Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 66
Gleðileg jól, farsælt
komandi ár. Þökkum
viðskiptin á árinu sem
er að líða.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður í Grindavík, var nýlega kjörinn ritari
Sjálfstæðisflokksins en hann hefur setið á þingi síðan 2013. Margir
spyrja sig eflaust hvað felst í því að vera ritari stjórnmálaflokks en
í flestum félagasamtökum er ritari hluti af stjórn og hlutverkið að
rita fundargerðir. Ekkert slíkt er á herðum Villa: „Þetta orð, ritari, er
oft notað þegar mörg félög, lönd eða hópar eru undir einni regnhlíf
eins og t.d. hjá Sameinuðu þjóðunum en þar er talað um aðalritara.
Helsta hlutverk ritara Sjálfstæðisflokksins er að halda utan um allt
innra starfið sem samanstendur af yfir 100 aðildarfélögum um allt
land. Þetta nafn var tekið upp fyrir nokkrum árum en þar áður hafði
annar varaformaður verið kjörinn til að sinna þessu starfi. Ritari má
ekki vera ráðherra en formaður og varaformaður eru í því hlutverki
þegar Sjálfstæðisflokkurinn er við völd. Ég er nýlega tekinn við og
hlakka til að hitta sjálfstæðisfólk vítt og breytt um landið og tengja
grasrótina betur við kjörna fulltrúa.“
Það er ekki beint hægt að segja að
alþingi sé jólafjölskylduvænn vinnu-
staður en um hálfgerða vertíð er að
ræða í aðdraganda jólafrís og mörg
lög sem þarf að samþykkja: „Ég er
heppinn hvað Sigurlaug konan mín
er mikið jólabarn en fjölskyldan
veit að í desember er ég ekki mikið
heima við því mjög mikið er að gera
á þinginu auk þess sem við erum
boðnir í ótal jólaboð, útgáfuteiti
og annað. Þess vegna er ég nánast
ekki með neinar aðra jólaskyldur
en kaupa jólagjöf og afmælisgjöf
handa Sigurlaugu en hún á afmæli
á aðfangadegi. Við erum oftast búin
með mest allan jólaundirbúning
snemma eða fyrir desember. Stemn-
ingin í þinginu er alltaf skemmtileg
í desember, við setjum upp jólatré,
skreytum og boðið er upp á pipar-
kökur og konfekt svo við upplifum
jólaandann eitthvað en það er mikið
álag og í raun nett vertíðarstemning
sem er alltaf skemmtileg. Þingið á að
fara í jólafrí um miðjan desember en
ég man ekki eftir að það hafi gerst,
við erum nánast fram á aðfangadag
að klára síðustu málin, stundum á
milli jóla og nýárs, svo það er alltaf
mjög góð tilfinning þegar fríið
brestur á og þá fyrst get ég almenni-
lega notið jólaandans í faðmi fjöl-
skyldunnar.“
Villi er úr Skagafirðinum og ólst
upp við sínar jólavenjur en var lag-
lega fljótur að tileinka sér jólahefðir
jólabarnsins Sigurlaugar: „Sigurlaug
er alin upp við miklar jólahefðir og
ég hef algerlega leyft henni að stýra
öllum jólaundirbúningi. Þótt ég vildi
myndi ég varla fá að skipta mér
mikið af, ég er fínn í að hengja upp
jólaskraut en geri það ekki nema skv.
hennar skipulagi, hún stýrir þessum
málum og ég er mjög sáttur við það,“
sagði Villi að lokum.
Jólin hjá þingmanninum
Ekki mikið
heima í
desemberHEYRNARÞJÓNUSTA
Hlíðasmára 19, 201 Kópavogur - Sími 534 9600 - www.heyrn.is
Kæru Suðurnesjamenn
Óskum ykkar gleðilegra jóla og farsæls k andi árs.
Heyrumst á nýja árinu.
Nýtt!vefverslun.heyrn.is
Gleðileg jól, farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
og því hentugt hversu mikið
jólabarn eiginkonan er
Tónleikarnir á Hringbraut og í Sjónvarpi Víkurfrétta um hátíðirnar. Nánar á vf.is
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
66 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum