Víkurfréttir - 16.12.2021, Side 18
JÓLIN Í GRINDAVÍK
EÐA AMERÍKU
Erla Ósk Pétursdóttir framkvæmdastjóri Marine Collagen ehf. er sælkeri í Grindavík sem bakar fyrir
hver jól. Hún hefur fagnað jólum á Íslandi, í Bandaríkjunum, Japan og víðar. Hún skreytir passlega
mikið, strax eftir þakkargjörðarhátíð og sækir jólatónleika og Baggalútur kemur henni í jólaskap.
Hún segir Covid ekki þvælast fyrir sér í undirbúningi jólanna og hlakkar til yndislegra tíma. Hér
koma jólasvörin frá Erlu.
Hvernig hagar þú jólagjafainn-
kaupum?
Ég reyni að kaupa sem mest á
netinu, það er svo miklu einfaldara
og fljótlegra. Og þá er hægt að
nýta aðventuna í að njóta með fjöl-
skyldunni. Jólagjafakaupin í ár voru
reyndar að mestu gerð í mæðgna-
ferð í Dublin um miðjan nóvember,
sem var mjög skemmtilegt líka enda
mesta áherslan á samveru og notar-
legheit.
Hvað með jólaskreytingar, eru þær
fyrr í ár?
Ég skreyti yfirleitt nokkuð snemma
eða í lok nóvember. Reyni að koma
sem mestu upp strax eftir þakkar-
gjörðarhátíðina, en á mínu heimili
er alveg bannað að skreyta fyrr en
hún er búin.
Skreytir þú heimilið mikið?
Ég skreyti svona passlega mikið.
Það blundar í mér Clark Griswald en
hann hefur ekki enn náð að brjóta
sér almennilega leið í gegn. Jólatréð
setjum við samt strax upp, enda
viljum við njóta þess alla aðventuna.
Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá
helst? Áttu þér uppáhaldssmá-
köku?
Ég baka alltaf eitthvað, já, en ég reyni
að baka ekki of mikið þar sem ég er
mesti sælkerinn á heimilinu og enda
oftast á því að borða mest allt sjálf.
Súkkulaðidropa-smákökurnar frá
ömmu Erlu eru í miklu uppáhaldi
sem og lagtertan góða. Einnig finnst
mér sörur æðislegar en hef ekki lagt
í að baka þær sjálf.
Eru fastar jólahefðir hjá þér?
Þar sem maðurinn minn er frá
Bandaríkjunum, þá höldum við
upp á jólin á ólíkan hátt eftir því á
hvorum staðnum við erum. Þegar
við erum á Íslandi fögnum við á að-
fangadag og þegar við erum í Banda-
ríkjunum fögnum við á jóladag. En
á báðum stöðum förum við alltaf í
messu, borðum góðan mat og njótum
samveru með stórfjölskyldunum.
Fyrir jólin er ómissandi hefð að
keyra út jólakortunum í Grindavík,
og um áramótin er fögnuðurinn í
Efstahrauninu alveg til að toppa há-
tíðina.
Hvernig er aðventan - hefðir þar?
Jólatónleikar og kósýkvöld að horfa
á jólamyndir eru ómissandi á að-
ventunni hjá mér. Mér finnst kór-
tónleikar sérstaklega hátíðlegir og ég
fer á jólatónleika með mismunandi
kórum á hverju ári. Einnig hef ég
síðustu ár farið á jólatónleika Bagga-
lúts í góðra vina hópi og þar fæ ég
alltaf jólaandann yfir mig.
Fyrir mitt leyti er Covid ekkert að
þvælast fyrir undirbúningi jólanna.
Mér finnst allt í lagi að geta ekki
verið út um allt, enda mikilvægt að
staldra við og slaka á á aðventunni.
Og ef við Grindavíkurdætur náum
að feta okkur í takmörkununum og
halda jólatónleikana okkar, þá verður
aðventan fullkomnuð.
Hver eru fyrstu jólin sem þú manst
eftir? Áttu skemmtilega jólaminn-
ingu?
Fyrstu jólin sem ég man eftir voru
þegar við bjuggum í Englandi þegar
ég var 6 ára. Sérstaklega man ég
eftir að skoða Argos bæklinginn
og merkja við allt sem mig langaði
í. Ég hef upplifað jólin á nokkrum
stöðum en jólin í Japan og á Havaí
standa upp úr sem skemmtilegustu
jólaminningarnar. Við fórum með
tengdafjölskyldu minni til Okinawa
í Japan árið 2014 og með minni fjöl-
skyldu til nokkurra eyja á Havaí árið
2018. Samvera og notalegheit ein-
kenndu þessar hátíðir en fegurðin
á þessum eyjum skemmdi heldur
ekkert fyrir.
Hefurðu sótt messu um jólahátíð-
irnar í gegnum tíðina?
Já, ég hef alltaf farið í messu nema
eitt árið þegar tveir yngstu synir
mínir (sem þá voru 2 mánaða og 2
ára) voru báðir veikir. En aðfanga-
dagskvöld var samt sem áður yndis-
legt, þar sem við hlustuðum bara
á messuna og borðuðum svo bara
þegar öllum leið vel. Þessi sama
jólahátíð var reyndar ansi skrautleg
því strax eftir veikindin um jólin þá
kom ælupest og njálgur og á þret-
tándanum þá brotnaði helluborðið
hjá okkur. Þetta voru ansi eftir-
minnileg jól.
Eftirminnilegasta jólagjöfin?
Ég man eftir mörgum frábærum
jólagjöfum: Skíðin frá mömmu og
pabba í denn, úrið frá manninum
mínum (sem þá var kærasti minn) og
mynda- og minningabók frá yndis-
legri vinkonu.
Er eitthvað sérstakt sem þig langar
að fá í jólagjöf?
Nýja bókin frá Brené Brown, Atlas
of the Heart.
Hvað verður í jólamatinn hjá þér
á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í
mat?
Það er ekki alveg ákveðið en lík-
legast Wellington nautalund. Mað-
urinn minn eldar eiginlega alltaf og
ég gef honum alveg frjálsar hendur,
enda allt svo gott sem hann eldar.
Þegar við erum í Bandaríkjunum þá
er yfirleitt lasagna á aðfangadags-
kvöld og heljarinnar matarveisla á
jóladag
Jólin hafa verið haldin
víða um heiminn.
Hér er fjölskyldan
jólin 2018 á Havaí.
Jólastuð í Dublin 2021.
Fjölskyldan með jólasveininum fyrir nokkrum árum.
Mikið úrval af gjafavörum,
púslum og spilum
Krossmóa 4, 230 Keflavík
Hátíðaropnun
15.12 9-18
16.12 9-18
17.12 9-18
18.12 11-18
19.12 13-18
20.12 9-22
21.12 9-22
22.12 9-22
23.12 9-23
24.12 9-13
18 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár