Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 47
Þegar auglýst var eftir mesta jóla-
barni Grindavíkur á dögunum fengu
hjónin Guðrún Bjarnadóttir og Pétur
Gíslason nokkuð mörg atkvæði. Þess
vegna var gráupplagt að kíkja í heim-
sókn til þeirra og þar er verkaskipt-
ingin einföld, Gunna stýrir málum
innan dyra og Pétur ræður ríkjum úti
við. Gunna hefur alltaf verið mikið
jólabarn, Pétur var það ekki en smit-
aðist af konu sinni en hvar byrjar jóla-
gleði Gunnu: „Ég er úr Garðinum og
Grindavík og man ekki öðruvísi eftir
mér en á báðum stöðum því ég var öll
sumur hjá ömmu og afa í Garði en hef
annars frá unga aldri búið í Grindavík.
Ég var alltaf nokkuð mikið jóla-
barn þegar ég var yngri en ég er
fædd á annan í jólum. Það jókst svo
eftir að ég byrjaði að búa en þá þurfti
ég oft að fara út til New York með
elstu dóttur mína í læknismeðferð.
Ameríkanarnir kunna sko að skreyta
og ég kom alltaf klyfjuð af alls kyns
jólaskrauti þegar ég kom heim, eitt-
hvað sem sást ekki hér á landi og
voru margir íbúar Grindavíkur sem
gerðu sér ferð fram hjá húsinu okkar
til að skoða dýrðina. Fyrstu jóla-
minningarnar sem barn, tengjast
ferðum út í Garð en þar hittist fjöl-
skyldan öll á jóladegi ef það var fært
en amma var fædd á nýársdegi og sú
hefð er ennþá við lýði að fjölskyldan
hittist öll á nýársdegi í Garðinum,
venjulega í íþróttahúsinu. Allir koma
með veitingar og við eigum góða
stund saman.“
Gunna ræður ríkjum innandyra
en Pétur sem er frá Hellissandi, er
mjög metnaðarfullur þegar kemur
að skreytingum utanhúss en hann er
með eftirlíkingu af æskustöðvunum
og kirkjunni sem þar er, úti í garði:
„Bærinn sem amma mín bjó á heitir
Dvergasteinn en ég var mikið hjá
henni sem barn, hún var mjög trúuð
og fullyrti að álfar byggju í Dverga-
steini og sagðist hún oft hafa verið í
hrókasamræðum við þá. Við bæinn
er kirkjan Ingjaldshólskirkja og þar
sem ég hef gaman af því að búa til og
skapa og fæ að ráða ríkjum hér utan-
húss, þá datt mér í hug að byggja
eftirlíkingu af þessum æskuslóðum
mínum. Ég hef mjög gaman af því að
bæta jólaljósunum við en annars er
alltaf lýsing á þessu og það er mjög
algengt að fólk stoppi fyrir utan og
taki myndir.“
Fjölskyldan tók upp flotta jóla-
hefð fyrir nokkrum árum: „Í stað
þess að við skiptumst á að vera
hjá börnunum okkar á aðfangadegi
þá borðum við öll saman hér hjá
okkur og barnabörnin fá að opna
jólapakkana frá okkur en svo halda
allir til síns heima og klára að opna
gjafirnar þar og fá sér eftirrétt. Við
hittumst síðan öll á jóladegi hér hjá
okkur og borðum jólahangikjötið en
svo erum við öll saman hjá Sigur-
laugu og fjölskyldu hennar á gaml-
árskvöldinu. Við hlökkum mikið til
jólanna,“ sögðu hjónin að lokum.
Ameríska jólaskrautið
jók á jólagleðina
Gunna skreytir inni, Pétur úti
MUNUM EFTIR
AÐ GLEÐJA OG NJÓTA
UM HÁTÍÐARNAR
Fríhöfnin óskar þér og þínum
gleðilegrar hátíðar
og endalausra ævintýra
á nýju ári
dutyfree.is
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum // 47