Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 83

Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 83
Svanhildur Eiríksdóttir er sér- fræðingur á þjónustu- og sam- skiptasviði hjá Búseta, ritstjóri Faxa og annar þáttastjórnanda hlaðvarpsins Af hverju vissi ég það ekki? Svanhildur segir að nú sé útivistardót efst á óskalistanum, gönguskíða- buxur eða skór fyrir svigskíðin. „Svo er alltaf draumur að fá góða bók. Nú langar mig mest í Cilka´s Journey eftir Heather Morris,“ segir hún í jólaspjalli við Víkurfréttir. Hvernig hagar þú jóla- gjafainnkaupum? Jólagjafainnkaupin eru alltaf mjög vel ígrunduð. Oft er ég búin að spotta viðeigandi jólagjafir handa þeim sem ég vil gefa og kaupi þegar ég á leið um. Margt panta ég á vefnum og sæki næst þegar ég er á ferðinni. Ég hef sem betur fer aldrei lent í vandræðum með neinn og keypt bara eitt- hvað í pakkann. Í ár var ég búin að kaupa næstum a l l a r gjafir í lok nóvember og hef notið þess að pakka inn í rólegheitum því sem ég sendi til útlanda eða út á land. Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár? Nei, skreytingar verða seinni í ár vegna framkvæmda á heimilinu. Þær áttu svo sem ekki að vera korter í jól en það endaði þannig. Það sem hins vegar hefur verið að gerast fyrr á heimilinu og ég reikna með að þannig verði það einnig í ár er að skreyta jólatréð. Alveg þar til í fyrra var Þorláksmessa skreytingardagur jólatrés en nú vill fjölskyldan njóta þess lengur. Skreytir þú heimilið mikið? Nei, ekkert svakalega, en ég reyni oft að bæta einhverju smá við á hverju ári og tek þá frá skraut sem er orðið þreytt. Vænst þykir mér um jólaskrautið sem dætur mínar og tengdamamma hafa fært mér í gegnum tíðina og er búið til af ást og umhyggju. Ég er nokkuð fastheldin á það skraut. Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá helst? Áttu þér uppáhaldssmá- köku? Já við á heimilinu bökum, ekkert endilega ég, því bæði dætur mínar og eiginmaður eru mjög dugleg við það. Kökur úr minni bernsku eru alltaf í uppáhaldi, piparkökurnar og súkkulaðibitakökurnar sem mamma bakaði. Nú finnst mér heillandi að setja gráðost á piparkökurnar en það tíðkaðist nú ekki í minni ung- dómstíð. Svo eru lakkrístoppar og mömmukökkur yfirleitt í kökud- unkum heimilisins. Eru fastar jólahefðir hjá þér? Ekki beint, þó sumt sé vissulega í föstum skorðum. Mesta hefðin er sennilega sú að þegar við hjúin vorum að hefja okkar búskap fyrir margt löngu reyndi eiginmaðurinn að telja mér trú um að það væri góður kostur að kaupa gervijólatré. Ég hélt nú ekki, lifandi og ilmandi skyldi það vera. Hann setti þá það skilyrði að tréð yrði alltaf að vera stærri en hann. Þeir sem til þekkja vita að hann er stór og stæðilegur, bústinn og baldinn, þannig að tréð er alltaf bæði hátt og fyrirferðarmikið. Hvernig er aðventan - hefðir þar? Við fjölskyldan reynum alltaf að eiga notalegar samverustundir. Það hefur stundum reynst erfitt þegar dætur hafa verið í skóla fjarri heimili og prófannir eru oft á aðventu. Ef það eru ekki heimastundir með bakstri, skemmtilegri jólamynd eða gripið í spil þá förum við saman á tón- leika og út að borða. Í ár verður sá skemmtidagur rétt fyrir jólin. Í sjálfu sér hefur Covid ekki truflað undirbúning jólanna en löngunin til að vera úti á meðal fólks í grímuskyldu hefur breytt hátta- lagi fjölskyldunnar. Heimsfaraldur breytti jólahaldi í fyrra sem átti að verða með vinum í Bandaríkjunum en þá var ferðamönnum meinað að koma. Nú þegar heimildin er til staðar eru aðstæður í fjölskyldunni með þeim hætti að við getum ekki notið gestrisni þeirra. Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Áttu skemmtilega jólaminn- ingu? Ég á enga afgerandi jólaminningu úr æsku, bara svona glefsur hér og þar. Hins vegar var ég svo heppin að alast upp í stórum systkinahópi þannig að manni leiddist aldrei og áttum okkur á því að tíðarandinn var annað, lítið annað að gera en njóta samvista með fjölskyldunni. Við spiluðum mikið þó það hafi verið stranglega bannað á aðfangadag, horfðum á jóladag- skrána og nutum sætindanna sem voru í boði. Ein allra skemmtilegasta jóla- minningin tengist vinkonum mínum Helgu Birnu og Sigrúnu frá uppvaxtarárum okkar í Garði. Eina aðventuna settum við saman hefti með skemmtilegum jólalögum og gengum svo um og sungum fyrir fólk utan við fjölfarna staði eins og búðina og pósthúsið, en gengum líka bara um göturnar og sungum. Þetta sönghefti hefur alltaf yljað mér um hjartarætur. Hefurðu sótt messu um jólahátíð- irnar í gegnum tíðina? Já, það hef ég gert þó nokkuð af. Mér finnst alltaf mjög hátíðlegt að fara í messu á jólahátíðinni og auk þess að hafa fylgt dætrum í þátttöku þeirra í helgileikjum hefur maðurinn minn lengi sungið í kór og kvartett og hann er oft að syngja í Keflavíkurkirkju í jólamessum. Góð jólaminning úr æsku tengist einmitt þátttöku minni í hátíðar- messu þar sem bjöllukór sem ég var meðlimur í, spilaði í Útskálakirkju. Mér finnst bjöllur sérstaklega hátíð- legar og þessi viðburður jók á hátíð- leikann í mínum huga. Eftirminnilegasta jólagjöfin? Það er sennilega bílabrautin sem ég suðaði út í æsku og varð fyrir miklum vonbrigðum með. Bílarnir hentust alltaf upp úr brautinni (sennilega af því að ég ók þeim of hratt) og gjöfin varð eftir allt skamm- góður vermir. Er eitthvað sérstakt sem þig langar að fá í jólagjöf? Ég hef alltaf verið svo lánsöm að fá akkúrat það sem mig langar í, hef aldrei skipt eða skilað jólagjöf nema einni, rafmagnsdósaupptakara sem ég sá ekki að ég hefði mikla not fyrir í búskapnum og skipti yfir í meira þarfaþing. Nú er útivistardót efst á óska- listanum, gönguskíðabuxur eða skór fyrir svigskíðin. Svo er alltaf draumur að fá góða bók. Nú langar mig mest í Cilka´s Journey eftir Heather Morris. Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat? Það eru aðallega dætur mínar sem eru fastheldar á mat. Ef þær hafa ekki verið grænmetisætur þá kemur lítið annað til greina en hamborgar- hryggur með tilheyrandi meðlæti, steiktum ananas, brúnuðum kart- öflum, sósu og salati. Mörg undan- farin ár höfum við einnig haft hnetu- steik á boðstólnum og nýtt þá sama meðlæti. Sjálf vil ég ekki mikið af reyktu kjöti og læt því hangikjötið á jóladag nægja í reyktum matvælum. Löngunin til að vera úti á meðal fólks í grímuskyldu hefur breytt háttalagi fjölskyldunnar Ein af fáum jólamyndum sem eru til af mér í æsku. Lengi vel skreyttum við fjölskyldan jólatréð með íslensku fánunum eins og hér sést, en borðinn var að lokum sleginn út af borðinu af dætrunum sem þótti hann ósmart. Fjölskyldan á jólapeysudegi. VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 83 Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða! ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI Tannlæknastofan Tjarnargötu 2 83
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.