Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 78
Kristbjörg Kamilla Sigtryggsdóttir er húsmóðir í Skiphól í Garðinum. Hún er heimavinnandi eins og sagt
er, er að jafna sig eftir slys á sjó og bíður þess að komast á Reykjalund í endurhæfingu. Hún sagði
sögu sína í Víkurfréttum haustið 2020 en hún hafði misst helming af blóði líkamans og hægri fótur
hennar laskaðist mikið eftir árekstur slöngubáts og sæþotu úti fyrir Reykjavíkurhöfn. Bataferlið var
erfitt og tók mikið á Kristbjörgu Kamillu. En það voru líka gleðistundir, því í miðjum batanum þá varð
hún ófrísk af sínu fyrsta barni. Nú eru fyrstu jólin saman hjá Kristbjörgu Kamillu, Ingibjörgu Aþenu
Skiphólsprinsessu og Andrési Péturssyni og því mikill spenningur.
Hvernig hagar þú jólagjafainn-
kaupum?
Langbest að gera þetta allt saman
á netinu nýta sér Singles day, Black
friday og Cyber monday. Ekkert
ves, bara góður kaffibolli, rólegheit
og þægileg jólatónlist. Ég fletti i
gegnum Heimkaup og Hópkaup fyrir
alla krakkana og athuga hvort það sé
eitthvað fallegt og skemmtilegt þar
annars eru það Samhentir, Lely og
Progastro sem eru mínar uppáhalds,
ha ha, svo eru það bara verkfæri fyrir
kallinn, enda er hann þúsundþjala-
smiður.
Hvað með jólaskreytingar, voru
þær fyrr í ár?
Já, ég byrjaði i nóvember. Það eru
fyrstu jólin hjá dóttur minni svo ég
er að sjálfsögðu extra spennt.
Skreytir þú heimilið mikið?
Það er millivegur á öllu í lífinu ef
það yrði of mikið þá yrði heimilið of
krökkt en ég er með marglita jóla-
seríur í öllum gluggum, jólagardínur
í eldhúsinu og jólasveinanebba á
nokkrum stöðum í húsinu.
Bakarðu fyrir jólin? Áttu þér uppá-
haldssmáköku?
Ég geri súkkulaðibitakökur sem eru
með gróf söxuðum möndlum og
suðusúkkulaði. Svo reyni ég að gera
nokkrar sörur.
Eru fastar jólahefðir hjá þér?
Já, það er alltaf aligæs og hjá mömmu
og við gerum alltaf sósu saman og
fáum okkur sitthvort staupglasið
af rauðvíni. Svo reyki ég mitt eigið
hangikjöt og tvíreykt læri.
Hvernig er aðventan, eru hefðir
þar? Hefur Covid verið að trufla
undirbúning jólanna?
Covid hefur ekki truflað okkur neitt
því við förum ekki lengra en i næsta
hús og það er til mömmu annars er
það bara rólegheit. Ég hef engan
áhuga á æsing né ferðalögum. Ég
er svo heimakær á hátíðum. Eins
og ég sagði þá er það bjúgnagerð og
hangikjöt sem startar jólafílingnum
hjá okkur.
Hveru eru fyrstu jólin sem þú
manst eftir? Áttu skemmtilega jóla-
minningu?
Já, jólin 1995, það voru fyrstu jólin
hjá mér mömmu og fósturpabba
mínum. Mig langaði svo í kórónu
sem spilaði tónlist og ég fékk hana
í jólagjöf.
Hefurðu sótt messu um jólahátíð-
irnar í gegnum tíðina?
Nei það hefur aldrei tíðkast hjá mér.
Eftirminnilegasta jólagjöfin?
Klárlega kórónan, hahaha.
Er eitthvað sérstakt sem þig langar
að fá í jólagjöf?
Já, ekta kokka hnífa sem ég er
reyndar búin að fá.
Hvað verður í jólamatinn hjá þér
á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í
mat?
Í ár er það aligæs á aðfangadag. Á
jóladag er hamborgarhryggur eld-
aður í rauðvíni, lauk, hvítlauk og
fersku rósmarín og timjan. Mín upp-
skrift.
Annan í jólum er hangikjöt sem
ég verka sjálf og reyki með birki og
taði. Annars skiptum við alltaf annað
hvert ár, gæs og hamborgarhryggur.
Í fyrra var þetta öfugt. Svona hefur
þetta verið í mörg mörg ár en alltaf
hangikjötið okkar á annan í jólum.
Fyrstu jólin
hjá Skiphólsprinsessunni
Blái herinn sendir öllum
Suðurnesjamönnum kærar
jóla- og nýárskveðjur og
þakkar stuðninginn í 26 ár.
Sendum starfsmönnum okkar,
viðskiptavinum og bæjarbúum öllum
okkar bestu jólakveðjur og óskum þeim
farsældar á nýju ári.
REYKJANESHÖFN
78 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár