Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 75
Felgan var svo gróin við nafið að
engin leið var að losa dekkið af.
Kennarar og fílelfdir nemendur
gáfust upp hver af öðrum. Þá
hoppar Tani í land með öflugan
lykil og felgujárn. Hann biður menn
að færa sig og losar allar rærnar
bankar hraustlega í felguna og
spennir síðan af með kröftugu og
réttu átaki. Dekkið féll á bryggjuna
eins og ekkert væri.
Ökukennarinn sagði yfir hópinn
að Tani væri eini maðurinn sem
ætti að fá meiraprófið og það fékk
Tani á staðnum. Það kom sér vel en
hann hóf leigubílaakstur árið 1977.
Þegar hann gerðist vélstjóri á
Garðari BA, 66 ára gömlu skipinu,
fór hann ekki frá borði öðruvísi
en báturinn, vélin og kramið væri
tilbúið í næsta róður. Hann lærði
það hjá Verktökunum ungur maður
að hafa allt klárt þegar vinnu-
dagur hefst. Það var aldrei kallaður
smiðjumaður um borð þrátt fyrir
að báturinn væri orðinn 70 ára
þegar hann fór síðasta róðurinn frá
Patreksfirði.
Tani bjargaði vélstjóranum á Jóni
Þórðarsyni BA 180. Hann var að
losa hjól á vél bátsins sem kúplaði
inn spilið en ekkert gekk.
Tani kunni handtökin og byrjaði
á því að svínhita allt draslið framan
á krúntappanum á vélinni og kæla
svo snögglega með spúlnum. Þá
verptist járnið og þvingan var hert í
botn og hjólið dróst af öxlinum.
Hann hafði lært handtökin hjá
Verktökunum í Reykjanesbrautinni
þegar þeir lentu í verstu tilfellum
við að losa ripperinn af jarðýtum.
Úrræðasnilld Tana varð fræg
á Vestfjörðum og enn eru sagðar
sögur af þeim afrekum hans.
Sjónminni og athygli hans
fangaði allt sem snérist að vélum,
gangverki þeirra, þrýstingi og öðru
sem ekki öllum er gefið að skilja.
Hann þuldi yfir mér tímunum
saman slíkar upplýsingar og sögur
af vélum sem ég skildi aldrei upp
né niður í.
Palli patró hitti okkur félagana í
bakaríinu einn morguninn. Hann
sagði að Tani sé og hafi verið
þjóðsagnarpersóna á Patreksfirði
eftir árin sem hann var vélstjóri á
Garðari BA og sé í miklum metum
hjá fólki á Patró. Garðar var elsti
bátur flotans og var honum lagt
síðustu vertíðina sem Tani var
um borð en þá var báturinn 70
ára gamall. Tana tókst það sem
fáum vélstjórum hafði tekist en
það var að halda sjötugri vélinni
og kraminu gangandi fjórar síðustu
vertíðarnar og aldrei var kallaður
smiðjumaður um borð. Slíku afreki
ná bara hetjuvélstjórar og verður
vart leikið eftir.
Tani var alltaf illa verkaður, olíu-
blautur og óhreinn eftir véla- og
olíuslag í vélarrúminu en lét sig
ekki vanta á dekk. Hann gaf ekkert
eftir við netadráttinn og blóðgaði
niður aflann eftir hverja trossu með
strákunum á dekkinu.
Það er fræg sagan af því þegar
þeir á Garðari voru að fara yfir
1000 tonn á vertíðinni. Jón skip-
stjóri ákvað að gefa körlunum tíma
til að skjótast heim eftir löndun
og hitta fjölskylduna. Þegar allir
voru farnir frá borði var Tani einn
eftir um borð, kófsveittur að sinna
viðhaldi í vélarrúminu til að halda
kraminu og gömlu vélinni gangandi.
Þá kemur um borð Lilja eiginkona
Jóns skipstjóra og býður Tana að
koma heim til þeirra hjóna til að
borða saltkjöt og fara í bað, en þann
lúxus hafði Tani ekki getað veitt
sér síðan vertíðin hófst fyrir níu
vikum. Tani ætlaði bara að þiggja
saltkjötið en Lilja krafðist þess að
hann færi fyrst í bað. Hann fékk
hrein nærföt en Lilja henti þeim
gömlu. Það er ástæðulaust að lýsa
því sérstaklega af hverju Lilja lét
nærbuxurnar róa í ruslið.
Þessu gleyma menn ekki á Patró
og Tani þjóðsagnarpersóna í lif-
anda lífi þar vestra og mikill vinur
fjölskyldu Jóns skipstjóra til dauða-
dags.
Jónatan Jóhann Stefánsson
var einstakur maður, sérstakur í
háttum og umgengni. Átti engan
sér líkan, hann var bara líkur
sjálfum sér.
Ég þakka honum skemmtilega og
einstaka samferð í hans stíl.
Ásmundur Friðriksson
Jónatan með nafna sínum Jónatan
Marlow sem er uppspretta gleði hjá Tana.
Jónatan við bílinn sinn með
einkanúmerið HBETTY, sem hann
hafði til heiðurs góðri vinkonu.
Það er fræg sagan af því þegar þeir á Garðari voru að fara yfir 1000 tonn á vertíðinni.
Jón skipstjóri ákvað að gefa körlunum tíma til að skjótast heim eftir löndun og hitta
fjölskylduna. Þegar allir voru farnir frá borði var Tani einn eftir um borð, kófsveittur
að sinna viðhaldi í vélarrúminu til að halda kraminu og gömlu vélinni gangandi.
Vélar frá Vølund Diesel voruí
miklu uppáhaldi hjá Tana.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
sendir félagsmönnum sínum
og landsmönnum öllum
bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum // 75