Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 86

Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 86
Sendum þér og þínum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða Gleðilegt nýtt bílaár! REYKJANESBÆ Guðmundur Kristinn Jónsson, jafnan kallaður Kiddi, er hljóðfæra- leikari í Hjálmum og Baggalút og hefur auk þess rekið hljóðverið Hljóðrita í Hafnarfirði undanfarin ár við góðan orðstýr þar sem hann býr núna ásamt fjölskyldu sinni. Flókið ár fyrir tónlistarfólk „Maður er búinn að vera að vona að eitthvað sé að fara að gerast, svo kemur alltaf eitthvað uppá tengt Covid sem breytir forsendunum. Við höfum nánast ekkert geta spilað síðasta eina og hálfa árið, hvorki Hjálmar né Baggalútur,“ segir Kiddi þegar hann er spurður hann út í hvernig árið hafi verið. Kiddi hefur unnið náið með Ás- geiri Trausti, tekið upp lögin hans og farið með honum í tónleikaferðir víða um heiminn. „Við prófuðum að fara út til Ítalíu í sumar og vorum með fjögur gigg þar á hátíðum sem venjulega eru fyrir 5 þús manns. Nú voru einungis eitt þús manns vegna takmarkana, síðan eru allar ferðir á milli landamæra mjög flóknar þannig að tónleikaferðir erlendis eru erfiðar um þessar mundir. Þetta hefur hins vegar verið mjög skemmtilegt studíó ár, ég tók upp nýja plötu með Ásgeiri Trausta og síðan kynnti Högni Egilsson fyrir mér efnilegan tónlistarmann, Ár- nýju Margréti, sem ég hef verið að vinna með og taka upp efni, búinn með litla plötu og langt komin með stóra plötu.“ Kiddi gerði plötusamning við Ár- nýju og samdi einnig við tvær bók- unarskrifstofur sem koma til með að sjá um að bóka hana í Evrópu og Bandaríkjunum. „Þannig að árið hefur farið mikið í Árnýju Margréti og einnig að und- irbúa Ásgeir Trausta þegar landa- mæri fara að opnast, þá verðum við tilbúnir með nýtt efni.“ Baggalútur stór hluti af tilverunni Hljómsveitin Baggalútur er stór hluti af vinnunni hjá Kidda þó að hljóm- sveitin spili ekki mikið yfir allt árið þá er ávallt mikið að gera á seinni hluta ársins, þó ekki í fyrra þegar hætt var við alla jólatónleikana. Núna í ár er blásið til sóknar og uppselt er á 16 tónleika hjá hljóm- sveitinni í Háskólabíói. „Það sem skiptir máli fyrir okkur í hljómsveitinni er að hafa gaman, þetta er svipaður kjarni sem hefur staðið í þessu í tíu ár. Við leggjum mikið upp úr því að hafa gaman baksviðs, tökum okkur ekkert of há- tíðlega og leyfum okkur eins mikið rugl og við ráðum við. Þetta hefur síðan smitast til áhorfenda sem góð skemmtun,“ segir Kiddi þegar hann er spurður um galdurinn á bakvið aðsóknina á tónleikana þeirra. Baggalútur hefur yfirleitt gefið út ný lög með haustinu sem vekja athygli. „Í ár fundum við ítalskt lag sem einhverra hluta vegna fór framhjá Björgvini Halldórssyni. Við fengum leyfi til að nota það og gáfum út okkar útgáfu – Styttist í það.“ segir Kiddi og kímir. Eins og gefur að skilja þá er mikið annríki hjá Kidda þegar líður að jólum og fer fjölskyldan hans ekki varhluta af því. „Börnin mín þekkja ekkert annað en að ég sé að spila í Háskólabíói að spila á jólatónleikum og barnaafmæli hafa jafnvel verið haldin þar baksviðs, og börn okkar allra – við höfum leigt ísvél og spila- kassa til að hafa fjör og að börnum okkar finnst gaman að koma og hanga með okkur. Hópurinn sem er í Baggalút er samheldinn og gerði m.a. upp hús á Flateyri sem þeir sækja mikið í og deila jafnvel saman. „Börnin okkar þekkjast orðið mjög vel og hópurinn er þéttur.“ Margt í farvatninu á næsta ári en einnig háð heimsfaraldri Framundan á nýju ári er plata frá Ár- nýju, Ásgeiri Trausta og jafnvel hjá Hjálmum. „Síðan vonast ég eftir því að geta farið að ferðast aðeins. Ég var orðinn vanur því að hluti af árinu fór í tónleikaferðalög og hluti af því í stúdióið sem ég kunni vel við.“ Kiddi hefur einnig gefið út þrjár barnaplötur og það gæti vel verið að sú fjórða komi út á næsta ári. „Það góða við barnaplötur er að það eru engar reglur, þú þarft ekki að vera töff, bara samkvæmur sjálfum þér.“ Von er á nýjum þáttum af Hljóm- skálanum í janúar sem voru unnir síðasta sumar. „Þetta er fyrsta serían sem ég klippi sjálfur og leikstýri. Þetta var mjög lærdómsríkt ferli að koma inn í svona marga fleti í sjón- varpsgerðinni og líka mjög skemmti- legt. „Ég segi það mjög oft að ég ætli að gera rosa mikið en stundum gerist lítið, vinnan er bara þannig að stundum stendur sköpunin á sér og stundum flæðir allt út og heil plata fæðist á einum degi,“ sagði Kiddi að lokum. Kiddi blæs til sóknar með Baggalúti Ljósmyndir: Spessi Jón Hilmarsson ungo@simnet.is 86 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.