Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 62
B Í L A K J A R N I N N
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða
Fjárhagsáætlun Suðurnesjabæjar fyrir árið 2022 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2023-2025 var sam-
þykkt samhljóða í bæjarstjórn þann 8. desember sl. Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar A- og B hluta
eru að heildartekjur eru áætlaðar 4.932,7 mkr., þar af eru skatttekjur af útsvari og fasteignasköttum
3.055,8 mkr. Rekstrargjöld eru áætluð alls 4.530 mkr. og er rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði 402,7 mkr. Afskriftir eru 250,2 mkr. og fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur 149,2 mkr.
Rekstrarniðurstaða er jákvæð 3,2 mkr.
Veltufé frá rekstri er áætlað 458,1
mkr. Fjárfestingaáætlun ársins 2022
hljóðar upp á alls 806 mkr. Gert er
ráð fyrir lántökum að fjárhæð 650
mkr, en lántaka ársins 2021 verður
150 mkr. lægri en gert var ráð fyrir
og er sú lántaka færð yfir á árið
2022. Handbært fé í ársok 2022 er
áætlað 552,7 mkr.
Heildar skuldir eru áætlaðar
3.540,0 mkr. í árslok 2022. Sam-
kvæmt fjármálareglu sveitar-
stjórnarlaga má skuldahlutfall ekki
vera umfram 150% af tekjum, en í
fjárhagsáætlun ársins 2022 er gert
ráð fyrir að skuldahlutfall nettó verði
91,1% og skuldaviðmið skv. reglugerð
502/2012 verði 80,2%.
Álagningarhlutfall útsvars og fast-
eignaskatta verður óbreytt frá fyrra
ári.
Í forsendum fjárhagsáætlunar er
meðal annars gert ráð fyrir að íbúum
sveitarfélagsins fjölgi um 3% á árinu
2022, sem er svipuð þróun íbúa-
fjölda og er á árinu 2021. Í byrjun
desember 2021 eru íbúar Suður-
nesjabæjar 3.750 samkvæmt bráða-
birgðatölum Þjóðskrár.
Eins og að framan greinir hljóðar
fjárfestingaáætlun ársins 2022 upp
á kr. 806 mkr., í áætluninni eru ýmis
verkefni bæði stór og minni.
Unnið verður að uppbyggingu
á nýjum leikskóla við Byggðaveg í
Sandgerði, sem verður stærsta fram-
kvæmdin á árinu 2022 og er fram-
kvæmdakostnaður á því ári áætlaður
500 mkr.
Aðrar helstu fjárfestingar í
áætlun ársins 2022 eru meðal
annars:
• Gert er ráð fyrir að hefja upp-
byggingu á gervigrasvelli.
• Framkvæmdir verða í leik-og
grunnskólum og í íþróttamið-
stöð í Sandgerði.
• Lokið verður við síðasta
áfanga lóðarframkvæmda við
Gerðaskóla og áfram haldið
við framkvæmdir í Útskálahúsi
og umhverfi við Útskálakirkju.
• Unnið verður að endurbygg-
ingu gatna og frágangi opinna
svæða, ásamt göngustígum og
hringtorgi á Byggðavegi við
aðkomu að nýjum leikskóla.
• Vegna mikillar eftirspurnar
eftir íbúðalóðum verður haldið
áfram uppbyggingu innviða í
nýjum íbúðahverfum.
• Loks má nefna að lagt verður
til stofnframlag vegna upp-
byggingar leiguíbúða á vegum
Bjargs leigufélags.
Fjárhagsáætlun ber með sér að efna-
hagsleg staða Suðurnesjabæjar er
góð en áfram verður unnið að því
markmiði að gæta aðhalds í rekstri.
Suðurnesjabær - fjárhagsáætlun
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar sam-
þykkti bæjarstjórn samhljóða eftir-
farandi bókun:
Fjárhagsáætlun Suðurnesjabæjar
fyrir árið 2022, ásamt rammaáætlun
áranna 2023-2025 kemur nú til
síðari umræðu og afgreiðslu í bæjar-
stjórn. Forsendur fjárhagsáætlunar
bera með sér að áfram verða áhrif
heimsfaraldurs kórónuveiru nokkur
í rekstri og efnahag sveitarfélagsins,
þótt svo gert sé ráð fyrir að þau áhrif
munu fara minnkandi þegar líður inn
í árið 2022. Atvinnulífið hefur náð
fótfestu á ný eftir mjög neikvæð
áhrif faraldursins á atvinnu-og efna-
hagslífið undanfarin tæplega tvö ár
og er von til þess að á árinu 2022
muni þau áhrif hverfa.
Bæjarstjórn lýsir ánægju með
að fjárhagsáætlun felur í sér sterka
efnahagslega og rekstrarlega stöðu
Suðurnesjabæjar, gert er ráð fyrir
miklum fjárfestingum á árinu 2022
þar sem áfram er haldið við upp-
byggingu á mikilvægum innviðum
sveitarfélagsins. Þannig leitast
bæjarstjórn meðal annars við að
mæta mikilli fjölgun íbúa með það
að markmiði að skapa aðstæður til
að sveitarfélagið veiti áfram fyrsta
flokks þjónustu við íbúana.
Bæjarstjórn þakkar bæjarstjóra
og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir
vel unnið verk við vinnslu fjárhagsá-
ætlunar og fyrir frábært starf á árinu
sem hefur verið erfitt á löngum
köflum, enda hafa aðstæður verið
vægast sagt óvenjulegar, segir í til-
kyningu frá Suðurnesjabæ.
Fjárhagsáætlun Suðurnesjabæjar 2022–2025 samþykkt í bæjarstjórn:
Sterk staða og miklar fjárfestingar á næsta ári
62 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár