Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 74
Kæru vinir;
Jónatan Jóhann Stefánsson var
frá Sólheimum í Garði var sjó-
maður frá fjórtán ára aldri í 55 ár
og lagði móður sinni og systur lið
meðan þeirra naut við.
Hann var vélstjóri og áhuga-
maður um vélar allt sitt líf. Hann
skyldi virkni þeirra og átti gott með
viðgerðir og að halda gömlum og
slitnum tækjum gangandi. Hann
talaði um vélar og tæki, hann
dreymdi vélar og tæki. Vélar, tæki
og bátalíkön voru líf hans og yndi.
„Ég hefði aldrei verið til ef þessir
bátar hefðu ekki verið á floti,“ sagði
Tani einu sinni þegar hann rakti
feril sinn til sjós í spjalli okkar.
Tani var Garðmaður í húð og
hár en afar stoltur af uppruna
sínum. Móðurættin frá Skálum á
Langanesi og föðurættin frá Eiðum
í Garði. Það er ósk Tana að jarð-
neskar leifar hans verði komið
fyrir í fjölskyldugrafreit að Skálum
í faðmi móður hans og fjölskyldu
og það munum við Steingrímur og
Birgir sjá um þegar fer að vora.
Þau tækifæri sem hann varð af
í æsku, stutt skólaganga og tak-
markað nám, lesblinda og sjón-
depra varð til þess að hann þróaði
með sér gríðarlega öflugt minni
sem varð hans helsta vopn og upp-
spretta margra gleðistunda þegar
aldurinn færðist yfir. Hann lærði
lestrarbækur í Gerðaskóla utan-
bókar til að geta lesið óhikað í
kennslustundum.
Bátar og skráningarnúmer, vélar
og spil einstök síldarköst og hvenær
ný tæki voru tekin í notkun var
hans sérsvið. Margir útgerðar-
menn- og sjómenn hringdu í Tana
til síðasta dags til að fá upplýsingar
um búnað báta sem þeir höfðu
róið á eða verið eigendur að. Hann
vissi hvenær fyrsta astikið var sett
í íslenskan bát og hvaða skipstjóri
notaði tækið fyrst. Þeir búmmuðu
eins og sagt var í fyrstu köstunum
en áttuðu sig á því að þeir þurftu
að spegla geislann og þá fóru hlut-
irnir að ganga.
Hann mundi líka öll bílnúmer og
símanúmer. Símanúmerin mundi
hann með því að breyta þeim í
bílnúmer og nöfn eigendanna í
minnisbankanum. Ef ég spurði
hvort hann myndi númerið hjá
Siggu, 8986077 þá kom svarið.
Reynir Gísla, Ö 898, Siggi Möllu Ö
60, og Maggi Jóns Ö77.
Villi Árna 8699294. Siggi á
Berginu, Halli á gömlu flugstöðinni
og Emil leigubílstjóri
Páll Magg. 8679188 Siggi Þórðar,
Egill í slippnum og Jón norski vöru-
bílstjóri
8943900 Emil Ö 894, Maggi
Þorsteins Ö 39
8986077 Reynir Gísla Ö898 Ö
60 Siggi Möllu Ö 77 Maggi Jónsa á
Vörubílastöðinni.
Númerið hjá Karli Gauta
8981067. Reynir Gísla Ø 898 og
Siggi slembir Ø 1067.
Bergþór Ólafsson 8989007.
Reynir Gísla og Sverrir bróðir
Magga El (90) sjókælir á Listernum
(07)
Hann var tvítugur vaktmaður hjá
verktökunum sem lögðu Reykja-
nesbrautina. Var allar nætur frá
byrjun maí til loka september að
sparka í dekk, skipta um dekk, setja
olíu á bíla og sinna viðhaldi. Þar
fékk hann innsýn í viðgerðir og
reddingar sem síðar gerðu hann að
eftirsóttum vélstjóra. Hann telur
sig hafa verið fyrsta ökumanninn á
Íslandi sem ók um á nagladekkjum.
Tana vantaði aldrei eina mínútu til
vinnu hjá verktökunum.
Hann vissi líka eiginlega allt um
verkfæri. Þannig vafðist ekki fyrir
honum að þylja upp stærðir á verk-
færum í tommum og millimetrum.
Hann hikstaði ekki þegar hann
sagði að 7/16 amerískar tommur
væri sama og 14 mm, 11/16 sama
og 17 mm, treikvarttomma sama
og 19 mm. En vandinn var að það
ekkert í amerískum tommum sem
átti við 18 mm sem var algjört
viðrini.
Tani var eitt sinn staddur hjá
Birni í Kistufelli sem þá var í
Brautarholti að kona kom í búðina
og vildi kaupa kúplingsdisk. Kúp-
lingsdiskurinn átti að vera með
tommu gati og 10 rílum. Björn sagði
konunni að þetta væri það gamall
diskur að líklega væri hann ekki til
í landinu.
Tani með sitt góða minnið mundi
þá eftir slíkum diski, rykföllnum
uppi á vegg í bílskúrnum hjá Guðna
á Garðstöðum í Garðinum en
þangað kom hann oft í spjall í frum-
skóg véla og varahluta. Á spýtu á
norðurveggnum héngu ýmsir nyt-
samlegir hlutir á nöglum. Á þriðja
nagla hékk kúplingsdisk úr Ram-
bler 65 sem átti að fara í bíl hjá
Guðna en passaði ekki. Diskurinn
hékk því árum saman uppi á vegg,
rykféll og var öllum gleymdur nema
Tana.
Tani segir konunni að trúlega
sé þessi diskur til úti í Garði. Það
kom allt í ljós að okkar maður
mundi þetta rétt. Konan fékk kúp-
lingsdiskinn með tommu gati og 10
rílum.
Tani gat líka þulið skipanir sýslu-
manna og bæjarfógeta frá konungs-
skipunum langt fyrir fæðingu hans
og allt til síðasta dags. Þær minn-
ingar urðu oft kveikja að heitum
umræðum okkar um pólitískar
embættisveitingar og enduðu með
báli. En aldrei skildum við ósáttir.
Tani var ótrúlega magnaður
með hverskonar þung handverk-
færi, kúbein, slaghamra og törnara,
(stangir til að törn vélum) sem lék í
höndum hans. Af þeim afrekum eru
til margar frægar sögur á Patró.
Hópur manna var að taka meira-
prófið og þeir voru í æfingaakstri
á bryggjunni þar sem Garðar BA lá
og Tani um borð að fylgjast með.
Þegar allir voru búnir að aka eftir
bryggjunni átti að skipta um dekk
á vörubílnum. Þá vandaðist málið.
VG peysuna prjónaði Kristín Kristjánsdóttir frá Einholti í Biskupstungum. Þarna
er stofnandi VG # 7 ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra sem hann
ber fulla ábyrgð á sem stofnfélagi og einn helsti hvatamaður að stofnun VG.
Það var honum hjartans mál að gefa forsætisráðherra VG peysuna góðu.
Lokaorð á kveðjustund
Tani tekur pokann í síðasta skipti á Njáli RE.
Margeir Elentínusson, Jónatan Jóhann Stefánsson og Ásmundur Friðriksson.
Steingrímur Jóhann Sigfússon,
VG félagi nr. 1 og Jónatan Jóhann
Stefánsson, VG félagi nr. 7.
Jónatan hélt góðu sambandi við félaga
sína í VG fram á síðustu daga sína. Hér
er hann með jólakort frá Steingrími J.
Í vélarrúminu á Hamri GK 224.
Tani í safninu sem hann var með heima hjá
sér þegar hann bjó í Miðhúsum í Sandgerði.
Á S M U N D U R F R I Ð R I K S S O N S K R I FA R K V E Ð J U O R Ð U M J Ó N ATA N J Ó H A N N S T E FÁ N S S O N
74 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum