Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 61
Lá við hjónaskilnaði
„Þegar ég datt í það að búa til hring
úr silfurskeið fór ég að leita hér
heima, fann box og tók einn hring
sem ég sagaði í sundur. Helga var að
fljúga og ég sýndi henni þetta stoltur.
„Sjáðu hvað þetta er flott, hvað þetta
er fallegur hringur,“ segi ég. „Þetta
er Renaissance (endurreisnartíma-
bilið).“
„Rosalega er þetta fallegur
hringur,“ segir hún og heldur áfram:
„Bíddu, ég kannast eitthvað við
munstrið.“
„Svo fór hún að gramsa í skúffunni
hjá sér, sá að það vantaði eina skeið
og fann eina sundurskorna hjá mér.
Hún kom nánast með tárin í aug-
unum og sagði: „Sagaðir þú í sundur
... eyðilagðir þú skeiðina mína?“ Þá
var þetta brúðargjöf sem hún hafði
fengið en ég bjargaði hjónabandinu
með því að kaupa nýja, samskonar
skeið,“ segir Óskar kíminn á svip.
Enginn hringur eins
Handverk Óskars er mjög fallegt
og hann vandar til verka við skart-
gripasmíðina. „Þetta er nákvæmnis-
verk og það þarf að hugsa vel út í
það sem maður gerir. Þegar ég geri
hringa úr silfurskeiðum þá kveiki ég
þær saman til að gera hring. Margir
snúa þær bara og þá verða þær ekki
hringar heldur svona vafningar en
ég geri það ekki. Vandinn er að gló-
hita þetta saman án þess að skemma
munstrið,“ segir Óskar og sýnir mér
fallegan hring sem hann hefur gert
úr silfurskeið með Reykjavíkur-
munstrinu. Samskeitin eru hvergi
sjáanleg og það er ekki að sjá að
hringurinn hafi nokkurn tímann
verið skeið. „Vigdís Hauksdóttir,
borgarfulltrúi, átti ekki til orð þegar
hún sá þetta hjá mér. Hún gengur
með þetta flesta daga og bar þetta
t.d. í kvöldverðarboði í Höfða þar
sem allir borgarfullltrúar voru saman
komnir. Þá var hún með hálsmen
og hring sem ég bjó til með þessu
munstri en í Höfða borða allir með
silfurborðbúnaði sem er skreyttur
með þessu Reykjavíkurmunstri.
Þetta er öndvegissúla Ingólfs Arnar-
sonar.“
Er kominn á eftirlaun
Óskar er kominn á eftirlaun og
hættur að vinna en aðgerðarleysi fer
honum ekki vel. „Ég gæti ekki verið
að gera ekki neitt. Hvað á maður að
fara að gera þegar maður er búinn að
vinna alla sína ævi? Á maður bara
að setjast fyrir framan sjónvarpið og
bíða?,“ spyr hann.
Hann hefur gaman af því að vinna
við handverkið en svo á golfið huga
hans allan yfir sumartímann – og það
getur verið tímafrekt.
„Fólk hefur verið að segja að ég
þurfi að láta vita meira af þessu,
ég nenni ekki að fara að vinna út í
skúr – ég er kominn á eftirlaun. Þetta
er bara hobbý en ef einhverjir vilja
kaupa af mér þá er það í góðu lagi
því þetta kostar allt saman. Þetta er
dýrt hráefni.“
Fólk hefur verið að
segja að ég þurfi
að láta vita meira af þessu,
ég nenni ekki að fara að
vinna út í skúr – ég er kominn
á eftirlaun ...
Hér má sjá hálsmen, hring og skeið með Reykjavíkurmunstrinu.
Það er vissulega fallegt og við hæfi að borgarfulltrúi
skrýðist því í kvöldverðarboði í Höfða.
Gleðilega hátíð
og farsælt
komandi ár
með þökk fyrir
ánægjulegt
samstarf
á árinu sem
er að líða.
Gleðilega hátíð
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 61