Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 68
Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Reykjanesbær fokkar í rokkinu
Það setti að mér mikil ónot þegar
ég las fundargerð bæjarráðs frá 24.
nóvember síðastliðinum þar sem lagt
er til að Bókasafn Reykjanesbæjar
verði flutt í aðstöðu Rokksafnsins og
því fundinn annan staður. Tillagan
er liður í því að Hljómahöll verði
menningarhús Reykjanesbæjar til
framtíðar. Lesendum og bæjarráði
til upplýsingar þá er Hljómahöllin
veglegt menningarhús nú þegar sem
sómi er að. Þegar lagt var í þá veg-
ferð að koma Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar í framtíðarhúsnæði og
byggja við Stapann þá fléttaðist inn
sú hugmynd að koma þar upp rokk-
safni. Hugmyndin að safninu byggði
á þeim litla safnvísi sem komið var
upp á Glóðinni seint á síðustu öld og
fylgdi faðir minn, Rúnar Júlíusson,
henni eftir allt frá því að Glóðinni
var lokað. Samlegðin af þessum
þremur verkefnum þótti þó nokkur
og var tekin skóflustunga að Hljóma-
höllinni í janúar 2008. Draumurinn
varð þó ekki að veruleika fyrr en í
apríl 2014. Það sýndi sig fljótt að
menningarhúsið hleypti miklu lífi í
samfélagið og hafa fjölmargir gestir
lagt leið sína á safnið og sótt ótal
viðburði í Hljómahöllina. Svo ekki
sé minnst á tónlistarskólinn sem er
með þeim glæsilegri á landinu og
væri efni í aðra grein.
Eins og ljóst er þá er ég ekki alveg
hlutlaus en það er svo margt sem er
rangt við þá hugmynd að færa bóka-
safnið í Hljómahöllina. Húsið var
teiknað með hliðsjón af því hlutverki
sem það átti að gegna. Það er að vera
heimili tónlistarinnar. Á sama stað
hefðum við grasrótarstarfið í skól-
anum, söguna til að minna okkur á
og viðhalda arfinum og einnig að
vera lifandi vettvangur fyrir fjöl-
breytt samkomuhald. Það að bæta
bókasafni við gengur illa upp fyrir
það fyrsta vegna þess að reglulega
eru samkomur sem hafa í för með
sér ónæði og hávaða í mismiklum
mæli. Tónlistarskólinn gengur síðan
út á að blásið sé í hljóðfæri eða þau
strokin og gefa frá sér hljóð sem
kemur kannski einhverjum á óvart.
Meginreglan hingað til hefur verið
að hæfilegt næði sé á bókasöfnum
þó mikið hafi lifnað yfir þeim í seinni
tíð. Enda finnst mér alveg ómögulegt
að vera etja þessum tveimur stór-
góðu menningarstofnunum saman
í samkeppni um húsnæði. Það er
eitthvað svo rangt – en framtíð bóka-
safnsins og aðstaða þess er efni í enn
aðra grein.
Ég hef tekið á móti mörgum
hópum á Rokksafninu og hafa allir
tjáð ánægju sína yfir safninu og
húsinu öllu og þykir mikið til koma.
Margir þessara hópa hafa gagngert
heimsótt bæinn okkar til að kíkja á
safnið enda var hugmyndin líka að
draga til okkar gesti með þessari að-
stöðu. Nær undantekningalaust hafa
hóparnir dvalið lengur og fengið sér
að borða á veitingastöðum bæjarins
sem hefur fjölgað og bætt sína þjón-
ustu til muna síðustu árin. Hróður
safnsins hefur borist víða því á degi
íslenskrar tónlistar fékk Rokksafnið
sérstaka viðurkenningu, Gluggann,
fyrir „að halda úti heimili íslenskrar
tónlistar í Reykjanesbæ með hug-
myndaríku safni og fjölbreyttri tón-
listardagskrá undanfarin ár“. Bóka-
safnið hefur ekki sama aðdráttarafl
fyrir gesti þó mér finnist það frábært
og veiti okkur bæjarbúum fyrir-
myndarþjónustu.
Það sem vekur síðan mikla furðu
er að þeir sem leggja fram þessa
tillögu hafa ekkert verið að heyra í
bæjarbúum vegna þessa en töluðu
hvað hæst um íbúasamráð og íbú-
akosningar í aðdraganda sveitar-
stjórnarkosninga. Nú er hvorki talað
við kóng né prest, jafnvel þó jarða
eigi Rokksafnið. Fullyrt er að safnið
hafi ekkert aðdráttarafl og síðustu
ár nefnd sem dæmi. Þá væri gott að
skoða við hvaða aðstæður safnastarf
fór fram í heimsfaraldrinum. Í mínu
starfi er ég í miklum tengslum við
öll söfn á landinu og ekkert þeirra
hefur farið varhluta af veirunni. Það
tekur tíma að koma safni á kortið og
Rokksafnið okkar er rétt búið að slíta
barnsskónum. Er aðeins átta ára og
var síðustu tvö ár á sjúkrahúsi.
Nefnt hefur verið að safnið sé
ekki lögbundið hlutverk og er það
rétt en safnastarfið er í fullum sam-
hljómi við menningarstefnu hins
opinbera sem og menningarstefnu
Reykjanesbæjar auk nýrrar tónlistar-
stefnu sem nú liggur fyrir Alþingi. Í
þessum stefnum er rík áhersla lögð á
að mennta þjóðina í listum og menn-
ingu og auka aðgengi almennings að
menningararfinum. Og þar sem við
á Suðurnesjum lögðum mikið af
mörkum í tónlistararfinn þá skulum
við ekki slá hljóm Rokksafnsins úr
Hljómahöllinni.
Það eina sem ég bið um áður en
lengra er haldið er að kíkja aðeins út
úr bergmálshellinum, taka púlsinn
á bæjarbúum og tengdum aðilum,
skoða málið frá ýmsum hliðum og
setja Rokksafnið ekki í einhverja
óvissu.
Baldur Þ. Guðmundsson,
sérfræðingur í menningar-
og viðskiptaráðuneytinu.
Höfundur greinar stendur við veggspjald
í Rokkhöllinni þar sem föður hans
er minnst. Mynd úr safni Víkurfrétta
Okkar hjartkæra
HALLDÍS S. THORODDSEN
andaðist á Karolínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi
miðvikudaginn 7. desember.
Jórunn Tómasdóttir Skúli Thoroddsen
Erik Ribeli
Jón Fjörnir Thoroddsen Eloise Freygang
Bolli Thoroddsen Ásta Sigríður Fjeldsted
Bryndís Stefánsdóttir og bræðrabörn.
Ástkær eiginmaður minn , faðir, tengdafaðir og afi
HREINN INGÓLFSSON
bifreiðarstjóri
Framnesvegi 20–22 , Keflavík
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 6. desember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 16. desember klukkan 12.
Eygló Óskarsdóttir
Styrmir Magnússon Ólöf Birna Björnsdóttir
og barnabörn.
Sendum þér og þínum bestu óskir um
gleðileg jól
og farsæld á komandi ári
Úrslit leikja og fréttir af íþróttaviðburðum á
Suðurnesjum birtast reglulega á vefnum
vf.issport
68 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum