Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 22
Gleðilega hátíð
og farsælt
komandi ár
með þökk fyrir
ánægjulegt
samstarf
á árinu sem
er að líða.
Gleðilega hátíð
Emma Geirsdóttir er aðfluttur Grindvíkingur en ólst upp á Akureyri. Hún
hefur verið virk í félagsstarfi Grindvíkinga síðan hún fluttist í bæinn árið
1999, t.d. í Kvenfélaginu og er í Þórkötlu sem er kvennadeild björgunar-
sveitarinnar Þorbjörns. Hún hefur alltaf verið mikið jólabarn og eftir-
minnilegasta jólagjöfin er klárlega gjöf sem leit út fyrir að verða glötuð
en breyttist í yndislegustu gjöfina.
Hvernig var árið 2022 hjá þér og
þinni fjölskyldu og hvað stendur
upp úr?
Árið 2022 er búið að vera við-
burðaríkt hjá mér og mínum manni,
við byrjuðum árið á að fá covid og
vorum að taka íbúðina í gegn hjá
okkur, brjóta, bramla og mála svo
það var bara verkjatafla og halda
áfram. Við eigum þrjú börn og komu
þau öll með barn á árinu, í febrúar,
mars og maí svo árið er búið að
vera yndislegt hjá mér og minni fjöl-
skyldu.
Ert þú mikið jólabarn?
Já ég er mikið jólabarn og nýt þess
að skreyta allt hátt og lágt hjá mér.
Hvenær er jólatréð yfirleitt sett
upp á þínu heimili?
Venjulega fer tréð upp í fyrstu viku
desember hjá mér en núna var það
sett upp 6. nóvember og all skrautið
líka. Við vorum með jólaboð um
miðjan nóvember svo allir kæmust.
Hver eru fyrstu jólin sem þú manst
eftir - áttu einhverjar skemmtilegar
jólaminningar?
Ég var þriggja, að verða fjögurra
jólin 1975, þá uppgötvaðist á Þor-
láksmessu að allt laufabrauðið væri
ónýtt svo við stórfjölskyldan fórum
í að gera nýtt laufabrauð, um 500 til
600 kökur.
En skemmtilegar jólahefðir?
Þegar við förum í laufabrauð þá
finnst mér jólin vera að koma.
Hvenær klárar þú að kaupa jóla-
gjafirnar?
Oftast er ég búinn í byrjun desember
en núna fór ég til Ameríku og kláraði
allt þar í enda nóvember.
Hvað finnst þér vera ómissandi á
jólunum?
Góð stund með fjölskyldunni og
horfa á fallega jólamynd.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin
sem þú hefur fengið?
Eftirminnilegasta jólagjöfin var
þegar bóndinn ætlaði að vera voða-
lega fyndinn og gaf mér bón- og
þrifpakka fyrir bílinn sem var í
glærri tösku. Ég var ekki voðalega
ánægð með hann og neitaði að skoða
pakkann betur og á jóladagskvöld
opnaði ég hann svo hann myndi
hætta að stæra sig af fína bónsettinu,
þá leyndist þar demantshringur sem
ég vissi ekki af.
Er eitthvað á óskalistanum fyrir
jólin í ár?
Nei einginn óskalisti ég er ánægð
með allt nema bílabón
Hvað verður í jólamatinn hjá þér
á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í
mat?
Ég verð með Hamborgarhrygg sem
er alltaf hjá mér ég ólst upp við það
og held í þá hefð.
Hvað ætlar þú að gera í kringum
jólahátíðina í ár?
Ég ætla að vera heima að hafa það
rólegt um jólinn og hitta fjölskylduna
og barnabörninn
Emma Geirsdóttir
Bón- og þrif-
pakkinn breyttist
í demantshring
22 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum