Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 62
Óskum Suðurnesjamönnum
og öðrum landsmönnum
gleðilegrar jólahátíðar með ósk
um gæfuríkt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á liðnum árum.
Adam Sigurðsson man sérstaklega eftir jólunum 2002 en þá fékk hann pakka sem var stærri en hann á þeim
tíma og honum fannst það mjög spennandi. Í ár ætlar hann að hafa það notalegt með fjölskyldunni og fara í
fjölskylduboð yfir jólahátíðina.
Hvernig var árið 2022 hjá þér og þinni
fjölskyldu og hvað stendur upp úr?
Árið hjá mér var bara virkilega skemmti-
legt. Ég eignaðist son seint á árinu 2021
og fór árið mestmegnis í það að kynnast
honum og verja tíma mínum með
honum árinu. Allt sumarið fór í fæðing-
arorlof sem var æðislegt og svo byrjaði
ég í nýrri vinnu í september ásamt því
að þjálfa fótbolta hjá Njarðvík.
Ert þú mikið jólabarn?
Já, ég er það eiginlega að öllu leyti bara.
Fannst fátt jafn skemmtilegt og jólin
þegar ég var yngri og er ekkert minna
jólabarn í dag.
Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á
þínu heimili?
Það er svolítið mismunandi en fer yfir-
leitt upp á öðrum eða þriðja sunnudegi
í aðventu.
Hver eru fyrstu jólin sem þú manst
eftir - áttu einhverjar skemmtilegar
jólaminningar?
Fyrstu jólin sem ég man eftir voru að
mig minnir jólin 2002. Fékk þá pakka
sem ég man reyndar ekkert hvað var en
hann var stærri en ég á þeim tíma sem
mér fannst alveg hrikalega spennandi.
En skemmtilegar jólahefðir?
Möndlugrautur á aðfangadagsmorgun er
hefð sem hefur verið í minni fjölskyldu
frá því ég man eftir mér. Höfum gert það
að hefð að hafa eitthvað skemmtilegt
borðspil í verðlaun fyrir þann sem fær
möndluna.
Hvenær klárar þú að kaupa jólagjaf-
irnar?
Vanalega hef ég beðið fram að síðustu
stundu en í ár kláraði ég þetta áður en
desember gekk í garð, sem betur fer
kannski.
Hvað finnst þér vera ómissandi á jól-
unum?
Hamborgarhryggur, piknik franskar og
daim ís, jólin væru ekki þau sömu án
þessara þriggja hluta.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin
sem þú hefur fengið?
Fékk snjósleða með stýri þegar ég var
tólf ára minnir mig. Stendur enn upp úr.
Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin
í ár?
Aldrei þessu vant er listinn tómur hjá
mér. Ég yrði þakklátur fyrir bara hvað
sem er.
Hvað verður í jólamatinn hjá þér á að-
fangadagskvöld? Eru hefðir í mat?
Það verður hamborgarhryggur auðvitað,
svo er spurning hvað verður annað
með honum. Við höfum haft tvíréttað
undanfarin ár og þá hefur það verið
folaldakjöt, Wellington-lund eða lamb
með hryggnum.
Hvað ætlar þú að gera í kringum jóla-
hátíðina í ár?
Ég ætla að hafa það eins kósý og ég get
með litla stráknum mínum. Við kíkjum í
einhver fjölskylduboð ásamt því að hafa
það notalegt með nánustu fjölskyldu.
Er ekkert minna jólabarn í dag
Adam Sigurðsson
62 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum