Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 42
það var strákur ákváðum við að ef
seinna barnið yrði stelpa þá myndi
hún heita því nafni – en svo eftir
þessi símtöl litum við á hvort annað
og sögðum bæði: „Er þetta kannski
bara Freyja?“ og þá sagði pabbi
hennar: „Freyja Mist.“ Þá var það
eiginlega ákveðið þarna á fæðingar-
deildinni. Okkur fannst það passa
vel við hana, pabbi hennar heitir
líka Gylfi Freyr og hann tekur einn á
móti henni og hún fæðist á Freyju-
völlum – æskuheimilinu mínu.
Þannig að þetta var eiginlega
skrifað í skýin, hún valdi sér þetta
nafn,“ segir Gunnhildur.
Og svo varð úr, Freyja Mist var
skírð í húsinu sem hún fæddist,
á Freyjuvöllum og kom það fáum
á óvart þegar nafnið var tilkynnt.
„Það voru nokkrir búnir að giska á
að hún myndi heita Freyja, þegar við
tilkynntum svo nafnið hennar hátt
og skýrt fóru margir að hlæja,“ segir
Gunnhildur.
Ótrúleg tilviljun,
eða örlög?
Sumir myndu telja það vera
magnað að faðirinn heitir Gylfi
Freyr og að hún hafi fæðst og
verið skírð á Freyjuvöllum en
þar með er sagan ekki öll. Hálfu
ári eftir að Freyja Mist kom í
heiminn komst Gunnhildur að því
að önnur af lögreglukonunum sem
fóru í útkallið á Freyjuvellina 11.
júlí heitir Freyja Mist. „Nokkrum
mánuðum seinna var ég að labba
með strákinn okkar á leikskólann
og hitti eina mömmu sem er lög-
reglukona. Ég fór að spjalla við hana
og hún spyr hvort ég viti hvað lög-
reglukonan heiti sem kom í útkallið
þegar Freyja Mist okkar fæddist
og ég hafði ekki hugmynd. Þá
sagði hún mér að hún heiti
Freyja Mist. Mér finnst þetta
svo magnað og ótrúlegt – að
við höfum ákveðið að hún
myndi heita Freyja út
af því að hún fæddist á
Freyjuvöllunum og Gylfi
Freyr tók á móti henni
og síðan heitir lögreglu-
konan sem fór í útkallið
nákvæmlega sama nafni,
Freyja Mist.“
Aðspurð hvort Freyjurnar
hafi hist og hvort lögreglu-
konan viti af nafngiftinni
segir Gunnhildur: „Þær eru
búnar að hittast, fyrir tilviljun.
Árni Freyr (leggur áherslu á
nafnið Freyr), vinur minn, er
lögreglumaður og hann og Freyja
Mist voru að keyra inn Freyjuvellina
(leggur aftur áherslu á Freyju) þegar
ég var úti að labba með Freyju litlu
í vagninum. Þau stoppuðu til að
spjalla smá við okkur og ég sagði
henni frá þessu. Þá var hún víst búin
að heyra þetta en það var gaman að
þær skyldu hafa hist. Henni fannst
þetta líka magnað og mjög skemmti-
legt.“
Hún er bara algjör Freyja
„Okkur þykir vænt um þessa sögu og
fyrst að allt fór vel þá finnst okkur
þetta æðisleg minning,“ segir Gunn-
hildur. Freyja Mist kom með hraði
í heiminn og nú einu og hálfu ári
síðar er hún „óttalaus og öflug“ að
sögn móðurinnar. „Hún er ótrúlega
dugleg og sterkur karakter. Hún er
frekar róleg en hendir sér í allt. Hún
á kröftugan, stóran bróður en hún
gefur ekkert eftir – sem passar svo
vel við nafnið hennar. Það er gaman
að segja frá því að merking nafnanna
Freyja og Gunnhildur er svolítið
sambærileg; sterk kona. Þetta nafn
á ótrúlega vel við hana, hún er bara
algjör Freyja.“
Sendum íbúum allra sveitarfélaga á
Reykjanesi okkar bestu jóla- og nýárskveðjur.
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Það voru
nokkrir
búnir að giska á að
hún myndi heita
Freyja, þegar við
tilkynntum svo
nafnið hennar
hátt og skýrt fóru
margir að hlæja ...
Freyja Mist og Gunnar Elís
saman við jólatréð.
42 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum