Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 94
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2022. Auglýst var eftir styrkum-
sóknum í október sl. Umsóknir sem bárust voru samtals 52 talsins og hljóðuðu styrkbeiðnir upp
á rúmlega 146 milljónir króna. Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs úthlutar nú 45.000.000 til 30
verkefna.
Skiptingin milli flokka er með
þessum hætti:
Stofn og rekstur fá úthlutað
3.700.000. kr.
Menning og listir fá úthlutað
17.800.000. kr.
Atvinnu- og nýsköpun fær úthlutað
21.500.000. kr.
Menningarverkefnið Ferskir Vindar
er með þriggja ára samning og fær nú
úthlutað þriðja árið af samningnum
eða kr. 2.000.000. kr.
Eftirtalin verkefni hlutu styrk.
Nr. 1. Óskabrunnarnir þrír í Innri
Njarðvík. Umsækjandi: Reykja-
nesbær. Verkefnastjóri: Gunnar
Ellert Geirsson. Flokkur: Stofn og
rekstur.
Verkefnið snýst um að þrír brunnar
munu verða lagfærðir og gerðir að-
gengilegir með göngustígum úr
náttúrugrjóti sem mun falla að út-
liti og hleðslutækni brunnana. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.
1.700.000.
Nr. 2. Verzlun Þorláks Benedikts-
sonar Akurhúsum. Umsækjandi:
Suðurnesjabær verkefnastjóri: Mar-
grét I. Ásgeirsdóttir. Flokkur: Stofn
og rekstur
Verkefnið lýtur að því að gera upp
Verzlun Þorláks Benediktssonar, sem
var í rekstri að Akurhúsum í Garði
frá 1921-1972, og gera aðgengilega
gestum að nýju. Að kynna íbúum og
gestum verzlunar- og atvinnusögu
í Garði og Sandgerði frá fyrri tíð.
Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð
kr. 1.000.000.
Nr. 3. Uppbygging á Bakka - áfram-
haldandi innanhús #3. Umsækj-
andi: Minja- og sögufélag Grinda-
víkur. Verkefnastjóri: Marta Karls-
dóttir. Flokkur: Stofn og rekstur.
Helstu markmið verkefnisins er að
byggja upp innviði Bakka. Koma því
í gott stand svo hægt sé að opna það
sem safn. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð kr. 1.000.000.
Nr. 4. Merking gamalla húsa í Garð-
inum. Umsækjandi og verkefna-
stjóri: Ásgeir Magnús Hjálmarsson.
Flokkur: Menning.
Verkefnið snýst um að varðveita og
skrásetja sögu gamalla húsa í sveitar-
félaginu Garði í Suðurnesjabæ. Mikil-
vægt er að vernda þá sögu og kynna
hana fyrir komandi kynslóðum og
íbúum í sveitarfélaginu ásamt ferða-
mönnum sem heimsækja Garðinn.
Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð
kr.800.000.
Nr. 5. Jazzfjélag Suðurnesjabæjar
– tónleikaröð . Umsækjandi og
verkefnastjóri: Halldór Lárusson.
Flokkur: Menning.
Verkefnið snýst um að efla menn-
ingarlíf í Suðurnesjabæ og á Suður-
nesjum. Styðja við og styrkja íslenskt
tónlistarlíf og tónlistarmenntun á
Suðurnesjum. Skapa vettvang fyrir
ungt og upprennandi tónlistarfólk til
að koma fram sem og reyndara tón-
listarfólk. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð kr. 800.000.
Nr. 6. Kynning á bókmenntaarf-
inum. Umsækjandi: Reykjanesbær.
Verkefnastjóri: Stefanía Gunnars-
dóttir. Flokkur: Menning.
Markmið verkefnisins er að kynna
bókmenntaarfinn, minna á gamla og
góða höfunda og bókmenntaverk,
kynna yngri höfunda og verk þeirra,
leggja áherslu á læsi og mikilvægi
lesturs og auka með því þekkingu al-
mennings á bókmenntum. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð kr. 700.000.
Nr. 7. Safnahelgi á Suðurnesjum.
Umsækjandi: Grindavíkurbær. Verk-
efnastjóri: Eggert Sólberg Jónsson.
Flokkur: Menning.
Markmiðið er fyrst og fremst að
vekja athygli landsmanna á metn-
aðarfullu safna- og menningarstarfi
á Suðurnesjum með því að bjóða
ókeypis aðgang að helstu söfnum og
setrum á svæðinu. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð kr. 3.000.000 í þrjú
ár. Samtals kr. 9.000.000.
Nr. 8. Barnamenning í Reykja-
nesbæ. Umsækjandi: Reykjanesbær.
Verkefnastjóri: Guðlaug María Lewis.
Flokkur: Menning.
Verkefnið lýtur að því að skapa vett-
vang fyrir fjölskyldur á Suðurnesjum
til að njóta listsköpunar barna með
skemmtilegum viðburðum og sýn-
ingarhaldi, þeim að kostnaðarlausu.
Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.
1.000.000.
Nr. 9.Eldgosið í Fagradalsfjalli.
Umsækjandi og verkefnastjóri:
Jón Rúnar Hilmarsson Flokkur:
Menning.
Heimildarmynd um eldgosið í
Fagradalsfjalli frá því að það hófst
og þangað til því lauk. Í myndinni
verður fléttað saman myndefni og
viðtölum við ýmsa aðila. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð kr. 800.000.
Nr. 10. Sálmaskáldið sr.Hallgrímur
Pétursson. Umsækjandi: Margrét
Tómasdóttir. Verkefnastjóri: Dr.
Daníel Ólason. Flokkur: Menning.
Verkefnið snýst um að koma upp
sýningu á Hvalsnesi sem kynni og
segi merka sögu sr. Hallgríms Péturs-
sonar sálmaskálds og Guðríðar Sím-
onardóttur (Tyrkja -Guddu) eigin-
konu hans. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð kr.1.300.000.
Nr. 11. Graffiti veggur. Umsækjandi
og verkefnastjóri: Lína Rut Wilberg.
Flokkur: Menning.
Markmið verkefnis er að byggja
upp ævintýraveröld tengd minni
list. Graffitti veggur er einn liður af
mörgum í því. Verkefnið hlýtur styrk
að fjárhæð kr. 300.000.
Nr. 12. Íslenska Bítlið í Stórsveitar-
stíl. Umsækjandi: Stórsveit Íslands.
Verkefnastjóri: Eggert Björgvinsson.
Flokkur: Menning.
Verkefnið lýtur að því að viðhalda
þeim menningararfi sem við eigum
á Íslandi. Talið er að verkefnið hafi
talsvert menningarlegt gildi. Útsett
verða þekkt lög frá því tímabili sem
oft er kallað Keflvíska Bítlið. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.
1.000.000.
Nr. 13. Suður með sjó. Umsækjandi
og verkefnastjóri: Páll Ketilsson.
Flokkur. Menning.
Með sýningu sjónvarpsþáttanna
Suður með sjó er verið að vekja at-
hygli á fjölbreyttu mannlífi í sinni
víðustu mynd á Suðurnesjum.
Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð
kr. 1.000.000.
Nr. 14. Tónleikaröð í Hvalsnes-
kirkju. Umsækjand og verkefna-
stjóri: Magnea Tómasdóttir. Flokkur:
Menning
Tónleikaröðin, Tónar í Hvalnes-
kirkju, eru tónleikar þar sem fremstu
listamenn klassískrar tónlistar koma
fram. Haldnir verða fimm tónleikar.
Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.
800.000.
Nr. 15. Mozart Requiem. Umsækj-
andi og verkefnastjóri: Jóhann Smári
Sævarsson. Flokkur: Menning .
Norðuróp í samvinnu við Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar og Dans-
Kompaní flytja sálumessu Mozarts.
Mozart Requiem er kórverk fyrir
kór, sinfoníuhljómsveit og fjóra ein-
söngvara, yfirleit flutt í stórri kirkju.
Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð
kr.1.500.000.
Nr. 16. Stelpur filma á landsbyggð-
inni! Umsækjandi og verkefnastjóri:
Inga Margrét Flokkur: Menning.
Stelpur filma á landsbyggðinni er
verkefni þar sem stelpur í 8. og 9.
bekk læra undirstöðuatriði í kvik-
myndagerð, undir tryggri leiðsögn
virtustu handritshöfunda og kvik-
myndagerðakvenna landsins. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.
800.000.
Nr. 17. Vita- sjóslysasýning við
Reykjanesvita. Umsækjandi: Holl-
vinasamtök reykjanesvita og ná-
grennis. Verkefnastjóri: Eiríkur P.
Jörundsson. Flokkur: Menning.
Markmið er að vekja athygli á merkri
sögu Reykjanesvita og sjóslysa sem
voru ástæða þess að viti var reistur
á þessum stað árið 1878 og var fyrsti
viti landsins. Verkefnið hlýtur styrk
að fjárhæð kr.1.000.000.
Nr. 18. Líð ég burt frá landi. Um-
sækjandi og verkefnastjóri: Berta
Dröfn Ómarsdóttir. Flokkur:
Menning.
Tónleikar í Grindavíkurkirkju með
frumsömdum lögum og textum eftir
Kristínu Matthíasdóttur, í útsetningu
Bertu Drafnar. Grindavíkurdætur
sjá um tónlistarflutninginn undir
stjórn Bertu við meðleik Ingunnar
Hildar Hauksdóttur píanóleikara.
Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð
kr. 1.000.000.
Nr. 19. Samstarf Listasafns Reykja-
nesbæjar og Listaháskóla Íslands.
Umsækjandi: Reykjanesbær. Verk-
efnastjóri: Helga Þórsdóttir. Flokkur:
Menning.
Markmið verkefnisins er að kynna
Listasafn Reykjanesbæjar fyrir nýrri
kynslóð sem starfar innan listgreina
á Íslandi. Eins ætti sýning meistara-
nema í sýningagerð að vekja áhuga
meðal almennra sýningargesta bæði
úr nærumhverfi safnsins og af höf-
uðborgarsvæðinu. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð kr. 500.000.
Nr. 20. Óperuballett fyrir börn um
Jólasveinana þrettán - tónsmíð.
Umsækjandi og verkefnastjóri: Al-
exandra Chernyshova. Flokkur:
Menning.
Óperuballett fjallar um íslensku Jóla-
sveinana þrettán, fyrir börn og full-
orðna og verður i tveimur þáttum.
Óperan verður samin fyrir óperu
einsöngvarar, ballett dansarar, kór og
hljómsveit. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð kr. 500.000.
Nr. 21. Grindavíkurskip - tíróinn
áttæringur með grindavíkurlagi.
Umsækjandi: Óskar Sævarsson.
Verkefnastjóri: Ólafur R Sigurðsson.
Flokkur: Menning.
Markmið verkefnisins er að smíða
eftirlíkingu í fullri stærð af áttær-
ingnum Geir úr Staðarhverfi, sem
brann 1993 ásamt þorra bátasafns
Þjóðminjasafnsins. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.
Nr. 22. Möguleikar á nýtingu jarð-
hitakísils frá Reykjanesvirkjun.
Umsækjandi: GeoSilica Iceland
hf. Verkefnastjóri: Burkni Pálsson.
Flokkur: Atvinnu- og nýsköpun .
Markmið verkefnisins er leita tæki-
færum til að skapa frekari verðmæti
úr kísil og jafnvel öðrum efnum í af-
fallsvatninu sem falla til við Reykja-
nesvirkjun í samstarfi við HS Orku.
Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.
2.000.000.
Nr. 23. Saltberg - sælkera sjávar-
saltflögur. Umsækjandi: Saltberg.
Verkefnastjóri: Erla Sigurlaug Sig-
urðardóttir. Flokkur: Atvinnu- og
nýsköpun.
Saltberg ætlar að framleiða um-
hverfisvænar handgerðar sælkera
sjávarflögur úr hreinum bergsíuðum
íslenskum sjó. Verkefnið hlýtur styrk
að fjárhæð kr. 1.500.000.
Nr. 24. 22.10 Brugghús. Umsækj-
andi og verkefnastjóri: Steinþór
Júlíusson. Flokkur: Atvinnu- og ný-
sköpun.
Helstu markmið þessa verkefnis er
að standsetja til fulls handverks-
brugghús og bar. Með því að vera í
samstarfi við aðra aðila í ferðaþjón-
ustu á svæðinu mun verkefnið gera
Grindavík að eftirsóknarverðari stað
til að heimsækja. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð kr. 1.250.000.
Nr. 25. GeoLab - Færanlegar rann-
sóknarstöðvar á Reykjanesinu.
Umsækjandi og verkefnastjóri: Arn-
björn Ólafsson. Flokkur: Atvinnu- og
nýsköpun.
GeoLab mun vinna að gerð og
miðlun handbóka, leiðbeininga og
verkefna til fræðslu og rannsóknar-
starfsemi á Reykjanesinu. Auk þess
sem verkefnið miðar að undirbún-
ingi og hönnun á færanlegum rann-
sóknarstöðvum. Verkefnið hlýtur
styrk að fjárhæð kr. 1.000.000.
Nr. 26. Útrás með Lífsalt úr ís-
lenskri náttúru. Umsækjandi: Arctic
Sea Minerals ehf. Verkefnastjóri:
Egill Þórir Einarsson. Flokkur: At-
vinnu- og nýsköpun.
Verkefnið snýr að hefja útrás með
Lífsalt sem einstaka vöru fram-
leidda úr íslenskum náttúrulegum
hráefnum. Verkefnið hlýtur styrk
að fjárhæð kr. 1.000.000.
Nr. 27. Björgunarnet Stakkur.
Umsækjandi: Sæmundur Heimir
Guðmundsson. Verkefnastjóri: Jón
Helgason. Flokkur: Atvinnu- og ný-
sköpun.
Verkefnið lýtur að öryggi allra þeirra
sem sækja eða vinna við jarðböð
og aðra staði þar sem ekki sést til
botns. Verkefnið mun einfalda leit
og björgun. Verkefnið hlýtur styrk
að fjárhæð kr. 4.000.000.
Nr. 28. Vöruþróun og markaðs-
setning Litla brugghússins. Um-
sækjandi: Litla brugghúsið. Verk-
efnastjóri: Guðjónína Sæmunds-
dóttir. Flokkur: Atvinnu- og ný-
sköpun.
Verkefnið snýr að því að þróa vöru-
línu fyrirtækisins og gera hana heild-
stæða, þróa nýjar vörur, gjafapakn-
ingar og vörur tengdar brugghúsinu.
Einnig markaðssetningaráætlun og
markaðssetja vörur brugghússins.
Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð
kr. 1.250.000.
Nr. 29. Öryggiskrossinn – The Sa-
fety Kross. Umsækjandi: Mannvirki
og malbik ehf. Verkefnastjóri: Sig-
urður Ingi Kristófersson. Flokkur:
Atvinnu- og nýsköpun.
Verkefnið lýtur að þróun Öryggis-
krossins sem er ný tegund merk-
inga til að loka flugbrautum og
akbrautum tímabundið. Varan er
hönnuð og handunnin á Suður-
nesjum. Verkefnið hlýtur styrk að
fjárhæð kr. 4.500.000.
Nr. 30. Mermaid – Geothermal Sea-
weed Spa. Umsækjandi: Mermaid
ehf. Vekefnastjóri: Bogi Jónsson.
Flokkur: Atvinnu- og nýsköpun.
Verkefnið lýtur að þróun á vandaðri
lúxus heilsulind við sjávarsíðuna
þar sem boðið verður upp á sér-
hæfð böð og heilsumeðferðir. Loka-
markmiðið er bygging og rekstur
lúxus heilsulindar og veitingahúss.
Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.
5.000.000.
FJÖrutÍu Og Fimm
milljónir til 30 verkefna
Í byrjun athafnar flutti Alexandra Chernyshova sópransöngkona og tónskáld
brot úr verkum sínum en um undirleik sá Einar Bjartur Egilsson. Alexandra
var jafnframt ein þeirra sem hlaut styrk úr sjóðnum að þessu sinni.
All margir mættu við formlega afhendingu styrkjanna í Stapa.
94 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár