Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2022, Qupperneq 47

Víkurfréttir - 15.12.2022, Qupperneq 47
Þegar auglýst var eftir mesta jóla- barni Grindavíkur á dögunum fengu hjónin Guðrún Bjarnadóttir og Pétur Gíslason nokkuð mörg atkvæði. Þess vegna var gráupplagt að kíkja í heim- sókn til þeirra og þar er verkaskipt- ingin einföld, Gunna stýrir málum innan dyra og Pétur ræður ríkjum úti við. Gunna hefur alltaf verið mikið jólabarn, Pétur var það ekki en smit- aðist af konu sinni en hvar byrjar jóla- gleði Gunnu: „Ég er úr Garðinum og Grindavík og man ekki öðruvísi eftir mér en á báðum stöðum því ég var öll sumur hjá ömmu og afa í Garði en hef annars frá unga aldri búið í Grindavík. Ég var alltaf nokkuð mikið jóla- barn þegar ég var yngri en ég er fædd á annan í jólum. Það jókst svo eftir að ég byrjaði að búa en þá þurfti ég oft að fara út til New York með elstu dóttur mína í læknismeðferð. Ameríkanarnir kunna sko að skreyta og ég kom alltaf klyfjuð af alls kyns jólaskrauti þegar ég kom heim, eitt- hvað sem sást ekki hér á landi og voru margir íbúar Grindavíkur sem gerðu sér ferð fram hjá húsinu okkar til að skoða dýrðina. Fyrstu jóla- minningarnar sem barn, tengjast ferðum út í Garð en þar hittist fjöl- skyldan öll á jóladegi ef það var fært en amma var fædd á nýársdegi og sú hefð er ennþá við lýði að fjölskyldan hittist öll á nýársdegi í Garðinum, venjulega í íþróttahúsinu. Allir koma með veitingar og við eigum góða stund saman.“ Gunna ræður ríkjum innandyra en Pétur sem er frá Hellissandi, er mjög metnaðarfullur þegar kemur að skreytingum utanhúss en hann er með eftirlíkingu af æskustöðvunum og kirkjunni sem þar er, úti í garði: „Bærinn sem amma mín bjó á heitir Dvergasteinn en ég var mikið hjá henni sem barn, hún var mjög trúuð og fullyrti að álfar byggju í Dverga- steini og sagðist hún oft hafa verið í hrókasamræðum við þá. Við bæinn er kirkjan Ingjaldshólskirkja og þar sem ég hef gaman af því að búa til og skapa og fæ að ráða ríkjum hér utan- húss, þá datt mér í hug að byggja eftirlíkingu af þessum æskuslóðum mínum. Ég hef mjög gaman af því að bæta jólaljósunum við en annars er alltaf lýsing á þessu og það er mjög algengt að fólk stoppi fyrir utan og taki myndir.“ Fjölskyldan tók upp flotta jóla- hefð fyrir nokkrum árum: „Í stað þess að við skiptumst á að vera hjá börnunum okkar á aðfangadegi þá borðum við öll saman hér hjá okkur og barnabörnin fá að opna jólapakkana frá okkur en svo halda allir til síns heima og klára að opna gjafirnar þar og fá sér eftirrétt. Við hittumst síðan öll á jóladegi hér hjá okkur og borðum jólahangikjötið en svo erum við öll saman hjá Sigur- laugu og fjölskyldu hennar á gaml- árskvöldinu. Við hlökkum mikið til jólanna,“ sögðu hjónin að lokum. Ameríska jólaskrautið jók á jólagleðina Gunna skreytir inni, Pétur úti MUNUM EFTIR AÐ GLEÐJA OG NJÓTA UM HÁTÍÐARNAR Fríhöfnin óskar þér og þínum gleðilegrar hátíðar og endalausra ævintýra á nýju ári dutyfree.is VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum // 47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.