Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 34
Rafbrauð og jólaveitingar í
Bílakjarnanum og Nýsprautun
Rafbrauð á fjórum hjólum og ljúfar
veitingar voru í jólaboði Bílakjarnans
og Nýsprautunar í byrjun desember.
Sverrir Gunnarsson og hans fólk tók
á móti viðskiptavinum og sýndu á
sama tíma nýjustuDIS. Buzz Pro
og ID. Buzz Cargo rafbílana frá
Volkswagen.
„Þetta eru skemmtilegar rafbíla
nýjungar frá Volkswagen. Gamla rúg-
brauðið komið í rafmagn og heitir þá
bara rafbrauð,“ sagði Sverrir.
Þessir nýju VW rafbílar vöktu at-
hygli í jólaboðinu en í salnum voru
líka mun eldri VW bílar sem gestir
nutu þess að skoða um leið og þeir
nutu veglegra veitinga.
Elmar Þór Hauksson hefur sungið
fyrir Suðurnesjamenn á undan-
förnum árum en hann er starfs-
maður í Bílakjarnanum. Hann tók
nokkur jólalög í glæsilegum sal Bíla-
kjarnan á Fitjum í Njarðvík en með
honum var enginn annar en Arnór
Vilbergsson við hljómborðið. Með-
fylgjandi myndir voru teknar í fjörinu.
Sverrir Gunnarsson og Jenný
Waltersdóttir, kona hans,
í glæsilegum sýningarsal
Bílakjarnans á Fitjum.
Stálsmiður á viðhaldsstöð Icelandair
Viðhaldsskýli Keflavík - Fullt starf
Tækniþjónusta Icelandair ber ábyrgð á rekstri og eftirliti með viðhaldi flugvélaflota
Icelandair. Hjá Tækniþjónustu Icelandair starfar öflugur hópur sem sér til þess að öryggi,
áreiðanleiki og hágæða vinnubrögð séu höfð að leiðarljósi.
Við leitum að einstaklingi með fagmenntun eða starfsreynslu á sviði vélvirkjunnar og/eða stálsmíði á viðhaldsstöð
fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli.
Starfssvið:
| Stálsmíði, vélvirkjun, rennismíði, vélfræði
eða önnur menntun sem nýtist í starfi
| Víðtæk reynsla af málmsmíðum
| Öguð vinnubrögð og gott skipulag
| Hæfni í mannlegum samskiptum
| Íslensku kunnátta
| Góð tölvukunnátta
Hæfniskröfur:
| Stálsmíði úr svörtu/ryðfríu stáli og áli
| Almenn nýsmíði og viðgerðir
| Almenn suðuvinna og ál suða
| Önnur tilfallandi verkefni
Í samræmi við jafnréttisstefnu Icelandair og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Umsóknir óskast ásamt ferilskrá eigi síðar en 2. janúar 2023 á https://jobs.50skills.com/icelandair/is/17156
Nánari upplýsingar veita
Ásbjörn Halldór Hauksson, asbjornhal@icelandair.is
Viktor Smári Hafsteinsson, viktorh@icelandair.is
34 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum