Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 20
Elvar Orri, eins og hann er oftast kallaður, er mikið jólabarn og finnst hann ekki vera búinn að
skreyta fyrr en jólatréð er komið upp. Árið 2022 var viðburðaríkt ár hjá honum en hann útskrifaðist
úr Hárakademíunni, trúlofaði sig, keypti sína fyrstu fasteign og fékk nýjan fjölskyldumeðlim.
Hvernig var árið 2022 hjá þér og þinni fjölskyldu og
hvað stendur upp úr?
Árið 2022 var æðislegt í alla staði, það er svo margt sem
stendur mest upp úr. En það er að ég útskrifaðist úr Há-
rakademíunni, ég og unnusti minn trúlofuðum okkur,
einnig keyptum við okkar fyrstu fasteign og fengum
okkur nýjan fjölskyldumeðlim sem er Labrador hundur
og heitir Emil.
Ert þú mikið jólabarn?
Svo sannarlega, ég hef alltaf verið mikið jólabarn og held
mikið uppá jólin. Jólin eru einn af mínum uppáhalds-
tímum.
Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili?
Yfirleitt skreyti ég í byrjun nóvember og því fer jólatréð
upp á svipuðum tíma og ég skreyti. Ég vil helst hafa það
uppi sem allra lengst, mér finnst ég ekki vera búinn að
skreyta nema jólatréð sé komið upp.
Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir - áttu ein-
hverjar skemmtilegar jólaminningar?
Fyrstu jólin sem ég man eftir eru jólin þegar ég var sex
ára, ég fékk svo dýrmæta gjöf þau jól að þeim mun ég
seint gleyma.
En skemmtilegar jólahefðir?
Engar sérstakar jólahefðir, bara njóta hverrar stundar
með mínum nánustu og gera það besta úr þessum tíma
með mínu fólki.
Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar?
Ég reyni yfirleitt að vera búinn með þær í byrjun des-
ember til að geta notið um hátíðarnar.
Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum?
Algjörlega ómissandi að skreyta.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur
fengið?
Bangsi sem ég fékk í gjöf frá frænku minni þegar ég var
lítill.
Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár?
Það er ekkert sérstakt á listanum í ár.
Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld?
Eru hefðir í mat?
Það er klárlega hefð varðandi matinn en það er ham-
borgarhryggur og meðlæti.
Hvað ætlar þú að gera í kringum jólahátíðina í ár?
Ég ætla njóta þess að vera með fólkinu mínu.
Jólatréð fer yfirleitt
upp í byrjun nóvember
G
uð
m
un
du
r E
lv
ar
O
rr
i P
ál
ss
on
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Óskum Suðurnejsamönnum
og farsældar á nýju ári
gleðilegra jóla
2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM0 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum