Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 24
Hvernig og hvenær lá leið Suður-
nesjakonunnar í Flensborgar-
skólann?
Ég hóf störf við Flensborgarskólann
árið 2016. Þá hafði ég verið kennari
við hinn dásamlega Myllubakka-
skóla í tíu ár og langaði að breyta til
og stíga aðeins út fyrir þægindaram-
mann. Flensborg auglýsti eftir félags-
greinakennara og þar sem ég er með
BA próf í stjórnmálafræði fannst mér
það spennandi og ákvað að sækja
um. Ég hef kennt m.a. félagsfræði,
stjórnmálafræði, fjölmiðlafræði og
vísindaleg vinnubrögð ásamt því að
hafa umsjón með nýnemum í áfanga
sem við köllum Hámark. Ég tók að
mér fagstjórn í félagsvísindum eftir
nokkur ár í starfi og endaði svo á
því að leysa af sem aðstoðarskóla-
meistari frá því í ágúst 2020. Af-
leysingin átti að vara í 6 mánuði
en dróst á langinn en það var svo í
lok nóvember sem ég fékk formlega
ráðningu eftir nokkurra vikna um-
sóknarferli.
Hver eru helstu verkefni aðstoðar-
skólameistara Flensborgarskólans?
Verkefnin eru ansi mörg og fjöl-
breytt. Það er í mörg horn að líta í
framhaldsskólunum og mikið um
að vera flesta daga. Ég vinn í miklu
samstarfi við skólameistara alla daga
og er staðgengill hans. Verkefnin eru
fjölmörg allt frá því að sinna nem-
endamálum og því sem upp kemur
í daglegum störfum yfir í að sinna
innra mati, mætingarmálum, starfs-
mannamálum, áætlana- og skýrslu-
gerð, teymisstörfum og allt þar á
milli. Svo fæ ég líka aðeins að kenna
en ég held utan um útskriftarefnin á
síðustu önninni sinni og styð við þau
á lokasprettinum í námi. Það er alltaf
skemmtilegasti hlutinn við starfið,
að styðja við og efla nemendur í því
sem þau eru að fást við.
Skólinn á sér langa sögu, hverjar
eru helstu áherslur í dag?
Já, skólinn á ansi langa sögu sem
skólastofnun og er með elstu starf-
andi skólum á Íslandi þó skólastarfið
hafi breyst í gegnum tíðina. Hann var
upphaflega stofnaður sem barnaskóli
árið 1877 en var breytt í „alþýðu- og
gagnfræðaskóla“ fimm árum síðar,
árið 1882, og aldur skólans er mið-
aður við það. Við fögnuðum 140
ára afmæli skólans núna í haust en
hann hefur verið fjölbrautaskóli
síðan árið 1975. Skólinn er áfanga-
skóli en nýnemar eru hins vegar í
bekkjarkerfi á fyrsta námsárinu sínu
áður en þeir fara út í áfangakerfið.
Bekkjarkerfið er skólaþróunarverk-
efni sem snýr að því að halda enn
betur utan um nýnemana, gæta að
vellíðan þeirra, efla námsmenn-
ingu og auka skuldbindingu þeirra
í námi. Við tókum fyrstu skrefin í
þessu verkefni á meðan heimsfar-
aldur gekk yfir og við vildum eiga
möguleika á því að kenna nýnemum
í húsi ef aftur kæmi til fjöldatak-
marka. Verkefnið hefur svo þróast
og er núna tilraunaverkefni hjá
okkur og þykir spennandi nálgun.
Við bjóðum upp á stúdentspróf á
hefðbundnum bóknámsbrautum auk
þess sem nemendur geta valið sér-
svið. Íþróttaafrekssviðið er vinsælt
en um 200 nemendur hjá okkur eru
íþróttaafreksmenn og margir hverjir
sterkir í sinni grein hvort sem það er
sund, fótbolti, handbolti eða aðrar
greinar. Við erum líka forystuskóli
um heilsueflandi framhaldsskóla og
í íþróttabænum Hafnarfirði svo það
er kannski ekki skrýtið að íþróttaaf-
rekssviðið sé vinsælt.
Hvað með Keflvíkinginn Júlíu og
fjölskyldu hennar, býr hún ekki enn
í heimabænum og gerir og græjar
eitthvað suður með sjó?
Jú, svo sannarlega er ég enn í
Keflavík og líklega þyrfti mikið til
að ná mér þaðan. Það er svo gott
að vera heima og er viðurkenni það
að þegar ég renni inn í bæinn í lok
vinnudags kemur stundum pínu
hlýja í hjartað yfir því að vera komin
aftur í bæinn minn. Mér finnst svo
gott að vera í Keflavík þó ég gæti
nú eflaust þrifist annarsstaðar líka.
Hér er fólkið mitt auðvitað, foreldrar
mínir, hluti tengdafjölskyldunnar
og dásamlegu vinkonur mínar. Við
höfum stöku sinnum rætt flutning,
ég og Helgi maðurinn minn. Hann
vinnur í Grindavík svo við erum
bæði í keyrslu sem er kannski ekki
endilega ákjósanlegt. Allar hug-
myndir um flutning hafa þó fallið um
sjálfa sig. Við keyptum fyrr á árinu
hús foreldra minna sem við erum svo
ánægð með svo líklega yrði erfitt að
fara þaðan. Krakkarnir eru í skólum
í Keflavík, FS og Heiðarskóla, og
bæði á fullu í fótboltanum svo allir
eru sáttir í sínu.“
Farin að kunna vel við Hafnfirðinga
Keflvíkingurinn Júlía Jörgensen er aðstoðarskólameistari Flensborgarskólans í Hafnarfirði
„Ég er mjög ánægð með að hafa
fengið formlega ráðningu, þetta
er skemmtilegt starf og góður
vinnustaður og ég er meira að
segja farin að kunna vel við
þessa Hafnfirðinga. Það er
verst hvað þeir eru allir hand-
boltasjúkir, þar er ég alls ekki
á heimavelli,“ segir Keflvíking-
urinn Júlía Jörgensen en hún var
nýlega ráðinn aðstoðar skóla-
meistari Flensborgarskólans í
Hafnarfirði.
..ég viðurkenni
að þegar ég
renni inn í bæinn
í lok vinnudags
kemur stundum
pínu hlýja í hjartað
yfir því að vera
komin aftur í
bæinn minn. Mér
finnst svo gott að
vera í Keflavík..
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Júlía við útskrift í Flensborgarskólanum.
Sendum öllum Suðurnesjamönnum
bestu jóla - og nýárskveðjur,
þökkum fyrir viðskiptin á árinu
Fjölskyldan saman komin, Júlía, Helgi og börnin Ottó og Þórunn Elfa.
24 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum