Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 32
Tillaga um stuðning við sam-
félagsleg verkefni í Reykjanesbæ,
sem undirrituð er af oddvitum allra
flokka sem eiga sæti í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar, var lögð fyrir
bæjarráð Reykjanesbæjar í síðustu
viku. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
lagði fram tillöguna ásamt greinar-
gerð um stuðning við samfélagsleg
verkefni í Reykjanesbæ.
Tillagan er þessi: Súlunni verði
falið að útbúa kynningu um þau
tækifæri sem eru til staðar fyrir
atvinnurekendur á svæðinu til að
styðja við samfélagið í Reykjanesbæ.
Kynningin verði unnin í samstarfi
við helstu íþrótta-, tómstunda- og
menningarfélög á svæðinu. Kynn-
inguna skal einnig vinna í samstarfi
við íþrótta- og tómstundaráð sem og
menningar- og atvinnuráð. Í fram-
haldinu skuli bæjarstjóri tryggja að
farið verði á fund stærstu vinnu-
veitenda á svæðinu og kynningin
flutt fyrir þá og opnað á samtalið
um tækifæri þeirra til stuðnings
við margvísleg samfélagsverkefni í
Reykjanesbæ. Kynningarfundir skulu
fara fram á fyrsta ársfjórðungi ársins
2023 og í framhaldinu unnið að því
að tengja saman aðila á svæðinu.
Í greinargerð með tillögunni segir:
Á síðastliðnum árum hefur það
komið reglulega fram í samtölum við
aðila sem standa að íþrótta-, menn-
ingar og tómstundastarfi í Reykja-
nesbæ að fjármögnun rekstrar og
verkefna sé vandasamt og tímafrekt
verkefni.
Forsvarsmenn nefna að þeir tali
oft fyrir daufum eyrum, ekki hvað
síst þegar um að ræða samtal við
rekstraraðila sem reki umfangs-
mikla starfsemi á svæðinu en séu
með höfuðstöðvar sínar utan bæjar-
félagsins. Skorts á skilningi á þörfum
samfélagsins virðist gæta.
Öll þau stærri fyrirtæki sem starfa
hér á svæðinu og treysta á að íbúar
Reykjanesbæjar séu áhugasamir
um störf hjá þeim virðast, út á við,
vera mjög meðvituð um sína sam-
félagslegu ábyrgð. Af því má ráða að
þessi fyrirtæki skilji að þau hafi hag
af því að starfsmenn þess kjósi að
búa í Reykjanesbæ og nýta þar þá
þjónustu og afþreyingu sem í boði er.
Þessi fyrirtæki hafa flest hver
markað sér skýrar stefnur um sam-
félagsábyrgð og því virðist vera
fullur vilji hjá atvinnurekendum að
vera virkur þátttakandi í því sam-
félagi sem stór hluti starfsmanna
þeirra lifir í. Samfélaginu þar sem
börn starfsmanna sækja skóla,
stunda tómstundir, iðka íþróttir og
starfsmennirnir sjálfir eru virkir
þátttakendur í viðburðum, menn-
ingu og daglegu lífi. Það virðist því
ekki skorta yfirlýstan vilja aðila til
að vera virkur þátttakandi í daglegu
lífi íbúa Reykjanesbæjar en ein-
hverra hluta vegna lítur það þannig
út að einhverjir aðilar í þessum
hópi sjái ekki hvaða tækifæri eru til
staðar til að styðja við samfélagið í
Reykjanesbæ. Reykjanesbær á að
opna þetta samtal milli aðila hér á
svæðinu.
Mælikvarði árangurs:
• Menningar, íþrótta- og tóm-
stundafélög finni fyrir auknum
stuðningi helstu vinnuveitenda
íbúa Reykjanesbæjar.
• Stærstu atvinnuveitendur íbúa
Reykjanesbæjar verði sýnilegri í
daglegu lífi bæjarbúa.
• Umræður um stuðning við
samfélagið Í Reykjanesbæ og
hin ýmsu félög innan Reykja-
nesbæjar eigi sér stað tvisvar á
ári milli Reykjanesbæjar og at-
vinnurekenda.
• Kynna skal áfangaskýrslur
kynningarátaksins ásamt
niðurstöðum úr samtölum fyrir
bæjarstjórn reglulega á meðan
það varir.
Halldóra Fríða
Þorvaldsdóttir B-lista
Friðjón Einarsson S-lista
Valgerður Pálsdóttir Y-lista
Margrét Sanders D-lista
Margrét Þórarinsdóttir U-lista.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkir erindi sviðsstjóra umhverfis-
sviðs þar sem óskað er eftir heimild að samþykkja tilboð frá Sveinsverk,
sem var með lægsta tilboðið, í lagningu á nýjum vegi frá mislægum gatna-
mótum suður að Njarðvíkurheiði að tengivirki Landsnets.
Í áherslum umhverfissviðs Reykjanesbæjar við gerð fjárfestingaráætlunar
fyrir árið 2023 var mikla áhersla lögð á að fá fjármagn til að fara í nýjan veg
frá mislægum gatnamótum suður að Njarðvíkurheiði að tengivirki Landsnets.
Þessi vegur tengir í leiðinni nýtt efnislosunarsvæði sem þarf að byrja á á
nýju ári þar sem efnislosunarsvæðið á Stapa er orðið fullt og því þarf að loka.
Vegna framkvæmda við nýtt tengivirki Landsnets kom upp sú hugmynd að
flýta þessari framkvæmd þannig að Landsnet gæti nýtt sér þennan veg við
framkvæmdir í staðinn fyrir að gera upp eldri slóða sem fara um Patterson.
Eftir samninga viðræður við Landsnet er fyrirtækið tilbúið að leggja fjár-
magn í þessa framkvæmd ef það má verða til þess að flýta framkvæmdinni.
Hér er um fasta upphæð að ræða og vegurinn yrði eign Reykjanesbæjar eftir
framkvæmd. Sett var út verðkönnun á veginn og var verktakafyrirtækið
Sveinsverk lægst með um 70% af kostnaðaráætlun.
Menningar- og atvinnuráð Reykja-
nesbæjar fékk á dögunum kynn-
ingu á Prentsögusetri. Ráðið
þakkar í fundargerð fyrir áhuga-
vert erindi sem varðar möguleika
á samstarfi við Prentsögusetur
um uppsetningu prentsögusafns í
Reykjanesbæ. Erindið samræmist
ekki framtíðarsýn menningarmála í
Reykjanesbæ og er því hafnað.
Prentsögusetur
verður ekki í
Reykjanesbæ
Atvinnurekendum verði kynntur stuðningur
við samfélagsleg verkefni í Reykjanesbæ
Á síðastliðnum árum hefur það komið reglulega fram í samtölum við aðila sem standa að íþrótta-, menningar og
tómstundastarfi í Reykjanesbæ að fjármögnun rekstrar og verkefna sé vandasamt og tímafrekt verkefni.
Ráðist í vegagerð á
Njarðvíkurheiði með
aðkomu Landsnets
vf is
Þú finnur allar
nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum á
AUGLÝSINGASÍMI
421 0001
32 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum