Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 36
Hvernig var árið 2022 hjá þér og
þinni fjölskyldu og hvað stendur
upp úr?
„Árið er búið að vera mjög við-
burðarríkt. Það fer alltaf mikill tími
hjá okkur í hestamennskuna en við
förum í hesthúsið á hverjum degi.
Við ferðuðumst töluvert á árinu,
fórum til Ítalíu og Króatíu með
vinnufélögum og í hjólaferð við
Balatonvatn í Ungverjalandi með
saumaklúbbnum mínum og síðan til
Tenerife með góðum vinum. Þessar
ferðir voru allar frábærar á sinn hátt.
Hjólaferðin er eftirminnilegust þar
sem við vorum í einstökum félags-
skap Lukkutrölla og með frábæra
fararstjóra en það voru þau Anna
Lea og Brói sem skipulögðu ferðina
fyrir okkur.“
Ert þú mikið jólabarn?
„Já, já svona passlega.“
Hvenær er jólatréð yfirleitt sett
upp á þínu heimili?
„Við setjum jólatréð upp í kringum
20. desember.“
Hver eru fyrstu jólin sem þú manst
eftir - áttu einhverjar skemmtilegar
jólaminniningar?
„Ég man sérstaklega eftir jólaballi
Íslenskra aðalverktaka sem amma
Halla bauð okkur alltaf á þegar ég
var barn. Það voru alveg sérstaklega
vegleg og eftirminnileg jólaböll, man
samt aðallega eftir því hvað nammi-
pokinn var stór.
Síðan er skemmtileg minning
frá aðfangadegi. Gunni fór með
krakkana að sækja jólapakkana
og keyra út jólakortin en ég var
heima að elda hamborgarhrygginn
og gera og græja. Þegar krakkranir
komu síðan heim var Gunnhildur
dóttir mín heldur betur glöð þegar
hún fann matarlyktina í húsinu og
hrópaði: Loksins eru bjúgu í matinn.“
En skemmtilegar jólahefðir?
„Við stórfjölskyldan hittumst á að-
ventunni hjá foreldrum mínum og
og skreytum piparkökur og gerum
stundum piparkökuhús. Fáum okkur
heitt súkkulaði og góðar kræsingar.
Síðan hittumst við líka og bökum
saman sörur.“
Hvenær klárar þú að kaupa jóla-
gjafirnar?
„Það er bara allur gangur á því, fer
eftir því hvað ég er hugmyndarík.
Núna á ég líklega eftir að kaupa
helminginn af gjöfunum en veit
ekkert hvað ég á að kaupa.“
Hvað finnst þér vera ómissandi á
jólunum?
„Við fjölskyldan erum öll saman á að-
fangadagskvöld og ég get eiginlega
ekki hugsað mér jólin án barnanna.
Jólin hjá okkur byrja klukkan sex
þegar kirkjuklukkurnar á Ruv hringja
inn jólin. Þá knúsumst við og óskum
hvort öðru gleðilegra jóla.“
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin
sem þú hefur fengið?
„Það er klárlega bílskúrshurðaopnari.
Hver gefur dóttur sinni bílskúrs-
hurðaopnara í jólagjöf? Hann kom
reyndar að góðum notum loksins
þegar hann var settur upp og virkar
enn í dag, tuttugu og eitthvað árum
seinna.“
Er eitthvað á óskalistanum fyrir
jólin í ár?
„Nei það held ég ekki.“
Hvað verður í jólamatinn hjá þér
á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í
mat?
„Við erum alltaf með hamborgar-
hrygg á aðfangadag og heimatilbúinn
ís í eftirrétt. Krakkarnir mega ekki
heyra á það minnst að hafa eitthvað
annað í matinn.“
Hvað ætlar þú að gera í kringum
jólahátíðina í ár?
„Ég ætla bara að njóta þess að vera
í kærkomnu fríi ásamt því að fara í
ræktina og í hesthúsið og hitta ætt-
ingja og vini.“
ÆÐISLEGT AÐ MOKA SKÍT OG FARA
Á HESTBAK Í LOK VINNUDAGS
Helga Hildur Snorradóttir er með jólahefðir, skreytir piparkökur og bakar sörur.
„Það er æðislegt að fara á
hestbak í lok vinnudags, mæta
í hesthúsið, moka skít og fara
svo á bak. Það er mjög gefandi
að vera með dýrunum. Þau eru
mjög næm,“ segir Helga Hildur
Snorradóttir, skólastjóri Holta-
skóla í Reykjanesbæ.
Helga Hildur og Gunnar Eyjólfs-
son, maður hennar, eru mikið
hestafólk og líf þeirra snýst
mikið um hesta og hesta-
mennsku. Helga segir að ný
reiðleið í bæjarfélaginu, svo-
kallaður trippahringur, hafi
verið lýst upp og komi sér vel
á dimmari tímum. „Svo erum
við líka með góðar reiðleiðir á
Mánagrund og ekki má gleyma
reiðhöllinni okkar,“ segir Helga
sem svarar hér jólaspurningum
Víkurfrétta.
Helga Hildur tók
þessa mögnuðu
mynd þegar þau
hjónin riðu út á
aðventunni.
Helga Hildur og Gunnar kunna
best við sig á hestbaki.
36 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum