Víkurfréttir - 15.12.2022, Síða 55
www.airportassociates.com
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Eftirminnilegasta jólagjöf sem Hjörvar hefur fengið var flug-
miði til London til að fara á tónleika með uppáhaldsrapparanum
sínum. Hann segist vera algjört jólabarn og þykir það skemmti-
legasta við jólin vera að verja tíma með fjölskyldunni og að gefa
gjafir.
Hvað stendur upp úr hjá þér árið 2022?
Það sem stendur upp úr hjá mér er þegar við
strákarnir fórum á Gothia Cup í Svíþjóð það var
geggjað, ógeðslega heitt en geggjað fótboltaveður.
Við fórum að versla og alltaf jafn gaman uppi á
hóteli þar sem ég var með Danna og Hirti í her-
bergi og þeir eru algjörir sprellarar.
Ert þú mikið jólabarn?
Ég er algjört jólabarn, ég elska jólin og það er svo
gaman að gefa gjafir, opna gjafir og borða geggj-
aðan mat. Svo auðvitað jólatónlistin og besta er
að fá að vera með fjölskyldunni.
Hvað er það skemmtilegasta við jólin að þínu
mati?
Það skemmtilegasta er að vera með fjölskyldunni
og þegar maður gefur pakka og viðkomandi
verður ánægður með hann.
Átt þú einhverjar skemmtilegar jólaminn-
ingar?
Þegar Jenný systir mín gaf mér ferð til London
á tónleika hjá uppáhaldsrapparanum mínum þá
sem var Lil Mosey.
En skemmtilegar jólahefðir?
Ég held það sé bara möndlugrauturinn, hann
klikkar ekki. Mamma gerir besta mjólkurgrautinn.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú
hefur fengið?
Ferðin frá systur minni til London, hún var
geggjuð -tónleikar, McDonalds, versla og allur
pakkinn.
Hvað er á óskalistanum þínum fyrir jólin í ár?
Rakspíri, föt, nýir skór, eyrnalokkar, hátalari
til þess að fara með í keppnisferðir og tennis
bracelet.
Hvað er í matinn hjá þinni fjölskyldu á að-
fangadag?
Hamborgarhryggur og hnetusteik með allskonar
meðlæti.
Hvað ætlar þú að gera í kringum jólahátíðina
í ár?
Ég ætla fyrst og fremst að hafa gaman, hitta vini
og fjölskyldu, spila með fjöllunni og taka auka
æfingar í fótboltanum auðvitað.
Sælla er að
gefa en þiggja
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
H
jö
rv
ar
H
ug
i H
an
ne
ss
on
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum // 55