Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 54
Petra Ruth Rúnarsdóttir, formaður Þróttar í
Vogum, hefur þann skemmtilega jólasið að ganga
með fjölskyldu sinni og vinum niður Laugaveg
á Þorláksmessu og dansa í kringum jólatréð á
Austurvelli.
Hvernig var árið 2022 hjá þér og
þinni fjölskyldu og hvað stendur
upp úr?
Árið 2022 var bara mjög gott,
áttum margar góðar stundir saman
á árinu en það sem stendur upp
úr eru ferðalög um landið og utan-
landsferð til Krítar í september.
Ert þú mikið jólabarn?
Já, ég myndi segja það.
Hvenær er jólatréð yfirleitt sett
upp á þínu heimili?
Það var alltaf sett upp á Þorláks-
messu þegar ég var yngri en það
hefur farið upp nokkrum dögum
fyrr eftir að ég fór að búa sjálf
– en mér finnst alltaf eitthvað
svo huggulegt að setja það upp á
Þorláksmessu þannig, hver veit?
Kannski fer það upp þá í ár.
Hver eru fyrstu jólin sem þú
manst eftir – áttu einhverjar
skemmtilegar jólaminningar?
Skemmtileg jólaminning þegar ég
og systir mín sátum fyrir framan
jólatréð og sungum jólalög á meðan
við biðum eftir að mamma og pabbi
voru búin að ganga frá í eldhúsinu
og við gætum opnað pakkana.
En skemmtilegar jólahefðir?
Fjölskyldan mín og vinafólk okkar
hittist alltaf á Þorláksmessu, við
borðum saman kvöldmat niður í
miðbæ og löbbum Laugaveginn.
Stoppum alltaf við jólatréð á
Austurvelli, dönsum kringum tréð
og syngjum lagið Göngum við í
kringum. Erum alltaf um tuttugu
saman og náum við því allan
hringinn í kringum tréð. Fullt af
fólki stoppar oft og fylgist með og
stundum taka aðrir þátt en við
tökum alltaf bara þetta eina lag og
höfum gert í tuttugu og eitthvað ár.
Hvenær klárar þú að kaupa jóla-
gjafirnar?
Það er mjög misjafnt. Reyni að vera
snemma í þessu eða að minnsta
kosti vera búin að ákveða hvað
ég ætla gefa öllum. Er kannski að
kaupa seinustu gjafirnar í kringum
15. desember í seinasta lagi.
Hvað finnst þér vera ómissandi á
jólunum?
Jólabrunch hjá mömmu og pabba á
jóladag.
Hver er eftirminnilegasta jóla-
gjöfin sem þú hefur fengið?
Hmm, hef alltaf fengið mjög fallegar
og góðar gjafir en ætli það sé ekki
þegar ég fékk fyrsta símann minn.
Er eitthvað á óskalistanum fyrir
jólin í ár?
Svolítið síðan snjallúrið mitt dó og
mig hefur langað í nýtt í síðan en
ekki látið verða að því að kaupa
mér þannig. Ég er búin að óska eftir
nýju úri.
Hvað verður í jólamatinn hjá þér
á aðfangadagskvöld? Eru hefðir
í mat?
Við verðum hjá tengdaforeldrum
mínum þessi jól en ég er ekki viss
hvað þau ætla hafa. Hefðin sem
ég er alin upp við er hamborgar-
hryggur í aðalrétt með ýmsu góðu
meðlæti og rósakálssúpa í forrétt
en þessi súpa var alltaf hjá lang-
ömmu og hefur haldist þannig
síðan.
Hvað ætlar þú að gera í kringum
jólahátíðina í ár?
Ég ætla reyna slaka á og njóta með
fjölskyldunni minni. Búið að vera
mikið álag seinustu mánuði og
það verður gott að komast í smá
frí – komast í gönguferðir og lesa
kannski skemmtilega bók.
Jólabrunch hjá mömmu
og pabba er ómissandi
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Petra Ruth (l.t.h.) með systkinum sínum.
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
www.southair.is
54 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum