Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 79
Katarzyna Þóra Matysek er frá Póllandi og starfar sem kennari í Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Hún
á mann og þrjú börn sem eru tveggja og hálfs árs, níu ára og þrettán ára. Börnin elska íslensku jóla-
sveinana þrettán og fjölskyldan reynir að blanda saman menningu og taka allt það sem er frábært í
bæði íslenskri og pólskri jólamenningu.
Hvernig hagar þú jólagjafainn-
kaupum?
Ég reyni að nýta tækifæri þegar ég er
í Póllandi og ég kaupi eitthvað sem
er ekki hægt að kaupa á Íslandi, til
dæmis pólskar bækur, pólsk borðspil
eða eitthvað annað. Það er gaman
að finna eitthvað sérstakt. Flestir
gera þetta ef þau fara til útlanda og
sjá eitthvað skemmtilegt, það er eðli-
legt. Ég byrja frekar seint að versla
gjafir og ég hugsa ekki um þetta fyrr
en í október.
Á Íslandi kaupi ég alltaf lopa-
peysur, sokka, útiföt og íslenskar
bækur ef það er á jólalistanum. Ég
panta frekar á netinu bæði hér og úti.
Mér finnst ekki gaman að fara í
búðir þegar mikið af fólki er út um
allt. Ég er ekki IKEA eða „moll“
manneskjan. Ég fer frekar í des-
ember í smá bíltúra og göngutúra
til að skoða öll jólaljósin og allt jóla-
skrautið. Ef ég þarf að kaupa auka
gjafir fer ég stundum að versla í
Kringlunni en ekki mikið.
Hvað með jólaskreytingar, eru
þær fyrr í ár? Skreytir þú heimilið
mikið?
Fjölskyldan mín hefur oft sett
skreytingar upp í desember en núna
á þessu ári fannst mér gott að hafa
kósý og meiri birtu í lok nóvember.
Við erum búin að hengja upp jóla-
seríur en við ætlum að gera meira
rétt fyrir jólin þegar allir eru komnir
í frí. Við viljum ekki hafa of mikið
dót heima og það á einnig við um
jólaskraut. Okkur finnst smekklegra
að hafa ekki of mikið. Við perlum,
teiknum snjókorn, jólasveina, jóla-
kúlur til að hengja upp heima hjá
okkur. Þetta er heimagert skraut.
Jólatréð er aðalskrautið á heimilinu
okkar og að skreyta tréð er mikil-
vægast fyrir okkur. Jólatré er alltaf
sett upp rétt fyrir 24. desember.
Bakarðu fyrir jólin? Áttu þér uppá-
haldssmáköku?
Við bökum alltaf piparkökur. Þetta
er fjölskylduhefðin okkar og það
er alltaf gaman hjá okkur á þessari
stundu. Krakkarnir mínir mála og
skreyta smákökur en við bíðum
þangað til amma barnanna kemur
frá Póllandi. Sama með jólatréð
(við bíðum eftir henni). Amma
hefur ekki mörg tækifæri til að vera
með okkur daglega svo jólaundir-
búningur er okkar besti tími fyrir
samveru. Við syngjum og hlustum á
jólalög á pólsku og það er góð stund.
Við borðum ekki kjöt á aðfangadag,
heldur fisk, salat, pierogi, síld, súpu
og eitthvað sætt. Á jóladag eða
Gamlárskvöld eldum við oft eitthvað
séríslenskt eins og til dæmis lamba-
læri, hamborgarhrygg og kartöflur.
Hvernig er aðventan - hefðir þar?
Við tökum þátt í öllum atburðum
sem eru í boði í leik- og grunnskóla
barnanna fyrir jólin, einnig jólatón-
leikum þar sem börnin okkar stunda
nám í tónlistarskóla. Því miður
truflar Covid sumt af þessu, eins og
til dæmis áttum við núna að fara á
leikhússýningu en henni var frestað.
Það sem er jákvætt í þessum Covid
tíma finnst mér rólegir dagar sem
gefa okkur möguleiki á að njóta að
samveru heima með fjölskyldu að
elda, baka, föndra, spila og fara út ef
veður leyfir það Hveru eru fyrstu jólin sem þú
manst eftir? Áttu skemmtilega jóla-
minningu?
Ég man eftir jólum þar sem fjöl-
skyldan mín var alltaf saman og eftir
matinn á aðfangadag áttu öll börn að
fara út t.d. með afa og bíða þangað
til fyrsta stjarna sást á himninum.
Þetta var gert til að fanga athygli
barnanna á meðan foreldrar settu
jólagjafir undir jólatréð. Þetta var
mjög skemmtilegt.
Eftirminnilegasta jólagjöfin?
Ég sem barn fékk leikföng, föt og
bækur sem jólagjafir en ég man ekki
eftir neinu sérstöku, jú kannski eina
Barbie dúkku. Núna langar mig að
fá góðar bækur og góða íþróttaúlpu
í jólagjöf til að geta farið út að hlaupa
í vondu veðri.
Syngjum og hlustum
á jólalög á pólsku
og það er góð stund
K A T A R Z Y N A Þ Ó R A M A T Y S E K
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 79
Sendum viðskiptavinum okkar og
Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð
og farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin
á árinu sem er að líða!
Óðinsvöllum 11 • 230 Keflavík • Kt. 450986-1949 • VSK.nr. 9109
Banki: Íslandsbanki 0542-26-82
Borg
Gistiheimili
Leikskólinn Völlur
79