Víkurfréttir - 16.12.2021, Side 72
Þið í áhugafélagi um Jamestown
hafið verið að garfa í sögunni og nú
er komin út þessi bók um strandið
við Hafnir. Ertu ánægður með
bókina?
Tómas: „Ég er mjög ánægður með
þessa bók og mikill fróðleikur og
margt sem kom mér virkilega á óvart
og mér finnst bara sögugildi þessarar
bókar fyrir okkur Suðurnesjamenn
vera alveg gríðarlegt.“
Það er alveg ljóst að strandið er
merkilegasti atburður sögunnar
hér suður með sjó.
Tómas: „Alla vega miðað við það
sem ég er búinn að uppgötva núna í
kringum lestur bókarinnar. Það var
ekki neitt skrifaði um þetta í Öldinni
okkar. Sigurður Sívertsen skrifaði
um þetta í sínum annál á sínum
tíma. Þetta risti ekki djúpt en miðað
við hvað þetta gerði fyrir samfélagið
hérna þá finnst mér þetta stórvið-
burður
Sammála því Helga?
Helga Margrét: „Já, ég er algerlega
sammála því að bókin er alveg ein-
stök. Þegar við fórum í upphafi af
stað með þetta áhugafélag, var það
fyrst og fremst sagan sem við vildum
halda á lofti og þá hvað varð um
þennan farm og eru þessar spýtur
hér er í einhverjum húsum. Það sem
kemur fram í bókinni sem er sér-
stakt er að höfundurinn, Halldór
Svavarsson, er seglagerðarmeistari
þannig að hann kemur með alveg
nýja vídd inn í söguna. Ekki bara
farm skipsins heldur skipið sjálft,
seglin, allar rær og víra. Það sem
kom mér mest á óvart er að hann fór
mikið út í aðra hluti heldur en við
höfum verið að gera.“
Höfundurinn segir líka nokkuð
vel frá því hvernig samfélagið bregst
við þegar þetta stóra strand verður,
hvernig tekst að bjarga farminum og
annað.
Þetta hefur verið nokkuð flókið
mál á sínum tíma þegar skipið rak
hér að landi?
Helga Margrét: „Já, hugsið ykkur
bara að komast út í skipið og ná
þessum farmi á land og síðan að
nýta sér hann í húsakost og annað.
Við höfum heimildir fyrir því að
þetta breytti heilsufari fólks á Suður-
nesjum og það voru búnar til borð-
stofumublur og hurðin varð fræg í
Kotvogi í Höfnum. Hún var kölluð
tappahurðin því það var svo mikið
af götum í henni eftir eir- eða kopar-
nagla.“
Tómas: „Skipið var allt saman neglt
meira og minna saman með kopar-
nöglum. Það sem hefur heillað mig
líka er að í hvert einasta skipti sem
ég hef farið þarna út að strand-
staðnum að kafa eða að vera í ein-
hverjum ferðum í kringum það,
þá kúplast ég algjörlega út úr öllu
daglegu stressi og áreiti og fer inn
í þennan heim. Ég gleymi öllu sem
er fyrir utan Jamestown. Það finnst
mér það besta við þetta.“
Hvað áttu við með að heilsufar hafi
batnað?
Helga Margrét: „Húsakynnin voru
allt önnur og það var ekki verið að
vera kúldrast í torfkofum og allt
saman ískalt. Við höfum heimildir
fyrir því. Það voru fleiri menn sem
komu í verið af því að húsakynnin
voru öðruvísi, þannig að þetta hafði
mjög mikil áhrif.“
Þú hefur áhuga á að byggt verði hús
þarna sem Kotvogur var.
Helga Margrét: „Já, mér finnst
bara að við þurfum að fara að hafa
hér meiri ferðasöguþjónustu. Það
vantar hérna á Suðurnesjum upp-
lýsingamiðstöð þar sem ferðamenn
geta fengið að vita um sögun. Sagan
er hér um allt og hún liggur einhvers
staðar í leyni. Til dæmis sagan um
Kotvog, þetta merkilega hús þar
sem voru sextán hús og 39 hurðar á
járnum og þar voru þegar mest var
upp undir hundrað manns. Þessi
saga má ekki hverfa.“
Tómas: „Ég á nú sem betur fer líf
fyrir utan rusl og drasl í fjörum
landsins en þetta er eitthvað að
skemmtilegasta sem ég geri, að fara
þarna á þennan strandstað og þetta
svæði inni í Ósabotnum og bara
eiga stund og stað. Ég er alltaf að
sjá þetta fyrir mér, þetta skip og frá-
sagnir frá þessum og hinum þegar
skipið klofnar og af hverju fer þetta
hingað og hitt þangað. Ég er alltaf
að spá og spekúlera og á mínar eðal-
stundir á þessum stað.“
Tómas hefur í félagi við aðra
bjargað úr hafinu munum er til-
heyrðu Jamestown. Akkeri skipsins
eru komin á land og munir eru á
Byggðasafni Reykjanesbæjar. Ennþá
á eftir að bjarga hlutum á land.
Það var síðan tilviljun að þú fórst
að ná í ankerið þarna í Ósabotnum
við Hafnir?
Tómas: „Þetta hafði blundað í
hausnum á mér í áratugi. Ég vissi af
strandinu vegna þess að Jón Borgar-
sson og Þóroddur og Bubbi vinur
min höfðu sagt mér frá þessun.
Síðan gerist það að við ætluðum að
fara að ná í akkeri fyrir Valdimar hf.
í Vogum. Við vorum búnir að fara
deginum áður og merkja staðinn.
Svo um morguninn þegar við
komum þá var einhver Vogamaður
búninn að hirða belginn þannig að
merkingin var farin af staðnum. Þá
skaust Jamestown upp í hugann svo
við fórum bara með bátinn og allar
græjurnar út í Hafnir, hringdum í Jón
Borgarsson og fengum staðsetningu
og þar byrjaði þetta Jamestown-
ævintýri mitt.“
Sérðu fyrir þér sögusetur þarna
Helga?
Helga Margrét: „Kerfið er þungt
og við þurfum náttúrulega að sækja
um styrki og við höfum ákveðna
sýn. En við sjáum fyrir okkur þarna
sögusafn. Það eru margar sögur úr
Höfnum, ekki bara Jamestown, en
aðal áhugamál okkar núna í félaginu
er að reyna að merkja þær minjar
sem við höfum fundið, þau hús sem
við höfum fundið og hafa að hluta
eða öllu leyti verið byggð úr timbri
úr Jamestown. Það að búið væri að
flytja hús á milli Njarðvíkur, Vatns-
leysustrandar og inn í Blésugróf í
Reykjavík. Við viljum endilega fá
að merkja þessi hús. Það voru ekki
bara þessir hundrað þúsund plankar
sem voru í þessum farmi, heldur var
káeta skipstjórans öllu úr mahóní
og það var margt um borð í skipinu
annað en segl og vírar og timbur.“
Sérðu fyrir þér safnið eitthvað í
líkingu við það sem er á Fáskrúðs-
firði með franska spítalann?
Helga Margrét: „Já, við getum
búið til Kotvog í þeirri mynd sem
franski spítalinn var gerður. Við
eigum okkur þann draum að setja
á svið hvernig Hafnir voru. Hvernig
var byggðin þarna, hvaða fólk bjóða
þarna? Jón Thorarensen ólst t.d.
upp þarna hjá Hildi frænku sinni og
hann skrifaði margar bækur eins og
Litla skinnið og Suðurnesjaannál
sem birtist í Rauðskinnu. Það eru
margar frásagnir sem hægt væri að
gera skemmtilega sögusýningu um.“
Þetta er skemmtilegt verkefni og
þið iðið í skinninu að halda áfram?
Tómas: „Já, nú er komið að kafla
tvö. Nú er þessi bók komin út og nú
brettum við upp ermarnar og fáum
fjármagn til að geta sett vegleg, falleg
skilti á þau hús sem við vitum 100%
að hafa timbur úr skipinu svo að
sagan glatist ekki.“
Vilja sögusetur í Hafnir í anda
franska spítalans á Fáskrúðsfirði
Félagið Áhugahópur um Jamestownstrandið var stofnað formlega í
janúar 2017 en þá hafði fámennur hópur áugafólks um strandið hist
á fundum frá árinu 2014. Meðal verkefna sem félagið vill gera er að
útbúa merkingar á þau hús sem byggð voru úr við úr farmi skipsins
sem strandaði við Hafnir árið 1881. Vitað er um nærri 20 hús. Í skipinu
voru hundrað þúsund tilsniðnir viðarplankar úr harðviði sem nota
átti við smíði járnbrautarteina á Englandi. Helga Margrét Guðmunds-
dóttir og Tómas J. Knútsson eru m.a. í forsvari fyrir félagsskapinn.
Forsvarsmenn áhugafélagsins um Jamestown afhentu árið 2019 Byggðasafni Reykjanesbæjar muni úr strandinu.
Á myndinni eru f.v.: Sigurður Steinar Ketilsson (látinn), Tómas J. Kútsson, Helgi Valdimar
Viðarsson Biering, Eiríkur Páll Jörundsson og Helga Margrét Guðmundsdóttir.
Frá sögugöngu um Hafnir árið 2019. Hér segir Tómas J. Knútsson sögur af Jamestown við Kotvog. VF-mynd: Páll Ketilsson
Rústir Kotvogs í Höfnum.
72 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár