Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Side 10

Víkurfréttir - 16.12.2021, Side 10
Hefðir og fjölskylduvenjur móta jólin og jólahaldið. Þessi tími, dimmasti árstími hefur djúpa merkingu fyrir okkur flest. Við segjum gjarnan að þetta sé tími barnanna og það er mikið til í því. Jólin eru þó tími okkar allra og við fögnum hvert með okkar hætti. Á Suðurnesjum var þess löngum beðið að fjölskyldufeður kæmu heim af sjó en þá fyrst hófust jólin á mörgum heimilum. Í Keflavík hefur alltaf verið mikil verslun og er enn. Ég get rétt ímyndað mér að það sé hluti af jólastemmningunni að rölta Hafnargötuna, kíkja í búðir og kaupa jólagjafirnar. Segja má að að- ventan, þessi yndislegi upptaktur að jólum, sé nú til dags hátíð út af fyrir sig. Vinir og ættingjar koma saman á köldum desemberdögum, gleðjast og njóta samveru. Þannig á það að vera. Líf okkar tekur stöðugum breyt- ingum og jólin minna okkur oft á það sem var, er ekki lengur og verður aldrei aftur. Þessi tími er því erfiður mörgum og þá sérstaklega þeim sem eiga um sárt að binda. Hugurinn leitar ósjálfrátt til þeirra sem misst hafa ástvini á árinu og horfa nú til hátíðanna með kvíðahnút í maga og sorg í hjarta. En jólin gefa okkur líka tækifæri til að heiðra minninguna enda leitar hugurinn nær alltaf í minningabankann á þessum árs- tíma. Við leitumst við að endurskapa minningar úr æsku okkar á hverju einasta ári og endurupplifa liðna tíð á fallegan máta. Árið hefur verið viðburðarríkt í mínu persónulega lífi. Það var mikil ákvörðun fyrir mig að taka í upphafi árs að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör- dæmi. Árangurinn varð eins og að var stefnt og er ég ykkur öllum ævar- andi þakklát fyrir ykkar hvatningu og stuðning. Án þess væri ég ekki nú þingmaður ykkar á hinu háa Alþingi. Markmiðið er þó alltaf skýrt og það er að vera öflugur fulltrúi Suðurkjör- dæmis og ýta áfram þjóðþrifaverkum fyrir kjördæmið, sem og landið allt. Ríkisstjórn hefur verið mynduð og mér hafa verið falin margvísleg trún- aðarstörf fyrir Sjálfstæðisflokkinn á þingi. Ríkisstjórnin hefur mótað stefnu næstu fjögur árin þar sem leiðarstefið er að efla atvinnulífið og byggja upp nýjar atvinnugreinar sem eru reistar á þekkingu og nýsköpun. Við Íslendingar erum að koma mun betur út úr efnahagsáfallinu sem tengt er heimsfaraldri Covid19 og því er ástæða til að horfa bjartsýn fram um veg. Verkefnin eru áfram ærin en við munum sjá sterkari og betra samfélag á næstu árum, það er bjargföst trú mín. Kæru vinir. Nú gengur í garð tími kærleika og vináttu. Njótum hans saman. Ég óska ykkur öllum gleði- legra jóla, árs og friðar. Jólakveðja frá oddvita Suðurkjördæmis Guðrún Hafsteinsdóttir FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS NÝR VEITINGASTAÐUR Á BB HÓTEL - ÁSBRÚ Take Off Bistro Opið frá 18.00 til 21.30. Happy hour kl. 18-19 Take Off Bar - happy hour kl. 16-18. OPIÐ ALLA DAGA. VERIÐ VELKOMIN Á TAKE OFF BISTRO FJÖLBREYTTUR OG LÉTTUR BISTRO MATSEÐILL: Kjúklingavængir Hamborgarar Svínarif Nautalund Djúpsteiktir blómkálsvængir Fiskur og franskar Kjúklingasalat Sendum Suðurnesja– mönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir sam- skiptin á árinu sem er að líða. 10 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.