Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 71

Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 71
Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu sem eru að líða •  Fitjabraut 30 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 • Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu sem eru að lí • Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 •  Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti Ef þú lendir í tjóni þá sér Bílnet um málin ! Hjá Bílneti færð þú bestu viðgerð og þjónustu sem völ er á. Bílnet er gæðavottað verkstæði og með 5 stjörnur frá Sjóvá. Bílnet leggur áherslu á fagleg og snögg vinnubrögð. Við notum einungis vottað hágæða lakk frá Du Pont í samstarfi við Poulsen. Þjónusta í boði hjá Bílnet Bílasprautun - Bílaréttingar - Tjónaskoðun - Plastviðgerðir Bílrúðuskipti - Mössun - Sprautulökkun Bílnet ehf. - 420 0020 - Brekkustíg 38 - 260 Reykjanesbæ - www.bilnet.is Íbúar og starfsmenn Hrafnistu Reykjanesbæ Bestu jóla- og nýárskveðjur sendum við til ættingja og vina með þakklæti fyrir liðnar stundir Viðurinn um borð í Jamestown var fura eða Döglingsviður (e. Douglas-fir). Þessi tré eru að jafnaði um frá 50 til 65 metrar á hæð og þvermálið er 1 til 2 metrar. Til eru dæmi þess að hæð þessara trjáa nái allt að 100 metrum og þá verður þvermálið allt að 5 metrum með greina- og kvistfría 25 til 50 metra stofna. Úr þessu efni er hægt að framleiða stórar efnisstærðir af gegnheilu kvistfríu efni ásamt flatskornum og „skrælluðum“ spæni. Á Íslandi hefur döglingsviður í seinni tíð verið mest notaður í innihurðir og innréttingar, glugga og útihurðir. Annars staðar er hann notaður í gólf og burðarbita. Ástæðan fyrir valinu á döglingsviði í glugga og útihurðir hér á landi er sú að tréð er beinvaxið og það vindur sig lítið í þurrkun og er því auðvelt í vinnslu. Döglingsviður er „ríkistré“ Óregon í Bandaríkjunum og kallast þessi tegund því oftast Oregon Pine á verslunarmáli. VIÐURINN UM BORÐ HVERNIG LEIT SEGLSKIPIÐ JAMESTOWN ÚT? Ekki er vitað hvernig seglskipið Jamestown leit út því að ekki hafa fundist myndir af því. Skipið hér að neðan, Bræðurnir þrír eða The Three Brothers, var svipað af stærð og Jamestown eða 101 metri að lengd. Það skip var á meðal stærstu seglskipa heims á sínum tíma en það var sjósett í New York–ríki árið 1857. Á þilfarinu má sjá vistarverur líkar þeim sem voru á Jame- stown, skipstjórinn og aðrir yfirmenn munu hafa verið í aftara húsinu en hásetarnir í hinu fremra. Fremra húsið er stórt og hefur vísast einnig verið fyrir farþega sem flykktust til Vesturheims á þessum tíma. Eldunaraðstaða mun hafa verið í báðum húsunum því að ekki er líklegt að yfirmennirnir hafi verið á sama fæði og aðrir. Ljóst er að ekki var fyrir lofthrædda eða deiga menn að fara upp í reiða á svona skipum, á Jamestown var miðmastrið um 30 metrar á hæð. Til samanburðar má nefna að Hallgrímskirkjuturn er 74,5 metrar á hæð. Fólk getur gert sér í hugarlund hvernig það hefur verið í vondum veðrum að fara upp í mastur þar sem ekkert var til að halda sér í annað en seglið sjálft. Margir menn drógu saman upp seglið, höfðu allir sama bandið til að standa á og var það hið eina sem hélt þeim uppi. Enginn lifði af að missa takið og þá gilti einu hvort hann féll í hafið eða á dekkið. VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 71

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.