Víkurfréttir - 15.12.2022, Qupperneq 69
Það styttist óðfluga í jólin og ennþá
ber ekkert á snjónum sem við öll
viljum hafa yfir hátíðirnar. Mun
jólalegra að hafa hvít jól en rauð jól.
Tíðin núna í desember er búin
að vera óvenjulega góð og eins og
sagt var frá í síðasta pistli þá hafa
handfærabátarnir getað róið núna
í desember og vekur það nokkra at-
hygli. Þegar þessi pistill er skrifaður
er þónokkur fjöldi af færabátum við
veiðar í Röstinni.
Einn af þeim bátum sem þarna
eru við veiðar er Guðrún GK sem
Sævar Baldvinsson er skipstjóri á.
Sævar er búinn að eiga feikilega
gott ár á færunum, það gott að núna
er hann næstaflahæsti handfæra-
bátur landsins – og er ekki nema um
sextán tonnum á eftir báti sem er
gerður út frá Hornafirði. Sá bátur
heitir Sævar SF.
Guðrún GK er búin að róa
nokkuð duglega núna í desember
á meðan að Sævar SF er ekki eins
mikið búinn að róa og því verður
fróðlegt að sjá hvort Sævar nái
Sævari SF.
Annars eru svo til flestir bátanna
komnir suður. Einhamarsbátarnir
Gísli Súrsson GK og Vésteinn GK
eru komnir suður – og Hulda GK.
Eftir eru þá Geirfugl GK, Óli á Stað
GK og Gulltoppur GK en þeir eru
allir fyrir norðan.
Veiði línubátanna er búin að vera
mjög góð, t.d. er Dúddi Gísla GK
með 33 tonn í sex róðrum, Sævík
GK 50,2 tonn í sjö, landað í Sand-
gerði og Grindavík, Margrét GK 50
tonn í átta í Sandgerði, Daðey GK
46 tonn í sex í Grindavík og Sand-
gerði, Hulda GK fimmtán tonn
í fjórum, Hópsnes GK 22 tonn í
fimm, Geirfugl GK 17 tonn í fjórum
á Siglufirði, Katrín GK 14,3 tonn í
þremur í Sandgerði og Gulltoppur
GK tólf tonn í þremur á Skaga-
strönd.
Núna er Erling KE hættur á
netaveiðum og núverandi Erling
KE hefur lokið hlutverki sínu fyrir
Saltver ehf. – og í raun hérna á
landinu því líklega fer hann í brota-
járn. Á meðan verður nýi Erling KE
gerður klár til veiða en hann mun
hefja veiðar eftir áramótin og sam-
kvæmt því sem ég hef heyrt þá líst
mönnum mjög vel á nýja bátinn.
Nýi Erling KE er reyndar um sex
metrum styttri en núverandi Er-
ling KE en á móti kemur að hann er
þremur metrum breiðari og dekkið
er á tveimur hæðum. Sömuleiðis þá
eru íbúðir og matsalur mjög rúm-
góðar og stórar.
Grímsnes GK er ennþá að eltast
við ufsann og kom með 12,2 tonn
til Þorlákshafnar í einni löndun.
Maron GK með 16,7 tonn í þremur
og Halldór Afi GK 12,1 tonn í
þremur og mest 9,1 tonn sem er nú
svo til fullfermi hjá bátnum.
Maron GK og Halldór Afi GK hafa
að mestu verið með netin sín við
Garðskagavita og þar hefur neta-
báturinn Kap VE verið líka við
veiðar en hann veiðir í sig og siglir
svo til Vestmannaeyja með aflann.
Kom þangað með 60 tonn í einni
löndun. Kap VE hefur reyndar
siglt inn til Keflavíkur og legið og
lesendur hafa örugglega tekið eftir
Kap VE þar.
Eitt sem vekur athygli núna
undir lok ársins, og það er kannski
ekki það skemmtilegasta að horfa á,
en svo til allar einstaklingsútgerðir
eru að hverfa. Núna er aðeins einn
línubátur að róa frá Suðurnesjum
sem ekki tengist stóru útgerðinum.
Er það Dúddi Gísla GK sem er í eigu
fjölskyldufyrirtækis í Grindavík.
Það eru jú bátar á færum en
enginn á línu sem mætti kalla ein-
staklings- eða fjölskylduútgerðir,
þetta er mikil breyting frá því sem
var eitt sinn.
Þetta er síðasti pistill fyrir jólin
og vil ég því óska lesendum gleði-
legra jóla og farsæls komandi nýs
árs.
aFlaFrÉttir á suÐurNesJum
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Einstaklings-
útgerðir að
hverfa
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum // 69
Sendum viðskiptavinum okkar og
Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð
og farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin
á árinu sem er að líða!
Flísa- og múrþjónusta
Gunnars
Gröfuþjónusta
P. Gíslasonar
69