd, stærsta útgáfan var i
Scandinavia House í New York 2012.
„Síðan gerði ég systurverkefni,
Landsýn, út frá verkum Johannes
Larsen sem var danskur listamaður
sem vann hér tvö sumur á Íslandi
árin 1927 og 1930 og teiknaði yfir
300 myndir sem voru notaðar sem
myndskreytingar í danskri nútíma
útgáfu af Íslendingasögum.“
Þriðja verkefnið sem Einar Falur
gerir út frá látnum listamanni
er verkefni sem hann byrjaði á í
sumar. Verkefni snýst um fyrsta
íslenska ljósmyndarann og einn
af þeim bestu að mati Einars Fals,
Sigfús Eymundsson. „Ég kem til
með að vinna út frá ljósmyndunum
hans, í samvinnu við Þjóðminja-
safnið, og er stefnt að sýningu þar
árið 2024. Núna mun ég vinna að
þessu verkefni í þrjú ár og mynda á
sumrin. Síðan fer ár í að gera bókina
og undirbúa sýninguna. Ég er nörd,
geri handrit og endalausar vinnu-
bækur, plön og skissur,“ bætti Einar
Falur við.
Einar Falur er núna að leggja loka-
hönd á verkefni sem er dagbók yfir
tuttugu mánaða tímabil, „Um tíma“
heitir það. Þar fjalla ég um líf mitt
og fjölskyldunnar og skoða líka minn
menningarsögulega bakgrunn, ber að
vissu leyti hinn einsleita íslenskan
menningarheim saman við stórar
menningarmiðjur á heimsvísu.“
Sýningin opnar 15. janúar 2022 í
einu af virtustu galleríum landsins,
Berg Contemporary og um leið
kemur út bók um verkefnið. „Þar
stilli ég saman mínu eigin lífi og fjöl-
skyldunnar á Íslandi og myndum
m.a. frá elstu borg Indlands, Var-
anasi, þar sem ég hef unnið talsvert á
vinnustofu síðustu ár, og Róm þar
sem er hin gamla kristna miðja ís-
lenskrar menningar og Egyptalandi.
Þarna stilli ég Íslandi á móti þessum
þremur gömlum og mikilvægum
menningarkjörnum.“
Fjölbreytt útgáfa bóka
Einar Falur er ennþá að vinna fyrir
Moggann, er þar yfir menningar-
deildinni en tekur síðan launalaus
leyfi á sumrin til að vinna að eigin
verkefnum. „Þá helli ég mér vel und-
irbúinn í sköpunina og hef verið svo
heppinn að fá listamannalaun í þrjá
eða sex mánuði svona annað hvort
ár. Án slíkra launa væri afar lítil at-
vinnumennska í listum hér á landi.“
Einar Falur hefur á ferðum síðum
erlendis haldið dagbók og gaf út fyrir
nokkrum árum frá sér bókina „Án
vegabréfs“ sem er samansafn skrifa
um ferðir hans víða um heiminn
ásamt myndum, t.d. segir þar af ferð
á norðurpólinn að sækja Harald Örn
pólfara, ferð í silfurnámur í Bólivíu,
þegar hann kynnti sér hátt í mánuð
virkjanaframkvæmdir í Kína, heim-
sótti Íslendingadaginn í Kanada,
páska í Færeyjum, gekk um Inka-
stíginn í Perú – og svo er frásögn um
gríðarmikla trúarhátíð í draumalandi
hans, Indlandi. Einar Falur hefur á
síðustu tuttugu árum átt myndir
og eða textann í ellefu bókum um
áhugamálið sitt, fluguveiði.
Vel skipulagður nörd
„Bakgrunnur minn í bókmenntum
og ljósmyndun hefur áhrif á hvernig
ég vinn og hver afurðin verður úr
verkefnunum. Ég vinn eins og kvik-
myndagerðarmaður og fylgi eftir
tökuhandriti. Ég leggst í nördarann-
sókn fyrir stóru verkefnin. Finn réttu
nálgunina fyrir hvert skot, finn rétta
tóninn – finn minn tón.“
Afraksturinn fyrir Einari Fal þarf
að vera áhugaverð samtíma mynd-
list í þessum geira ljósmyndunar
Úr verkefninu Sögustaðir – Í fótspor W.G. Colingwood. Vatnslitamynd eftir
Collingwood frá 19. júní 1897 og ljósmynd Einars Fals frá 29. júní 2009.
Á Kumbh Mela trúarhátíðinni við Allahabad á Indlandi á helgasta degi hindúa í 144 ár, 24. janúar 2001. Um 30 milljónir manna voru þar saman komnar.
Ég ákvað að
mynda allt á stóra
viðarmyndavél með 4x5
tommu litfilmublöðum
en það krefst hægra og
vandaðra vinnubragða þar
sem maður planar allt vel
fyrirfram ...
Einar Falur með 4x5 tommu plötumyndavélina sem hefur verið hans
aðaltæki í persónuegum verkefnum í meira en áratug.
66 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár