Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 76
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
Við óskum íbúum Suðurnesjabæjar
og landsmönnum öllum gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári með þökk fyrir
samskipti á árinu sem er að líða.
Verið velkomin í Suðurnesjabæ!
Sendum Suðurnesjamönnum
okkar bestu óskir um
gleðileg jól og farsæld
á nýju ári.
Sendum félagsmönnum og
Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir
um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þökkum samstarf á árinu sem er að líða.
Jólahátíðin nálgast enn á ný og allt sem henni fylgir. Íbúar og fyrir-
tæki skreyta hátt og lágt, jólatónlistin ómar, ungum sem öldnum fer
að hlakka til að opna pakka og borða góðan mat með fjöldskyldu
og vinum.
Það er því við hæfi að líta yfir farinn
veg en árið hefur verið viðburðaríkt
og þar má nefna sveitastjórnarkosn-
ingar sem fóru fram þann 14. maí
2022. Árangurinn sem við í Fram-
sókn náðum í Suðurnesjabæ var sá
sem stefnt var að í upphafi og erum
við öllum ævinlega þakklát fyrir
góða hvatningu og stuðning. Án þess
værum við einfaldlega ekki bæjar-
fulltrúarnir ykkar í Suðurnesjabæ.
Markmið okkar er og hefur alltaf
verið skýrt og það er að vera öflugir
bæjarfulltrúar í Suðurnesjabæ ásamt
því að vera hreyfiafl framfara í sam-
félaginu.
Eftir kosningar mynduðu svo B
listi og D listi meirihluta í bæjar-
stjórn Suðurnesjabæjar. Meiri-
hlutinn hefur mótað stefnu með
málefnasamningi næstu fjögur árin
þar sem leiðarstefið er að efla sam-
félag í sókn, byggja upp innviði og
tryggja lóðarframboð í Suðurnes-
jabæ. Ásamt því að stuðla að góðum
rekstri sveitarfélagsins og tryggja
fjárhagslegt sjálfstæði Suðurnesja-
bæjar. Þjóðin er að koma mun betur
út úr efnahagsáfallinu sem tengt
er heimsfaraldri Covid19 en gert
var ráð fyrir, það eru þó krefjandi
tímar þessa stundina þar sem verð-
bólga er um 10% og stýrivextir hafa
ekki verið hærri í 12 ár. Einnig má
nefna óvissuna tengda kjarasamn-
ingum. Við munum þó ávallt horfa
bjartsýn á framtíðina, með það á
leiðarljósi að við horfum á það sem
samfélagslegt verkefni saman að
kveða niður verðbólgu og horfum
björt fram á veginn.
Það er friðsælt og fallegt á Íslandi
og fátt fallegra en desemberkvöld í
froststillum eins og hafa verið á und-
anförnu, að horfa á stjörnubjartan
himinn og sjá jafnvel norðurljósin
skína.
Kæru íbúar, nú gengur í garð tími
kærleikar og vináttu. Njótum hans
saman, við óskum ykkur öllum gleði-
legra jóla, árs og friðar.
Anton Guðmundsson
og Úrsúla María Guðjónsdóttir,
bæjarfulltrúar Framsóknar
í Suðurnesjabæ.
Jólakveðja frá bæjarfulltrúum
Framsóknar í Suðurnesjabæ
Undanfarin tvö ár hefur nem-
endum Háaleitisskóla á Ásbrú
fjölgað úr 292 í 400. Friðþjófur
Helgi Karlsson, skólastjóri Háa-
leitisskóla, kynnti fyrirkomulag á
móttöku barna með fjölbreyttan
menningar- og tungumálabak-
grunn í skólanum fyrir fræðsluráði
Reykjanesbæjar á dögunum.
Friðþjófur nefndi að farið væri
að þrengja að skólastarfinu vegna
mikillar fjölgunar nemenda. Vísaði
hann þar til beiðni sveitarfélagsins
um stuðning frá mennta- og barna-
málaráðuneytinu til uppbyggingar
sérhæfðrar kennsluaðstöðu fyrir
Nýheima.
Friðþjófi er þakkað fyrir áhuga-
verða kynningu á því hvernig tekist
er á við krefjandi aðstæður í Háa-
leitisskóla þar sem fjölgun nemenda
hefur verið mikil. Nýheimar voru
settir á laggirnar sem sérstakt mót-
tökuúrræði haustið 2021 að frum-
kvæði skólans og með traustum
stuðningi fræðsluskrifstofu.
Fræðsluráð styður það sem fram
kom á fundi barnaverndarnefndar
Reykjanesbæjar þann 28. okt. sl. að
stofnaður verði starfshópur sem
hefur það að markmiði að styðja
betur við börn og foreldra sem tala
ekki íslensku sem móðurmál og geta
ekki tjáð sig í skóla og samfélaginu.
Þrengir að skóla-
starfi í Háaleitis-
skóla vegna fjölg-
unar nemenda
Kvenfélagið Gefn í Garði heldur
sína árlegu jólatrésskemmtun 30.
desember, frá klukkan 15:00 til 17:00
í Miðgarði Gerðaskóla í Garði. Að
venju verður boðið upp á fjöruga tón-
list, söng og gleði og veitingar að hætti
kvenfélagskvenna. Þá er von á jóla-
sveinum í heimsókn með glaðning í poka fyrir yngstu börnin.
Aðgangur er ókeypis og vilja kvenfélagskonur hvetja Garðbúa og gesti
þeirra til að mæta í jólaskapi með börnunum og hafa gaman saman.
Kvenfélagið Gefn í Garði
heldur jólaball 30. desember
AUGLÝSINGASÍMI
VÍKURFRÉTTA ER 421 0001
76 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum