Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 30
Knattspyrnumaðurinn Ísak
Óli Ólafsson lék á láni með
uppeldisfélagi sínu, Keflavík,
í upphafi síðasta tímabils en
var kallaður til Danmerkur
fyrr en til stóð þar sem
hann var seldur frá danska
úrvalsdeilarliðinu Sønder-
jyskE til Esbjerg sem leikur
í dönsku 1. deildinni. Hann
fær um mánuð í frí um
jólin og er því á leiðinni
heim næstu daga.
„Þetta er búið að vera upp og niður,
allavega hefur þessi tími hjá Esbjerg
verið svolítið sérstakur. Byrjaði á því
að þjálfarinn var látinn fara en hann
skildi eftir sig sviðna jörð og margir
brenndir eftir hann. Leiðindanáungi
sem var að niðurlægja menn og þess
háttar, svo það hefur verið vinna
fyrir klúbbinn að krafsa sig upp úr
því,“ segir Ísak.
„Hann var þarna þegar ég kom til
liðsins en svo meiddist ég og á sama
tíma var hann látinn fara og nýr
tók við. Ég var frá í einn og hálfan
mánuð en þegar ég kom til baka fór
ég beint í liðið og ef ég er heill hef
spilað síðan. Mjög gott að finna fyrir
þessu trausti.
Auðvitað á Esbjerg ekkert að
vera í áttunda sæti í fyrstu deildinni
– þetta staðan eins og hún er núna
en þetta er á réttri leið og menn eru
stórhuga með framhaldið.“
Voru menn ekki frekar að horfa í að
fara upp eftir þetta tímabil?
„Jú en það var frekar óraunhæft
markmið hjá eigendunum að búast
við því að fara upp miðað við að
vera með 21 nýja leikmenn og enginn
þeirra yfir 23 ára.“
En ef við snúum okkur að jóla-
undirbúningnum, ertu ekki búinn
að öllu?
Ísak hlær við: „Jú, eiginlega. Ég tek
restina á flugvellinum á leiðinni
heim. Annars skreytir konan mín
aðeins hjá okkur, hún passar upp á
að hafa þetta heimilislegt þótt það
sé bara í nokkra daga.“
Hvort ykkar sér um jólabaksturinn?
„Ég sé meira um að elda, hún er með
baksturinn.“
Hverjar eru þína fyrstu jólaminn-
ingarnar?
„Ég og Sindri [Kristinn Ólafsson,
markvörður Keflvíkinga] erum úr
sveitinni og ég man fyrst eftir því
þegar við vorum saman bræðurnir
að keyra fjórhjól og ég velti hjólinu
mínu – það eru svona fyrstu minn-
ingarnar mínar frá jólum, ég held að
ég hafi verið svona sex ára gamall.“
Hvaðan eruð þið úr sveit?
„Við erum sko frá Bíldudal en pabbi
okkar bjó á Kjalarnesi, og býr þar
enn.“
Sex ára að velta fjórhjóli?
„Já, maður mátti gera allt í sveitinni
– ekki bara þetta.“
Eftirminnilegasta jólagjöfin, hver
er hún þá eiginlega – haglabyssa?
„Nei, það var þetta einmitt fjórhjólið
sem ég fékk þennan örlagaríka dag,“
segir Ísak og skellir upp úr. „Og ég
velti því bara mínútum seinna – en
ég meiddist ekkert. Ég var í brynju,
með hjálm og allan búnað.“
Hvað verður á borðum á jólunum
hjá ykkur?
„Ég held að það verði bara hamborg-
arhryggur, annars veit ég það ekki
alveg. Stundum hafa verið rjúpur.“
Þar sem þú ert nú af þessu svæði,
hafið þið þá ekkert verið að ganga
til rjúpna?
„Jú, við feðgarnir höfum gert það.
Eftir að ég fór út þá er rjúpnatíma-
bilið alltaf búið þegar ég kem heim
svo það hefur farið lítið fyrir því
síðustu ár – en það er fátt skemmti-
legra en að ganga til rjúpna.“
Hvað er svo framundan?
„Eins og staðan er núna er það bara
að vera áfram hjá Esbjerg og fara
með liðinu upp á næsta tímabili. Svo
er aðaltakmarkið að festa sig betur í
sessi í íslenska A-landsliðinu, ég var
í hópnum síðast og vil halda mig þar.
Það er stórt markmið hjá mér per-
sónulega. Halda áfram að spila
og komast lengra.“
Konan passar upp á
að hafa þetta
heimilislegt
Ísak Óla finnst fátt
skemmtilegra en að eltast
við þennan fallega fugl.
Ljósm.: Jón Steinar Sæmundsson
ÓSKUM SUÐURNESJAMÖNNUM
GLEÐILEGRA JÓLA OG
FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI
30 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár
Ísak Óli í leik með Keflavík gegn Val á síðasta tímabili.
Ísak Óli og Tinna Lind Gunnarsdóttir.
Ljósm.: Facebook