Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 58
hefði viljað vera með stelpunum
út í glugga í Nesfiski og sjá skipið
sigla framhjá. Ég var eiginlega ekki
réttu megin. Maður hljóp svo oft
út í glugga þegar bátarnir voru að
veiða skammt undan landi til að sjá
hvaða bátur það væri. Mig vantaði
þessa tilfinningu því ég var um borð
í skipinu en ekki að horfa á það frá
landi. Ég fékk sömu tilfinningu þegar
við sigldum framhjá Sandgerði. Ég er
vanari því að horfa til hafs en ekki úr
skipi til lands. Ég var ekki á réttum
stað.“
Nú þegar skipið er komið heim til
Íslands hefst alvaran. Það þarf að
fara að veiða upp í kostnað. Þorbjörg
er spurð að því hvort hún sé búin að
safna fyrir skipinu.
„Ég hef engar áhyggjur af þessu.
Ég er að fara. Það er annara að
standa skil á þessu. Ég er búin að
standa skil á mínu,“ segir Bobba og
hlær.
Ætlar að fylgjast með
af hliðarlínunni
Bobba er að verða 82 ára og heilsan
er góð. „Þess vegna ætla ég að
fylgjast með þeim af hliðarlínunni
að spjara sig.“
Ferðu í Nesfisk alla daga?
„Ég fer þangað hálf átta á morgnana
og fæ mér kaffi með verkstjórunum
svo ég tapi ekki af neinu sem er
að gerast. Það er ég búin að gera í
langan tíma. Ég spyr, heyri og veit,
það er bara nauðsynlegt.“
Verður breyting á því?
„Kannski ekki alveg strax. Kannski
er bara hundleiðinlegt að vera heima
og horfa hér út. Ég læt bara reyna á
það.“
Hver er mesta byltingin á þeim
árum sem þú hefur verið í þessu?
„Mesta byltingin er eftir, því það
hefur enginn farið eftir því sem ég
er að segja. Það er nefnilega vanda-
málið. Ég vil láta taka allt úr hús-
unum og skipuleggja allt upp á nýtt.
Þar er hægt að hagræða. Við erum
algjörlega stöðnuð í þessu og langt
á eftir okkar samtíð. Það er búið að
kaupa róbót en þessar kornungu
stelpur vilja ekki nota hann og eru
sjálfar að lyfta kössum langt upp
fyrir sig. Það væri hægt að tækni-
væða mun meira í vinnslunni en
þegar hefur verið gert.
Við gætum líka bara gert út á nýja
togarann og lokað frystihúsinu í
landi. Þar mætti geyma hjólhýsi og
breyta hluta hússins í hótel. Það eru
bara lausnir, ekki vandamál. Ef ég
væri þrítug á ný gæti ég alveg hugsað
mér þetta.“
Gott starfsfólk skapar
góðan árangur
Bobba segir árin í rekstrinum hafa
bæði verið skemmtileg og leiðinleg.
„Lífið er bara svoleiðis. Það er
sleppur enginn við það. Stundum er
gaman og stundum er leiðinlegt en
þar hefur alltaf verið árangur.“
Hverju þakkar þú árangurinn?
„Það er mannskapnum að þakka. Við
höfum alltaf verið með mjög góðan
mannskap, mannskapur sem er
búinn að vera lengi hjá fyrirtækinu.“
Þegar maður er í rekstri í svona
mörg ár, verður vinnan þá að
áhugamáli? Áttu þér önnur
áhugamál?
„Ég hef ekki misst af neinu. Það
fór reyndar í taugarnar á mér að
ég komst ekki í leikhús fyrstu árin.
Þú verður bara að sætta þig við það
sem þú hefur. En ég sagði nú lengi
vel þegar verið var að spyrja hvernig
gengi að ég sagði alltaf að ég hef
engar áhyggjur af því. Þetta eru allt
rekið héðan,“ segir Bobba og bendir
upp til skaparans.
Vendipunktur í starfseminni
Nesfiskur er í dag með þrjú- til fjög-
urhundruð starfsmenn í vinnslunni
í landi og á skipunum sem telja um
einn tug. Bobba segir að nú sé vendi-
punktur í starfseminni.
Málfríður dóttir hennar og Ingi-
bergur hennar maður séu farin út
úr fyrirtækinu. Hún sé sjálf að segja
skilið við fyrirtækið þannig að eftir
verða Bergþór sonur hennar og hans
innsti kjarni og svo Bergur, sem er
uppeldissonur Bobbu.
„Þeir verða að hafa þetta fyrir
sig og ég ætla bara að horfa á. Ég
ætla að hafa skoðun á því sem er að
gerast í fyrirtækinu og hlakka til að
sjá hvernig gengur með nýja skipið.
Í mars ætti að vera komin reynsla á
skipið. Ég ætla ekki að loka augum
og eyrum,“ segir Þorbjörg Bergs-
dóttir, Bobba, að lokum.
Mesta byltingin er eftir því það hefur enginn farið eftir því
sem ég er að segja. Það er nefnilega vandamálið. Ég vil
láta taka allt úr húsunum og skipuleggja allt upp á nýtt.
Þar er hægt að hagræða. Við erum algjörlega stöðnuð í þessu og
langt á eftir okkar samtíð.
Á góðri stund í Vigo á Spáni.
Til hliðar er Bobba með
Vigdísi Elísdóttur sem var
henni til hands og trausts í
siglingunni heim. Að neðan
er svo skipinu gefið nafn.
Myndir úr einkasafni.
BOBBA Í NESFISKI
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
58 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár