Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 65
„Ég byrjaði með Lúðrasveit verka-
lýðsins í janúar 2018, það eru komin
fimm ár, svo þetta er það sem ég lifi
og hrærist í alla daga.
Það eru svo flottir krakkar hér í
skólanum, svo er ég að vinna með
þessari flottu lúðrasveit í Reykjavík
og mig langaði að sameina þetta
tvennt. Svo það varð úr að halda tón-
leika hér og vera með sólóista héðan,
mér fannst það takast mjög vel enda
rosalega flottir krakkar sem spiluðu
með sveitinni.“
Það voru fjórir einleikarar úr
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem
komu fram á tónleikunum; Sara
Dvjetkovic lék á píanó, Bergur Daði
Ágústsson á trompet, Guðjón Steinn
Skúlason á saxófón og Magnús Már
Newman lék bæði á sílafón og sneril.
„Þau voru svo flott og stóðu sig
svo vel, gaman að því,“ segir Karen
og er augljóslega stolt af nemendum
skólans. „Þau voru alveg glæsileg
og það eru ennþá fleiri krakkar í
skólanum sem hefðu getað komið
fram. Það er svo ótrúlega flottur
hópur af krökkum sem er hér – og
það er svo gaman að þau eru til í allt.
Krökkunum finnst ekkert mál að æfa
jólalög með Bjöllukórnum – jafnvel
þótt það sé ennþá sumar.“
Lúðrasveit verkalýðsins fagnar
sjötíu ára afmæli á næsta ári Karen
segir margt vera framundan hjá
sveitinni.
„Lúðrasveit verkalýðsins verður
sjötíu ára 8. mars á næsta ári svo við
erum að plana stórtónleika, veislu og
svo ætlum við að fara til Skotlands
í sumar – en hér er alltaf eitthvað á
döfinni og maður er alltaf að vinna
í einhverjum skemmtilegum verk-
efnum.“
Áttu þér einhver áhugamál fyrir
utan tónlist?
„Ég hef oft hugsað út í það hvort ég
ætti að finna mér áhugamál – þetta
er bara svo skemmtilegt, að vinna
við eitthvað sem þú hefur gaman að.
Ég ætlaði alltaf að verða lögfræð-
ingur eins og pabbi ... en það gerðist
ekki. Ég giftist og flutti hingað. Tón-
listin var alltaf með mér, ég fæddist
inn í tónlistarfjölskyldu og tók gráður
í tónlist alveg eins og í stærðfræði.
Þú veist, ég ætlaði í lögfræði. Svo
þróaðist þetta og ég er ekki ósátt
með það,“ segir Karen og leggur
áherslu á orð sín með látbragði. „Ég
er mjög sátt með hvar ég er í dag,
fæ að lifa og hrærast í tónlist alla
daga og vinna með öllum þessum
krökkum. Það er svo gefandi að fá
að fylgjast með þeim vaxa úr engu
og ná að blómstra, það er ótrúlega
gaman,“ segir listamaður Reykjanes-
bæjar að lokum.
Lúðrasveit verkalýðsins ásamt einleikurum og Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Einleikararnir stóðu sig allir
frábærlega á tónleikunum.
Hér leikur Sara Dvjetkovic á píanó.
Bergur Daði lék
á trompet.
Saxófónleikarinn
Guðjón Steinn. Magnús Már,
slagverksleikari.
Haraldur Haraldsson,
skólastjóri Tónlistarskólans,
þakkar Karen fyrir vel
heppnaða tónleika.
KÆRI NÁGRANNI!
SENDUM ÞÉR OG ÞÍNUM
BESTU ÓSKIR
UM GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Opið virka daga 9–19
laugard. og sunnud. 10–14
apotekarinn.isSuðurgötu 2
Sími 421 3200
Afgreiðslutími um jól og áramót:
Keflavík
24. des 10–12
25. des LOKAÐ
26. des LOKAÐ
27. des 10–19
31. des 10–12
1. jan LOKAÐ
2. jan 10–19
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum // 65