Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 71
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem eru að líða
• Fitjabraut 30 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 •
Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem eru að lí
• Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 •
Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti
Ef þú lendir í tjóni
þá sér Bílnet um málin !
Hjá Bílneti færð þú bestu viðgerð og þjónustu sem völ er á.
Bílnet er gæðavottað verkstæði og með 5 stjörnur frá
Sjóvá. Bílnet leggur áherslu á fagleg og snögg vinnubrögð.
Við notum einungis vottað hágæða lakk frá Du Pont í
samstarfi við Poulsen.
Þjónusta í boði hjá Bílnet
Bílasprautun - Bílaréttingar - Tjónaskoðun - Plastviðgerðir
Bílrúðuskipti - Mössun - Sprautulökkun
Bílnet ehf. - 420 0020 - Brekkustíg 38 - 260 Reykjanesbæ - www.bilnet.is
Íbúar og starfsmenn
Hrafnistu Reykjanesbæ
Bestu jóla- og nýárskveðjur
sendum við til ættingja og vina með
þakklæti fyrir liðnar stundir
Viðurinn um borð í Jamestown var fura eða Döglingsviður
(e. Douglas-fir). Þessi tré eru að jafnaði um frá 50 til 65
metrar á hæð og þvermálið er 1 til 2 metrar. Til eru
dæmi þess að hæð þessara trjáa nái allt að 100 metrum og
þá verður þvermálið allt að 5 metrum með greina- og
kvistfría 25 til 50 metra stofna. Úr þessu efni er hægt að
framleiða stórar efnisstærðir af gegnheilu kvistfríu
efni ásamt flatskornum og „skrælluðum“ spæni. Á
Íslandi hefur döglingsviður í seinni tíð verið mest
notaður í innihurðir og innréttingar, glugga og
útihurðir. Annars staðar er hann notaður í
gólf og burðarbita. Ástæðan fyrir valinu á
döglingsviði í glugga og útihurðir hér á
landi er sú að tréð er beinvaxið og það
vindur sig lítið í þurrkun og er því
auðvelt í vinnslu. Döglingsviður er
„ríkistré“ Óregon í Bandaríkjunum
og kallast þessi tegund því oftast
Oregon Pine á verslunarmáli.
VIÐURINN
UM BORÐ
HVERNIG LEIT
SEGLSKIPIÐ
JAMESTOWN ÚT?
Ekki er vitað hvernig seglskipið
Jamestown leit út því að ekki
hafa fundist myndir af því.
Skipið hér að neðan, Bræðurnir þrír
eða The Three Brothers, var svipað af
stærð og Jamestown eða 101 metri að
lengd. Það skip var á meðal stærstu
seglskipa heims á sínum tíma en það
var sjósett í New York–ríki árið 1857.
Á þilfarinu má sjá vistarverur
líkar þeim sem voru á Jame-
stown, skipstjórinn og aðrir
yfirmenn munu hafa verið í aftara
húsinu en hásetarnir í hinu fremra.
Fremra húsið er stórt og hefur
vísast einnig verið fyrir farþega sem
flykktust til Vesturheims á þessum
tíma. Eldunaraðstaða mun hafa
verið í báðum húsunum því að ekki
er líklegt að yfirmennirnir hafi verið
á sama fæði og aðrir. Ljóst er að ekki
var fyrir lofthrædda eða deiga menn
að fara upp í reiða á svona skipum,
á Jamestown var miðmastrið um 30
metrar á hæð. Til samanburðar má
nefna að Hallgrímskirkjuturn er 74,5
metrar á hæð. Fólk getur gert sér í
hugarlund hvernig það hefur verið í
vondum veðrum að fara upp í mastur
þar sem ekkert var til að halda sér í
annað en seglið sjálft. Margir menn
drógu saman upp seglið, höfðu allir
sama bandið til að standa á og var það
hið eina sem hélt þeim uppi. Enginn
lifði af að missa takið og þá gilti einu
hvort hann féll í hafið eða á dekkið.
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 71