Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 79

Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 79
Katarzyna Þóra Matysek er frá Póllandi og starfar sem kennari í Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Hún á mann og þrjú börn sem eru tveggja og hálfs árs, níu ára og þrettán ára. Börnin elska íslensku jóla- sveinana þrettán og fjölskyldan reynir að blanda saman menningu og taka allt það sem er frábært í bæði íslenskri og pólskri jólamenningu. Hvernig hagar þú jólagjafainn- kaupum? Ég reyni að nýta tækifæri þegar ég er í Póllandi og ég kaupi eitthvað sem er ekki hægt að kaupa á Íslandi, til dæmis pólskar bækur, pólsk borðspil eða eitthvað annað. Það er gaman að finna eitthvað sérstakt. Flestir gera þetta ef þau fara til útlanda og sjá eitthvað skemmtilegt, það er eðli- legt. Ég byrja frekar seint að versla gjafir og ég hugsa ekki um þetta fyrr en í október. Á Íslandi kaupi ég alltaf lopa- peysur, sokka, útiföt og íslenskar bækur ef það er á jólalistanum. Ég panta frekar á netinu bæði hér og úti. Mér finnst ekki gaman að fara í búðir þegar mikið af fólki er út um allt. Ég er ekki IKEA eða „moll“ manneskjan. Ég fer frekar í des- ember í smá bíltúra og göngutúra til að skoða öll jólaljósin og allt jóla- skrautið. Ef ég þarf að kaupa auka gjafir fer ég stundum að versla í Kringlunni en ekki mikið. Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár? Skreytir þú heimilið mikið? Fjölskyldan mín hefur oft sett skreytingar upp í desember en núna á þessu ári fannst mér gott að hafa kósý og meiri birtu í lok nóvember. Við erum búin að hengja upp jóla- seríur en við ætlum að gera meira rétt fyrir jólin þegar allir eru komnir í frí. Við viljum ekki hafa of mikið dót heima og það á einnig við um jólaskraut. Okkur finnst smekklegra að hafa ekki of mikið. Við perlum, teiknum snjókorn, jólasveina, jóla- kúlur til að hengja upp heima hjá okkur. Þetta er heimagert skraut. Jólatréð er aðalskrautið á heimilinu okkar og að skreyta tréð er mikil- vægast fyrir okkur. Jólatré er alltaf sett upp rétt fyrir 24. desember. Bakarðu fyrir jólin? Áttu þér uppá- haldssmáköku? Við bökum alltaf piparkökur. Þetta er fjölskylduhefðin okkar og það er alltaf gaman hjá okkur á þessari stundu. Krakkarnir mínir mála og skreyta smákökur en við bíðum þangað til amma barnanna kemur frá Póllandi. Sama með jólatréð (við bíðum eftir henni). Amma hefur ekki mörg tækifæri til að vera með okkur daglega svo jólaundir- búningur er okkar besti tími fyrir samveru. Við syngjum og hlustum á jólalög á pólsku og það er góð stund. Við borðum ekki kjöt á aðfangadag, heldur fisk, salat, pierogi, síld, súpu og eitthvað sætt. Á jóladag eða Gamlárskvöld eldum við oft eitthvað séríslenskt eins og til dæmis lamba- læri, hamborgarhrygg og kartöflur. Hvernig er aðventan - hefðir þar? Við tökum þátt í öllum atburðum sem eru í boði í leik- og grunnskóla barnanna fyrir jólin, einnig jólatón- leikum þar sem börnin okkar stunda nám í tónlistarskóla. Því miður truflar Covid sumt af þessu, eins og til dæmis áttum við núna að fara á leikhússýningu en henni var frestað. Það sem er jákvætt í þessum Covid tíma finnst mér rólegir dagar sem gefa okkur möguleiki á að njóta að samveru heima með fjölskyldu að elda, baka, föndra, spila og fara út ef veður leyfir það Hveru eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Áttu skemmtilega jóla- minningu? Ég man eftir jólum þar sem fjöl- skyldan mín var alltaf saman og eftir matinn á aðfangadag áttu öll börn að fara út t.d. með afa og bíða þangað til fyrsta stjarna sást á himninum. Þetta var gert til að fanga athygli barnanna á meðan foreldrar settu jólagjafir undir jólatréð. Þetta var mjög skemmtilegt. Eftirminnilegasta jólagjöfin? Ég sem barn fékk leikföng, föt og bækur sem jólagjafir en ég man ekki eftir neinu sérstöku, jú kannski eina Barbie dúkku. Núna langar mig að fá góðar bækur og góða íþróttaúlpu í jólagjöf til að geta farið út að hlaupa í vondu veðri. Syngjum og hlustum á jólalög á pólsku og það er góð stund K A T A R Z Y N A Þ Ó R A M A T Y S E K Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 79 Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða! Óðinsvöllum 11 • 230 Keflavík • Kt. 450986-1949 • VSK.nr. 9109 Banki: Íslandsbanki 0542-26-82 Borg Gistiheimili Leikskólinn Völlur 79
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.