Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 12
Brons er nýr sportbar sem hefur
opnað við Sólvallagötu 2 í Keflavík
í húsnæði þar sem Bókabúð Kefla-
víkur var til margra áratuga. Eig-
endur eru Blue bræðurnir og fjöl-
skyldur þeirra, Magnús Sverrir og
Þorsteinn Þorsteinssynir í Blue Car
rental bílaleigunni.
Formleg opnun var síðasta
föstudag en framkvæmdir hafa
staðið yfir síðustu mánuði og í raun
lengur því aðrir aðilar voru komnir
langt með staðinn þegar Blue eða
Brons bræður sáu tækifæri í því að
kaupa hann.
Framkvæmdum er ekki lokið því
eftir áramót verður opnaður veit-
ingastaður þar sem boðið verður
upp á létta rétti, einnig verður út-
búið karaókíherbergi og annar
„lounge“ salur verður opnaður.
Á Brons er pílan eitt aðalaðdrátt-
araflið en slíkir staðir hafa notið
vinsælda í höfuðborginni. Einnig
er hægt að fylgjast með íþróttavið-
burðum á sjónvarpskjám. Að sjálf-
sögðu er bar þar sem í boði eru allir
helstu drykkir. Annar bróðirinn,
Þorsteinn eða Steini Blue, fékk nú
nafnið Steini „brons“. Hann sagði frá
því að sögnin „að bronsa“ væri alkefl-
vísk en þýðir auðvitað að halda fót-
bolta á lofti.
„Þetta er svona róleg opnun getum
við sagt því við eigum eftir að bæta
verulega í á staðnum, ekki síst með
opnun veitingastaðar. Við vonum að
bæjarbúar eigi eftir að koma og njóta
veitinga og afþreyingar á nýjum stað.
Það má segja að Brons sé góð viðbót
í flóru veitinga- og skemmtistaða á
svæðinu. Eitthvað nýtt og skemmti-
legt fyrir samfélagið,“ sagði Magnús
Sverrir í spjalli við Víkurfréttir sem
mættu á formlega opnun en þar voru
meðfylgjandi myndir teknar.
BRONS Í GÖMLU BÓKABÚÐINNI Í KEFLAVÍK
Bronsfólkið! Magnús og
Þorsteinn Þorsteinssynir, Guðrún
Sædal Björgvinsdóttir og Elísa
Ósk Gísladóttir. VF-myndir/pket
Fjölmargir vinir og ættingjar
voru í opnunarhófinu á
Brons. Sumir rifu í pílu.
Séð inn í hluta húsnæðis Brons.
Mynd/Davíð Már
12 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum