Víkurfréttir - 15.12.2022, Page 38
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Langbest þakkar viðskiptin
á árinu sem er að líða
langbest.is
Sunna Líf reynir að klára jólainnkaupin fyrir 20. desember
til að koma í veg fyrir stress „korter í jól“. Henni finnst jóla-
smákökur og heimabökuð brún lagterta vera ómissandi á
jólunum en hjá fjölskyldu hennar er einnig hefð fyrir því að
vera með lamba hamborgarhrygg á aðfangadag.
Hvernig var árið 2022 hjá þér og
þinni fjölskyldu og hvað stendur
upp úr?
Við gátum loksins farið að ferðast
aftur að einhverju viti og nýttum
okkur það mikið. Það sem stóð
upp úr er 100% Ítalíu ferðin til
Rómar, Róm er geggjuð borg sem
allir ættu að heimsækja.
Ert þúmikið jólabarn?
Svona já og nei, ég elska jólin en
leyfi mér ekki að byrja hlakka al-
mennilega til fyrr en eftir að jóla-
prófin eru búin.
Hvenær er jólatréð yfirleitt sett
upp á þínu heimili?
Oftast í kringum þriðja í aðventu
eða hreinlega bara þegar við
höfum tíma í það.
Hver eru fyrstu jólin sem þú
manst eftir - áttu einhverjar
skemmtilegar jólaminningar?
Veit ekki hvaða jól eru þau fyrstu
sem ég man eftir en ég man eftir
því þegar ég var yngri fékk ég
alltaf að opna einn pakka á að-
fangadag þegar klukkan sló sex
áður en við byrjuðum að borða
jólamatinn.
En skemmtilegar jólahefðir?
Ég hef alltaf verið hjá ömmu og
afa í Sandgerði með móðurfjöl-
skyldunni um jólin síðan ég man
eftir mér og svo á jóladag hefur
amma Ásta komið til okkar og ég
opna pakkana frá henni og föður-
fjölskyldunni með henni.
Hvenær klárar þú að kaupa jóla-
gjafirnar?
Það fer rosalega mikið eftir því
hversu upptekin ég er í desember.
Reyni samt oftast að vera ekki að
stressa mig á jólagjöfum korter í
jól og reyni því að klára kaupin
fyrir 20. des.
Hvað finnst þér vera ómissandi
á jólunum?
Ætli það séu ekki jólasmákökur
og heimabökuð brún lagterta.
Hver er eftirminnilegasta jóla-
gjöfin sem þú hefur fengið?
Úff, þær eru allar skemmtilegar á
sinn hátt. Ætli það sé samt ekki
þegar mamma og pabbi gáfu
mér ryksugu þó að ég væri ekki
flutt að heiman, eða þegar ég
fékk STIGA snjósleðann sem var
efstur á óskalistanum eitt árið.
Er eitthvað á óskalistanum fyrir
jólin í ár?
Ekkert sem ég man eftir eins og
er, finnst líka skemmtilegra að
vita ekki fyrirfram hvað ég mun
fá í jólagjöf.
Hvað verður í jólamatinn hjá þér
á aðfangadagskvöld? Eru hefðir
í mat?
Það er alltaf lamba hamborgar-
hryggur, brúnaðar kartöflur
og rauðvínssósa á jólunum hjá
okkur og svo er alltaf mandla og
möndlugjöf. Möndluhefðin er sú
að yngstur fær sér fyrst og svo
koll af kolli.
Hvað ætlar þú að gera í kringum
jólahátíðina í ár?
Ég verð vinnandi mest megnið af
desember í ár, slepp samt heim úr
vinnu á slaginu sex á aðfangadag.
Heimabökuð brún
lagterta ómissandi
á jólunum
S
un
na
L
íf
Z
an
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
JÓLAGJÖFINA
FYRIR DÝRIN
FÆRÐU HJÁ OKKUR
KROSSMÓA - REYKJANESBÆ
38 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum