Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1929, Page 34
gengið upp á tindinn Rigi í Sviss; lýsir hann fagur-
lega hinum mikla mun á að komast upp á Rigitind-
inn, par sem ferðamaðurinn nýtur sömu þæginda og
í London eða Paris, sporbraut liggur niður i dalinn,
gufuferjur og eimreiðir eru á hraðri ferð allt í kring,
blómskraut fjallshlíðanna varpar gleðiblæ yfir um-
hverfið og jöklarnir sjálfir virðast lifna í skini kvöld-
sólarinnar — og Heklu, þar sem alvara og kyrrð
dauðans virðast ríkja, enginn fugl er á flögri, engin
hreyfing er á neinu, orðin af vörum fylgdarmannsins
vekja óhug, en sjálfur snjórinn, hreinn og hvítur,
töfrar. Ferðalýsingar Raumgarters hafa þótt svo góð-
ar, að úrvalskaflar hafa verið gefnir út í sérstakri
bók: Im hohen Norden (hjá Herder í Freiburg im
Rreisgau); í þeirri bók eru einnig nokkrar lýsingar
frá íslandi, Hekluför, dvöl við Geysi, Akureyri o. fl.
Baumgartner samdi rit um þýzka skáldið Lessing,
ágæta bók um Longfellow, rit um spænska skáldið
Calderon, um hollenzka skáldið Joost van den Vondel,
gaf út ferðabók um Skotland, sneri allri »Lilju« Ey-
steins Ásgrímssonar á þýzku og gaf hana út sérstak-
lega með ágætum inngangi og ýmis önnur rit hefir
hann samið, en á merkasta ritinu, sem átti að verða
og varð ævistarf hans, byrjaði hann 1891 og fékkst
við það til æviloka. Var það veraldar-bókmenntasaga
og ætlaði hann sér að lýsa af eigin sjón og reynd
bókmenntum allra menningarþjóða heims. Má það
vitanlegt vera, að hverjum manni er slikt risaverk
ofraun, enda lauk hann ekki við það. Ritsafnið átti að
heita Geschichte der Weltliteratur og átti að koma út
í 10 bindum, en hvert bindi að vera 6—700 blaðsiður
í allstóru broti. Hann gaf fyrst út tvö fyrstu bindin,
1. bindið um bókmenntir Vestur-Asíu og Nillandanna,
annað bindið um bókmenntir Indlands og Austur-
Asíu. Dm aldamótin bættust við tvö ný bindi, um bók-
menntir Grikkja og Rómverja í fornöld og um bók-
menntir Grikkja og Rómverja eftir Kristsburð. Hon-
(30)