Víkurfréttir - 16.12.2021, Blaðsíða 10
Hefðir og fjölskylduvenjur móta jólin
og jólahaldið. Þessi tími, dimmasti
árstími hefur djúpa merkingu fyrir
okkur flest. Við segjum gjarnan að
þetta sé tími barnanna og það er
mikið til í því. Jólin eru þó tími okkar
allra og við fögnum hvert með okkar
hætti. Á Suðurnesjum var þess
löngum beðið að fjölskyldufeður
kæmu heim af sjó en þá fyrst hófust
jólin á mörgum heimilum. Í Keflavík
hefur alltaf verið mikil verslun og
er enn. Ég get rétt ímyndað mér að
það sé hluti af jólastemmningunni að
rölta Hafnargötuna, kíkja í búðir og
kaupa jólagjafirnar. Segja má að að-
ventan, þessi yndislegi upptaktur að
jólum, sé nú til dags hátíð út af fyrir
sig. Vinir og ættingjar koma saman á
köldum desemberdögum, gleðjast og
njóta samveru. Þannig á það að vera.
Líf okkar tekur stöðugum breyt-
ingum og jólin minna okkur oft á það
sem var, er ekki lengur og verður
aldrei aftur. Þessi tími er því erfiður
mörgum og þá sérstaklega þeim sem
eiga um sárt að binda. Hugurinn
leitar ósjálfrátt til þeirra sem misst
hafa ástvini á árinu og horfa nú til
hátíðanna með kvíðahnút í maga og
sorg í hjarta. En jólin gefa okkur líka
tækifæri til að heiðra minninguna
enda leitar hugurinn nær alltaf í
minningabankann á þessum árs-
tíma. Við leitumst við að endurskapa
minningar úr æsku okkar á hverju
einasta ári og endurupplifa liðna tíð
á fallegan máta.
Árið hefur verið viðburðarríkt í
mínu persónulega lífi. Það var mikil
ákvörðun fyrir mig að taka í upphafi
árs að gefa kost á mér í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör-
dæmi. Árangurinn varð eins og að
var stefnt og er ég ykkur öllum ævar-
andi þakklát fyrir ykkar hvatningu
og stuðning. Án þess væri ég ekki nú
þingmaður ykkar á hinu háa Alþingi.
Markmiðið er þó alltaf skýrt og það
er að vera öflugur fulltrúi Suðurkjör-
dæmis og ýta áfram þjóðþrifaverkum
fyrir kjördæmið, sem og landið allt.
Ríkisstjórn hefur verið mynduð og
mér hafa verið falin margvísleg trún-
aðarstörf fyrir Sjálfstæðisflokkinn
á þingi. Ríkisstjórnin hefur mótað
stefnu næstu fjögur árin þar sem
leiðarstefið er að efla atvinnulífið og
byggja upp nýjar atvinnugreinar sem
eru reistar á þekkingu og nýsköpun.
Við Íslendingar erum að koma mun
betur út úr efnahagsáfallinu sem
tengt er heimsfaraldri Covid19 og
því er ástæða til að horfa bjartsýn
fram um veg. Verkefnin eru áfram
ærin en við munum sjá sterkari og
betra samfélag á næstu árum, það er
bjargföst trú mín.
Kæru vinir. Nú gengur í garð tími
kærleika og vináttu. Njótum hans
saman. Ég óska ykkur öllum gleði-
legra jóla, árs og friðar.
Jólakveðja frá oddvita
Suðurkjördæmis
Guðrún Hafsteinsdóttir
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
NÝR VEITINGASTAÐUR Á BB HÓTEL - ÁSBRÚ
Take Off Bistro
Opið frá 18.00 til 21.30.
Happy hour kl. 18-19
Take Off Bar
- happy hour kl. 16-18.
OPIÐ ALLA DAGA.
VERIÐ VELKOMIN Á TAKE OFF BISTRO
FJÖLBREYTTUR OG LÉTTUR
BISTRO MATSEÐILL:
Kjúklingavængir
Hamborgarar
Svínarif
Nautalund
Djúpsteiktir blómkálsvængir
Fiskur og franskar
Kjúklingasalat
Sendum Suðurnesja–
mönnum okkar bestu
óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár
með þökk fyrir sam-
skiptin á árinu sem
er að líða.
10 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár