Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 77
Kaupfélagi Suðurnesja sendir
félagsmönnum sínum bestu óskir um
gleðileg jól
Kaupfélag Suðurnesja sendir félagsmönnum
sínum bestu óskir um gleðileg jól, farsælt
nýtt ár og þakkar samfylgdina í 77 ár
Rannsóknarstofa Háskóla Íslands
í eldfjallafræði og náttúruvá segir
að það komi á óvart hversu hár hiti
er ennþá fremst í hrauninu í Nátt-
haga. Hraunið rann í eldgosinu í
Geldingadölum 2021.
Rannsóknarstofan gerir að um-
fjöllun gervitunglamynd sem tekin
var 5. desember 2022 og sýnir
hitadreifinguna í hraununum í yfir-
standandi Fagradalsfjallseldum, þ.e.
í hraunbreiðu Geldingadalagossins
2021 og Meradalagossins 2022.
Rauði liturinn í myndinni gefur til
kynna heit svæði og blái liturinn
köld svæði.
Í færslu á síðu Rannsóknarstofu
Háskóla Íslands í eldfjallafræði og
náttúruvá segir að eins og við er
að búast, þá er verulegur hiti í bæði
2021 og 2022 hraunbreiðunum næst
gígunum, enda er þykkt hraunanna
mest þar, allt að 100 metrar í tilfelli
2021 Geldingadalahraunsins og um
35 metrar í 2022 Meradalahrauninu,
gígunum og hraunbreiðunum frá
Fagradalsfjallseldum.
Það sem kemur á óvart er hár
hiti í 2021 hrauninu fremst í Nátt-
haganum, hugsanlega vegna þess
að innri kjarni hraunsins í Nátthaga
hefur haldist nægilega heitur eftir að
gosi lauk til þess að flæða fram og
viðhalda hitaástandinu í hrauninu
fremst í Nátthaga. Í hrauninu
suðaustast í Meradölum. Þetta er
svæðið þar sem bráðin kvika úr
kjarna 2021 hraunsins braust út
um yfirborssprungu dagana 11. og
12. ágúst 2022 vegna fergingar af
völdum nýju hraunbreiðunnar sem
hafði myndast í 2022 gosinu. Greini-
legt að þarna hefur skotist inn og
situr enn þá verulegt magn af heitri
kviku sem skýrir upplyftinguna
sem varð á 2021 hraunyfirborðinu
á þessu svæði samfara kviku út-
flæðinu.
Hár hiti fremst í Nátthaga kemur á óvart
Hár hiti er í hrauninu fremst í Nátthaganum, hugsanlega vegna þess
að innri kjarni hraunsins í Nátthaga hefur haldist nægilega heitur
eftir að gosi lauk til þess að flæða fram og viðhalda hitaástandinu
í hrauninu fremst í Nátthaga. Mynd frá embætti forseta Íslands
Blái herinn sendir öllum
Suðurnesjamönnum kærar
jóla- og nýárskveðjur og
þakkar stuðninginn í 27 ár.
Óskum íbúum Suðurnesja gleðilegrar hátíðar og
þökkum góða samvinnu á árinu sem er að líða.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Guðrún, Vilhjálmur, Ásmundur og Birgir
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum // 77