Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 89

Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 89
HEYRNARÞJÓNUSTA Hlíðasmára 19, 201 Kópavogur - Sími 534 9600 - www.heyrn.is Kæru Suðurnesjamenn Óskum ykkar gleðilegra jóla og farsæls k andi árs. Heyrumst á nýja árinu. Nýtt!vefverslun.heyrn.is Sundmaðurinn Már Gunnarsson var útnefndur íþróttamaður ársins 2021 hjá Íþróttasambandi fatlaðra í síðustu viku ásamt Róberti Ísak Jónssyni úr Firði/SH. Þetta er í annað sinn sem þeir Már og Róbert hljóta nafnbótina en Már var fyrst valinn íþróttamaður ársins árið 2019 og Róbert Ísak árið 2017. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Íþróttasambands fatlaðra sem tveir íþróttamenn hljóta nafnbótina en að baki ákvörðuninni er sú stað- reynd að báðir áttu þeir magnað afreksár „... og eftir mikla umhugsun ákvað stjórn ÍF að ekki væri hægt að gera upp á milli þessara tveggja öflugu sundmanna,“ segir í tilkynningu um valið. Er ekki svolítið skrítið að deila titlinum með öðrum? „Jú og nei, ég meina þetta hefur aldrei verið gert áður en síðan er þetta bara bikar. Árið búið að vera sérstakt og aðdragandinn að þessum Ólympíuleikum var erfiður – að æfa í eitt og hálft ár fyrir eitthvað sem maður vissi ekki hvort yrði var krefjandi. Á síðasta ári var ég farinn að sýna veruleg einkenni kulnunar en ég dröslaði mér í gegnum erfiðar æfingar og er ánægður í dag að hafa klárað þetta. Ég var margoft nærri að gefast upp á þessu en hef klárlega marga góða á bak við mig sem styðja mig og hvetja áfram þegar á þarf að halda,“ segir þessi magnaði íþrótta- maður sem setti þrettán Íslandsmet, bætti 30 ára gamalt heimsmet í bak- sundi og hafnaði í fimmta sæti á Ólympíuleikunum þar sem vantaði aðeins sekúndu upp á að ná gullverð- laununum. „Svo er margt frábært sem er búið að gerast á árinu; heimsmetið í 200 metra baksundi í apríl og margt skemmtilegt búið að gerast í músík- inni líka – og auðvitað var bara æðis- legt að fara til Tókýó. Þetta er búið að vera mjög sérstakt ár, sérstak- lega fyrri hluti þess. Þá var margt að gerast í kringum mig, ungur frændi minn kvaddi okkur og sömuleiðis vinur minn sem lést úr krabbameini. Það er búið að vera allskonar „Ups and Downs“ á þessu ári.“ Gefandi tímar Eftir Ólympíuleikana segir Már geggjaðslega gefandi tíma hafa komið en hann byrjaði m.a. í nýjum tónlistarskóla í Reykjavík. „Ég byrjaði í MÍT, þetta er menntaskóli í tónlist sem er frekar fyndið þar sem ég er stúdent. Þeir kunnu ekki að finna betra nafn á þetta,“ segir Már og hlær sem hefur einnig verið að vekja eftirtekt fyrir fyrirlestra sína í skólum landsins sem hann vonast til að gera meira af á nýju ári. Um hvað snúast fyrirlestrarnir þínir? „Ég reyni alltaf að koma ekki fram eins og einhver blindur, duglegur strákur heldur strákur sem lætur drauma sína rætast en það vill svo að til að hann er blindur. Ég segi í raun bara frá mér og því sem ég hef verið að gera, segi mína sögu. Gef krökkunum tækifæri til að kynnast mér og því hver ég er. Við- tökurnar hafa verið stórkostlegar og ég hef verið að fá skilaboð frá krökkum út um allt land sem hafa heyrt um fyrirlestrana mína og eru að biðja mig um að koma í þeirra skóla líka, bara ótrúlega krúttlegt. Sömuleiðis hafa nemendur verið að senda mér skilaboð eftir fyrirlestra og þakka mér fyrir komuna.“ Fyrir hvaða aldur ertu að halda þessa fyrirlestra? „Ég hef verið að hitta allan aldur, allt frá fyrsta bekk upp í háskóla – en þetta eru mest grunnskólakrakkar.“ Hefur í nógu að snúast Már segist ekkert synt frá því um miðjan september en hann hefur þess í stað verið duglegur í ræktinni þar sem hann vinnur í að styrkja sig. „Svo kemur það bara í ljós á næsta ári hvort ég setji stefnuna á París og ef ég geri það mun ég koma til baka sterkari en nokkurn tíma, líkamlega og andlega,“ segir hann og heldur áfram: „Þetta Covid-tímabil hefur sett stórt strik í reikninginn hjá manni því íþróttir snúast um mark- miðasetningar og það er ekki hægt að setja sér markmið fyrir eitthvað sem þú veist svo ekki hvort nokkurn verði.“ Már hefur ætíð nóg fyrir stafni, hann einbeitti sér að sundinu fram að Ólympíuleikum en þrátt fyrir það hefur hann gefið sér tíma til að sinna tónlistarferlinum, náminu og svo heldur hann fyrirlestra vítt og breitt um landið. Már segir að þessa dagana sé mikið að gera í tónlistinni, hann sé mikið bókaður í allskonar viðburði og er m.a. nýkominn frá Póllandi þar sem hann kom fram á tónleikum – en eigum við von á einhverju stórtón- leikum á næstunni? „Klárlega er eitthvað framundan – en ekkert sem er alveg ákveðið,“ segir Már og gefur ekkert frekar upp um hvað sé næst á dagskrá hjá sér en hvað sem það er sem hann tekur sér fyrir hendur verður spennandi að fylgjast með. Hvenær sefur þú eiginlega? „Stundum næ ég að fara snemma í rúmið eða mjög seint, það er mjög mismunandi. Ég reyni samt að hafa einhverja reglu á þessu,“ segir þessi dugnaðarforkur, sem vill svo til að er blindur, að lokum. Viðtökurnar hafa verið stórkostlegar og ég hef verið að fá skilaboð frá krökkum út um allt land sem hafa heyrt um fyrirlestrana mína og eru að biðja mig um að koma í þeirra skóla líka, bara ótrúlega krúttlegt ... Már annar tveggja íþróttamanna ársins 2021: Var farinn að sýna einkenni kulnunar Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Már og Róbert ásamt frjálsíþróttakonunni Bergrúnu Ósk Aðalsteinsdóttur sem var valin íþróttakona ársins 2021 en hún keppir með FH. Þetta er fjórða árið í röð sem hin 21 árs gamla Bergrún Ósk hlýtur nafnbótina og er aðeins önnur íslenskra kvenna til þess að verða valin fjögur ár í röð. VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.