Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2022, Page 74

Víkurfréttir - 15.12.2022, Page 74
Kæru vinir; Jónatan Jóhann Stefánsson var frá Sólheimum í Garði var sjó- maður frá fjórtán ára aldri í 55 ár og lagði móður sinni og systur lið meðan þeirra naut við. Hann var vélstjóri og áhuga- maður um vélar allt sitt líf. Hann skyldi virkni þeirra og átti gott með viðgerðir og að halda gömlum og slitnum tækjum gangandi. Hann talaði um vélar og tæki, hann dreymdi vélar og tæki. Vélar, tæki og bátalíkön voru líf hans og yndi. „Ég hefði aldrei verið til ef þessir bátar hefðu ekki verið á floti,“ sagði Tani einu sinni þegar hann rakti feril sinn til sjós í spjalli okkar. Tani var Garðmaður í húð og hár en afar stoltur af uppruna sínum. Móðurættin frá Skálum á Langanesi og föðurættin frá Eiðum í Garði. Það er ósk Tana að jarð- neskar leifar hans verði komið fyrir í fjölskyldugrafreit að Skálum í faðmi móður hans og fjölskyldu og það munum við Steingrímur og Birgir sjá um þegar fer að vora. Þau tækifæri sem hann varð af í æsku, stutt skólaganga og tak- markað nám, lesblinda og sjón- depra varð til þess að hann þróaði með sér gríðarlega öflugt minni sem varð hans helsta vopn og upp- spretta margra gleðistunda þegar aldurinn færðist yfir. Hann lærði lestrarbækur í Gerðaskóla utan- bókar til að geta lesið óhikað í kennslustundum. Bátar og skráningarnúmer, vélar og spil einstök síldarköst og hvenær ný tæki voru tekin í notkun var hans sérsvið. Margir útgerðar- menn- og sjómenn hringdu í Tana til síðasta dags til að fá upplýsingar um búnað báta sem þeir höfðu róið á eða verið eigendur að. Hann vissi hvenær fyrsta astikið var sett í íslenskan bát og hvaða skipstjóri notaði tækið fyrst. Þeir búmmuðu eins og sagt var í fyrstu köstunum en áttuðu sig á því að þeir þurftu að spegla geislann og þá fóru hlut- irnir að ganga. Hann mundi líka öll bílnúmer og símanúmer. Símanúmerin mundi hann með því að breyta þeim í bílnúmer og nöfn eigendanna í minnisbankanum. Ef ég spurði hvort hann myndi númerið hjá Siggu, 8986077 þá kom svarið. Reynir Gísla, Ö 898, Siggi Möllu Ö 60, og Maggi Jóns Ö77. Villi Árna 8699294. Siggi á Berginu, Halli á gömlu flugstöðinni og Emil leigubílstjóri Páll Magg. 8679188 Siggi Þórðar, Egill í slippnum og Jón norski vöru- bílstjóri 8943900 Emil Ö 894, Maggi Þorsteins Ö 39 8986077 Reynir Gísla Ö898 Ö 60 Siggi Möllu Ö 77 Maggi Jónsa á Vörubílastöðinni. Númerið hjá Karli Gauta 8981067. Reynir Gísla Ø 898 og Siggi slembir Ø 1067. Bergþór Ólafsson 8989007. Reynir Gísla og Sverrir bróðir Magga El (90) sjókælir á Listernum (07) Hann var tvítugur vaktmaður hjá verktökunum sem lögðu Reykja- nesbrautina. Var allar nætur frá byrjun maí til loka september að sparka í dekk, skipta um dekk, setja olíu á bíla og sinna viðhaldi. Þar fékk hann innsýn í viðgerðir og reddingar sem síðar gerðu hann að eftirsóttum vélstjóra. Hann telur sig hafa verið fyrsta ökumanninn á Íslandi sem ók um á nagladekkjum. Tana vantaði aldrei eina mínútu til vinnu hjá verktökunum. Hann vissi líka eiginlega allt um verkfæri. Þannig vafðist ekki fyrir honum að þylja upp stærðir á verk- færum í tommum og millimetrum. Hann hikstaði ekki þegar hann sagði að 7/16 amerískar tommur væri sama og 14 mm, 11/16 sama og 17 mm, treikvarttomma sama og 19 mm. En vandinn var að það ekkert í amerískum tommum sem átti við 18 mm sem var algjört viðrini. Tani var eitt sinn staddur hjá Birni í Kistufelli sem þá var í Brautarholti að kona kom í búðina og vildi kaupa kúplingsdisk. Kúp- lingsdiskurinn átti að vera með tommu gati og 10 rílum. Björn sagði konunni að þetta væri það gamall diskur að líklega væri hann ekki til í landinu. Tani með sitt góða minnið mundi þá eftir slíkum diski, rykföllnum uppi á vegg í bílskúrnum hjá Guðna á Garðstöðum í Garðinum en þangað kom hann oft í spjall í frum- skóg véla og varahluta. Á spýtu á norðurveggnum héngu ýmsir nyt- samlegir hlutir á nöglum. Á þriðja nagla hékk kúplingsdisk úr Ram- bler 65 sem átti að fara í bíl hjá Guðna en passaði ekki. Diskurinn hékk því árum saman uppi á vegg, rykféll og var öllum gleymdur nema Tana. Tani segir konunni að trúlega sé þessi diskur til úti í Garði. Það kom allt í ljós að okkar maður mundi þetta rétt. Konan fékk kúp- lingsdiskinn með tommu gati og 10 rílum. Tani gat líka þulið skipanir sýslu- manna og bæjarfógeta frá konungs- skipunum langt fyrir fæðingu hans og allt til síðasta dags. Þær minn- ingar urðu oft kveikja að heitum umræðum okkar um pólitískar embættisveitingar og enduðu með báli. En aldrei skildum við ósáttir. Tani var ótrúlega magnaður með hverskonar þung handverk- færi, kúbein, slaghamra og törnara, (stangir til að törn vélum) sem lék í höndum hans. Af þeim afrekum eru til margar frægar sögur á Patró. Hópur manna var að taka meira- prófið og þeir voru í æfingaakstri á bryggjunni þar sem Garðar BA lá og Tani um borð að fylgjast með. Þegar allir voru búnir að aka eftir bryggjunni átti að skipta um dekk á vörubílnum. Þá vandaðist málið. VG peysuna prjónaði Kristín Kristjánsdóttir frá Einholti í Biskupstungum. Þarna er stofnandi VG # 7 ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra sem hann ber fulla ábyrgð á sem stofnfélagi og einn helsti hvatamaður að stofnun VG. Það var honum hjartans mál að gefa forsætisráðherra VG peysuna góðu. Lokaorð á kveðjustund Tani tekur pokann í síðasta skipti á Njáli RE. Margeir Elentínusson, Jónatan Jóhann Stefánsson og Ásmundur Friðriksson. Steingrímur Jóhann Sigfússon, VG félagi nr. 1 og Jónatan Jóhann Stefánsson, VG félagi nr. 7. Jónatan hélt góðu sambandi við félaga sína í VG fram á síðustu daga sína. Hér er hann með jólakort frá Steingrími J. Í vélarrúminu á Hamri GK 224. Tani í safninu sem hann var með heima hjá sér þegar hann bjó í Miðhúsum í Sandgerði. Á S M U N D U R F R I Ð R I K S S O N S K R I FA R K V E Ð J U O R Ð U M J Ó N ATA N J Ó H A N N S T E FÁ N S S O N 74 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.