Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 94

Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 94
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2022. Auglýst var eftir styrkum- sóknum í október sl. Umsóknir sem bárust voru samtals 52 talsins og hljóðuðu styrkbeiðnir upp á rúmlega 146 milljónir króna. Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs úthlutar nú 45.000.000 til 30 verkefna. Skiptingin milli flokka er með þessum hætti: Stofn og rekstur fá úthlutað 3.700.000. kr. Menning og listir fá úthlutað 17.800.000. kr. Atvinnu- og nýsköpun fær úthlutað 21.500.000. kr. Menningarverkefnið Ferskir Vindar er með þriggja ára samning og fær nú úthlutað þriðja árið af samningnum eða kr. 2.000.000. kr. Eftirtalin verkefni hlutu styrk. Nr. 1. Óskabrunnarnir þrír í Innri Njarðvík. Umsækjandi: Reykja- nesbær. Verkefnastjóri: Gunnar Ellert Geirsson. Flokkur: Stofn og rekstur. Verkefnið snýst um að þrír brunnar munu verða lagfærðir og gerðir að- gengilegir með göngustígum úr náttúrugrjóti sem mun falla að út- liti og hleðslutækni brunnana. Verk- efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.700.000. Nr. 2. Verzlun Þorláks Benedikts- sonar Akurhúsum. Umsækjandi: Suðurnesjabær verkefnastjóri: Mar- grét I. Ásgeirsdóttir. Flokkur: Stofn og rekstur Verkefnið lýtur að því að gera upp Verzlun Þorláks Benediktssonar, sem var í rekstri að Akurhúsum í Garði frá 1921-1972, og gera aðgengilega gestum að nýju. Að kynna íbúum og gestum verzlunar- og atvinnusögu í Garði og Sandgerði frá fyrri tíð. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000. Nr. 3. Uppbygging á Bakka - áfram- haldandi innanhús #3. Umsækj- andi: Minja- og sögufélag Grinda- víkur. Verkefnastjóri: Marta Karls- dóttir. Flokkur: Stofn og rekstur. Helstu markmið verkefnisins er að byggja upp innviði Bakka. Koma því í gott stand svo hægt sé að opna það sem safn. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000. Nr. 4. Merking gamalla húsa í Garð- inum. Umsækjandi og verkefna- stjóri: Ásgeir Magnús Hjálmarsson. Flokkur: Menning. Verkefnið snýst um að varðveita og skrásetja sögu gamalla húsa í sveitar- félaginu Garði í Suðurnesjabæ. Mikil- vægt er að vernda þá sögu og kynna hana fyrir komandi kynslóðum og íbúum í sveitarfélaginu ásamt ferða- mönnum sem heimsækja Garðinn. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.800.000. Nr. 5. Jazzfjélag Suðurnesjabæjar – tónleikaröð . Umsækjandi og verkefnastjóri: Halldór Lárusson. Flokkur: Menning. Verkefnið snýst um að efla menn- ingarlíf í Suðurnesjabæ og á Suður- nesjum. Styðja við og styrkja íslenskt tónlistarlíf og tónlistarmenntun á Suðurnesjum. Skapa vettvang fyrir ungt og upprennandi tónlistarfólk til að koma fram sem og reyndara tón- listarfólk. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 800.000. Nr. 6. Kynning á bókmenntaarf- inum. Umsækjandi: Reykjanesbær. Verkefnastjóri: Stefanía Gunnars- dóttir. Flokkur: Menning. Markmið verkefnisins er að kynna bókmenntaarfinn, minna á gamla og góða höfunda og bókmenntaverk, kynna yngri höfunda og verk þeirra, leggja áherslu á læsi og mikilvægi lesturs og auka með því þekkingu al- mennings á bókmenntum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 700.000. Nr. 7. Safnahelgi á Suðurnesjum. Umsækjandi: Grindavíkurbær. Verk- efnastjóri: Eggert Sólberg Jónsson. Flokkur: Menning. Markmiðið er fyrst og fremst að vekja athygli landsmanna á metn- aðarfullu safna- og menningarstarfi á Suðurnesjum með því að bjóða ókeypis aðgang að helstu söfnum og setrum á svæðinu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 3.000.000 í þrjú ár. Samtals kr. 9.000.000. Nr. 8. Barnamenning í Reykja- nesbæ. Umsækjandi: Reykjanesbær. Verkefnastjóri: Guðlaug María Lewis. Flokkur: Menning. Verkefnið lýtur að því að skapa vett- vang fyrir fjölskyldur á Suðurnesjum til að njóta listsköpunar barna með skemmtilegum viðburðum og sýn- ingarhaldi, þeim að kostnaðarlausu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000. Nr. 9.Eldgosið í Fagradalsfjalli. Umsækjandi og verkefnastjóri: Jón Rúnar Hilmarsson Flokkur: Menning. Heimildarmynd um eldgosið í Fagradalsfjalli frá því að það hófst og þangað til því lauk. Í myndinni verður fléttað saman myndefni og viðtölum við ýmsa aðila. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 800.000. Nr. 10. Sálmaskáldið sr.Hallgrímur Pétursson. Umsækjandi: Margrét Tómasdóttir. Verkefnastjóri: Dr. Daníel Ólason. Flokkur: Menning. Verkefnið snýst um að koma upp sýningu á Hvalsnesi sem kynni og segi merka sögu sr. Hallgríms Péturs- sonar sálmaskálds og Guðríðar Sím- onardóttur (Tyrkja -Guddu) eigin- konu hans. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.1.300.000. Nr. 11. Graffiti veggur. Umsækjandi og verkefnastjóri: Lína Rut Wilberg. Flokkur: Menning. Markmið verkefnis er að byggja upp ævintýraveröld tengd minni list. Graffitti veggur er einn liður af mörgum í því. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 300.000. Nr. 12. Íslenska Bítlið í Stórsveitar- stíl. Umsækjandi: Stórsveit Íslands. Verkefnastjóri: Eggert Björgvinsson. Flokkur: Menning. Verkefnið lýtur að því að viðhalda þeim menningararfi sem við eigum á Íslandi. Talið er að verkefnið hafi talsvert menningarlegt gildi. Útsett verða þekkt lög frá því tímabili sem oft er kallað Keflvíska Bítlið. Verk- efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000. Nr. 13. Suður með sjó. Umsækjandi og verkefnastjóri: Páll Ketilsson. Flokkur. Menning. Með sýningu sjónvarpsþáttanna Suður með sjó er verið að vekja at- hygli á fjölbreyttu mannlífi í sinni víðustu mynd á Suðurnesjum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000. Nr. 14. Tónleikaröð í Hvalsnes- kirkju. Umsækjand og verkefna- stjóri: Magnea Tómasdóttir. Flokkur: Menning Tónleikaröðin, Tónar í Hvalnes- kirkju, eru tónleikar þar sem fremstu listamenn klassískrar tónlistar koma fram. Haldnir verða fimm tónleikar. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 800.000. Nr. 15. Mozart Requiem. Umsækj- andi og verkefnastjóri: Jóhann Smári Sævarsson. Flokkur: Menning . Norðuróp í samvinnu við Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar og Dans- Kompaní flytja sálumessu Mozarts. Mozart Requiem er kórverk fyrir kór, sinfoníuhljómsveit og fjóra ein- söngvara, yfirleit flutt í stórri kirkju. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.1.500.000. Nr. 16. Stelpur filma á landsbyggð- inni! Umsækjandi og verkefnastjóri: Inga Margrét Flokkur: Menning. Stelpur filma á landsbyggðinni er verkefni þar sem stelpur í 8. og 9. bekk læra undirstöðuatriði í kvik- myndagerð, undir tryggri leiðsögn virtustu handritshöfunda og kvik- myndagerðakvenna landsins. Verk- efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 800.000. Nr. 17. Vita- sjóslysasýning við Reykjanesvita. Umsækjandi: Holl- vinasamtök reykjanesvita og ná- grennis. Verkefnastjóri: Eiríkur P. Jörundsson. Flokkur: Menning. Markmið er að vekja athygli á merkri sögu Reykjanesvita og sjóslysa sem voru ástæða þess að viti var reistur á þessum stað árið 1878 og var fyrsti viti landsins. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr.1.000.000. Nr. 18. Líð ég burt frá landi. Um- sækjandi og verkefnastjóri: Berta Dröfn Ómarsdóttir. Flokkur: Menning. Tónleikar í Grindavíkurkirkju með frumsömdum lögum og textum eftir Kristínu Matthíasdóttur, í útsetningu Bertu Drafnar. Grindavíkurdætur sjá um tónlistarflutninginn undir stjórn Bertu við meðleik Ingunnar Hildar Hauksdóttur píanóleikara. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000. Nr. 19. Samstarf Listasafns Reykja- nesbæjar og Listaháskóla Íslands. Umsækjandi: Reykjanesbær. Verk- efnastjóri: Helga Þórsdóttir. Flokkur: Menning. Markmið verkefnisins er að kynna Listasafn Reykjanesbæjar fyrir nýrri kynslóð sem starfar innan listgreina á Íslandi. Eins ætti sýning meistara- nema í sýningagerð að vekja áhuga meðal almennra sýningargesta bæði úr nærumhverfi safnsins og af höf- uðborgarsvæðinu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 500.000. Nr. 20. Óperuballett fyrir börn um Jólasveinana þrettán - tónsmíð. Umsækjandi og verkefnastjóri: Al- exandra Chernyshova. Flokkur: Menning. Óperuballett fjallar um íslensku Jóla- sveinana þrettán, fyrir börn og full- orðna og verður i tveimur þáttum. Óperan verður samin fyrir óperu einsöngvarar, ballett dansarar, kór og hljómsveit. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 500.000. Nr. 21. Grindavíkurskip - tíróinn áttæringur með grindavíkurlagi. Umsækjandi: Óskar Sævarsson. Verkefnastjóri: Ólafur R Sigurðsson. Flokkur: Menning. Markmið verkefnisins er að smíða eftirlíkingu í fullri stærð af áttær- ingnum Geir úr Staðarhverfi, sem brann 1993 ásamt þorra bátasafns Þjóðminjasafnsins. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000. Nr. 22. Möguleikar á nýtingu jarð- hitakísils frá Reykjanesvirkjun. Umsækjandi: GeoSilica Iceland hf. Verkefnastjóri: Burkni Pálsson. Flokkur: Atvinnu- og nýsköpun . Markmið verkefnisins er leita tæki- færum til að skapa frekari verðmæti úr kísil og jafnvel öðrum efnum í af- fallsvatninu sem falla til við Reykja- nesvirkjun í samstarfi við HS Orku. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2.000.000. Nr. 23. Saltberg - sælkera sjávar- saltflögur. Umsækjandi: Saltberg. Verkefnastjóri: Erla Sigurlaug Sig- urðardóttir. Flokkur: Atvinnu- og nýsköpun. Saltberg ætlar að framleiða um- hverfisvænar handgerðar sælkera sjávarflögur úr hreinum bergsíuðum íslenskum sjó. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.500.000. Nr. 24. 22.10 Brugghús. Umsækj- andi og verkefnastjóri: Steinþór Júlíusson. Flokkur: Atvinnu- og ný- sköpun. Helstu markmið þessa verkefnis er að standsetja til fulls handverks- brugghús og bar. Með því að vera í samstarfi við aðra aðila í ferðaþjón- ustu á svæðinu mun verkefnið gera Grindavík að eftirsóknarverðari stað til að heimsækja. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.250.000. Nr. 25. GeoLab - Færanlegar rann- sóknarstöðvar á Reykjanesinu. Umsækjandi og verkefnastjóri: Arn- björn Ólafsson. Flokkur: Atvinnu- og nýsköpun. GeoLab mun vinna að gerð og miðlun handbóka, leiðbeininga og verkefna til fræðslu og rannsóknar- starfsemi á Reykjanesinu. Auk þess sem verkefnið miðar að undirbún- ingi og hönnun á færanlegum rann- sóknarstöðvum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000. Nr. 26. Útrás með Lífsalt úr ís- lenskri náttúru. Umsækjandi: Arctic Sea Minerals ehf. Verkefnastjóri: Egill Þórir Einarsson. Flokkur: At- vinnu- og nýsköpun. Verkefnið snýr að hefja útrás með Lífsalt sem einstaka vöru fram- leidda úr íslenskum náttúrulegum hráefnum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.000.000. Nr. 27. Björgunarnet Stakkur. Umsækjandi: Sæmundur Heimir Guðmundsson. Verkefnastjóri: Jón Helgason. Flokkur: Atvinnu- og ný- sköpun. Verkefnið lýtur að öryggi allra þeirra sem sækja eða vinna við jarðböð og aðra staði þar sem ekki sést til botns. Verkefnið mun einfalda leit og björgun. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 4.000.000. Nr. 28. Vöruþróun og markaðs- setning Litla brugghússins. Um- sækjandi: Litla brugghúsið. Verk- efnastjóri: Guðjónína Sæmunds- dóttir. Flokkur: Atvinnu- og ný- sköpun. Verkefnið snýr að því að þróa vöru- línu fyrirtækisins og gera hana heild- stæða, þróa nýjar vörur, gjafapakn- ingar og vörur tengdar brugghúsinu. Einnig markaðssetningaráætlun og markaðssetja vörur brugghússins. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1.250.000. Nr. 29. Öryggiskrossinn – The Sa- fety Kross. Umsækjandi: Mannvirki og malbik ehf. Verkefnastjóri: Sig- urður Ingi Kristófersson. Flokkur: Atvinnu- og nýsköpun. Verkefnið lýtur að þróun Öryggis- krossins sem er ný tegund merk- inga til að loka flugbrautum og akbrautum tímabundið. Varan er hönnuð og handunnin á Suður- nesjum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 4.500.000. Nr. 30. Mermaid – Geothermal Sea- weed Spa. Umsækjandi: Mermaid ehf. Vekefnastjóri: Bogi Jónsson. Flokkur: Atvinnu- og nýsköpun. Verkefnið lýtur að þróun á vandaðri lúxus heilsulind við sjávarsíðuna þar sem boðið verður upp á sér- hæfð böð og heilsumeðferðir. Loka- markmiðið er bygging og rekstur lúxus heilsulindar og veitingahúss. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 5.000.000. FJÖrutÍu Og Fimm milljónir til 30 verkefna Í byrjun athafnar flutti Alexandra Chernyshova sópransöngkona og tónskáld brot úr verkum sínum en um undirleik sá Einar Bjartur Egilsson. Alexandra var jafnframt ein þeirra sem hlaut styrk úr sjóðnum að þessu sinni. All margir mættu við formlega afhendingu styrkjanna í Stapa. 94 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.