Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Side 95

Víkurfréttir - 16.12.2021, Side 95
Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Sólborg Guðbrandsdóttir, Suðurnesjamaður ársins 2020, sendi nú fyrir jólin frá sér sjálfstætt framhald af kynfræðslubókinni Fávitar sem kom út í fyrra. Sögur útgáfa gefur hana út. „Bókin fjallar að mestu leyti um samskipti og sjálfsþekkingu og í henni reyni ég að leiðbeina unga fólkinu okkar hvað varðar samskipti í kynlífi og sam- böndum og undirstrika mikilvægi þess að við fáum leyfi fyrir öllu því sem við gerum í tengslum við annað fólk, séum heiðarleg við hvert annað og þá leiðrétti ég einnig ýmsar ranghugmyndir sem við fáum úr klámi. Fyrri bókin var samansafn af kynfræðslutengdum spurningum sem ég hafði fengið sendar til mín á samfélagsmiðlum og á fyrirlestrum. Hún er skrifuð fyrir unglinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessum málum.“ Hvernig hafa viðbrögðin verið? „Viðbrögðin hafa verið góð. Það er ótrúlega gaman að gefa út bækur. Ég reyndar hélt það í miðju skrifferlinu að ég fengi að ferðast um landið og hitta fólk þegar bókin kæmi út, halda partý og svona, en svo mætti Covid-djöfullinn eina ferðina enn svo samfélagsmiðlarnir þurfa að duga annað árið í röð, svona að mestu leyti allavega.“ Hvað fékk þig til að henda í framhald? „Fræðslunni er aldrei lokið. Á hverju ári verða börn að unglingum og þeir hafa svipaðar vangaveltur um þessa hluti og þeir sem á undan komu. Heimurinn og samfélagið er stöðugt að þróast og við þurfum að hafa okkur öll við svo okkur takist að fylgja með. Bækurnar eru góð leið til að opna á umræður um þessi málefni heima fyrir og í skólum og ég er viss um að þær svari mörgum spurningum unga fólksins okkar.“ Aðeins færri fávitar fæst í öllum helstu verslunum landsins, um allt land, t.d. Hagkaup, Bónus, Nettó, Eymundsson o.fl. Sjálfstætt framhald af kynfræðslubókinni Fávitar sem kom út í fyrra. Aðeins færri fávitar frá Sólborgu FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS og JamestownBobba Óskum Suðurnesjamönnum og öðrum landsmönnum gleðilegrar jólahátíðar með ósk um gæfuríkt komandi ár. Þökkum viðskiptin á liðnum árum. VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 95

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.