Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 80
Mundi
Gleðilega hátíð!
Upplifðu – Vertu – Njóttu
OPNUNARTÍMAR
Mán–Fös 12–18
Lau 11–16
Hólmgarður 2A
230 Keflavík
s. 861 7681
marionehf@gmail.com
lindex.is
Jólaupplifun
Senn gengur í garð hátíð ljóss og
friðar. Flestum okkar hlakkar til
jólanna en það er líka hluti fólks sem
fyllist kvíða og angist. Mikill kostn-
aður fylgir nefnilega jólunum og þó
svo jólin séu alltaf dýr þá verða þau
enn dýrari í ár út af ástandinu í þjóð-
félaginu. Helvítis verðbólgan!
Seðlabankastjóri vill reyndar klína
þessu öllu upp á tíðar ferðir landans
til Tenerife og hefur eflaust ekkert
til síns máls en staðreyndin er sú
að verðbólga er í hæstu hæðum
um þessar mundir – en þrátt fyrir
að jólin séu dýr þá er alveg ljóst að
þau koma nú samt með öllu fjörinu
sem þeim fylgja. Eitt af því sem
fylgir jólunum og færir mörgum
kvíða eru gjafirnar. Blessaðar gjaf-
irnar eru alltaf mikill hausverkur á
þessum bæ því mér finnst eins og
allir í kring um mig eigi nánast allt!
Bækur klikka reyndar sjaldan, Engin
helvítis ævisaga eftir Keflvíkinginn
Sævar Sævarsson eru skyldukaup
í þessu bæjarfélagi! (Þetta er spons
frá Sævari, ég fæ fría áritun.) Undir-
ritaður er reyndar alveg ferlega
slappur í að velja jólagjafir og myndi
eflaust gefa Gísla Marteini nagladekk
ef hann væri á jólagjafalistanum. Ég
er bara alls ekki með þetta og læt því
yfirleitt konuna um að velja gjafirnar,
meira að segja sína eigin gjöf. Það
hefur meira að segja klikkað! Stað-
reyndin er reyndar sú að flestum
okkar þyki það betra að njóta sam-
vista með ástvinum og fjölskyldu
en að fá veigamiklar jólagjafir en
við vitum það öll að gjafirnar skipta
líka máli. Kannski er því bara besta
gjöfin upplifun eða samvistir með
skemmtilegu fólki. Þekki reyndar
einn ágætan mann sem gefur ávallt
sínum nánustu eingöngu upplifanir
í jólagjafir; gjafabréf í leikhús, út að
borða eða aðra dægradvöl. Þetta
finnst mér sniðugt, þarna er hægt
að stjórna upphæðinni sem hentar
þínum fjárhag og svona gjafabréf
eftir tvö ár af lokunum og leiðindum
hitta beint í mark, t.d. að gefa ömmu
og afa miða á eitthvað af þessum
glæsilegu þorrablótum sem verða
loksins snemma á nýju ári, koma
þeim út úr húsi í fjörið.
Eftir þessa Covid-tíð þá kann fólk
nefnilega að meta það mun meira en
áður, frelsið til að fara út og njóta af-
þreyingar í góðum félagsskap. Ætla
sjálfur að einblína á þessar gjafir um
þessi jól og hvet ykkur sem ætlið að
gera það sama að horfa hingað heim
þegar á að velja afþreyingu. Reykja-
nesbær/Suðurnesin eru nefnilega
stútfull af flottum veitingastöðum og
ýmis konar afþreyingu. Því eins og
sagt er: „Það þarf ekki að leita langt
yfir skammt.“
LO
KAO
RÐ
ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON
vf is
Daglegar fréttir
um jólin á