Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 69

Víkurfréttir - 15.12.2022, Blaðsíða 69
Það styttist óðfluga í jólin og ennþá ber ekkert á snjónum sem við öll viljum hafa yfir hátíðirnar. Mun jólalegra að hafa hvít jól en rauð jól. Tíðin núna í desember er búin að vera óvenjulega góð og eins og sagt var frá í síðasta pistli þá hafa handfærabátarnir getað róið núna í desember og vekur það nokkra at- hygli. Þegar þessi pistill er skrifaður er þónokkur fjöldi af færabátum við veiðar í Röstinni. Einn af þeim bátum sem þarna eru við veiðar er Guðrún GK sem Sævar Baldvinsson er skipstjóri á. Sævar er búinn að eiga feikilega gott ár á færunum, það gott að núna er hann næstaflahæsti handfæra- bátur landsins – og er ekki nema um sextán tonnum á eftir báti sem er gerður út frá Hornafirði. Sá bátur heitir Sævar SF. Guðrún GK er búin að róa nokkuð duglega núna í desember á meðan að Sævar SF er ekki eins mikið búinn að róa og því verður fróðlegt að sjá hvort Sævar nái Sævari SF. Annars eru svo til flestir bátanna komnir suður. Einhamarsbátarnir Gísli Súrsson GK og Vésteinn GK eru komnir suður – og Hulda GK. Eftir eru þá Geirfugl GK, Óli á Stað GK og Gulltoppur GK en þeir eru allir fyrir norðan. Veiði línubátanna er búin að vera mjög góð, t.d. er Dúddi Gísla GK með 33 tonn í sex róðrum, Sævík GK 50,2 tonn í sjö, landað í Sand- gerði og Grindavík, Margrét GK 50 tonn í átta í Sandgerði, Daðey GK 46 tonn í sex í Grindavík og Sand- gerði, Hulda GK fimmtán tonn í fjórum, Hópsnes GK 22 tonn í fimm, Geirfugl GK 17 tonn í fjórum á Siglufirði, Katrín GK 14,3 tonn í þremur í Sandgerði og Gulltoppur GK tólf tonn í þremur á Skaga- strönd. Núna er Erling KE hættur á netaveiðum og núverandi Erling KE hefur lokið hlutverki sínu fyrir Saltver ehf. – og í raun hérna á landinu því líklega fer hann í brota- járn. Á meðan verður nýi Erling KE gerður klár til veiða en hann mun hefja veiðar eftir áramótin og sam- kvæmt því sem ég hef heyrt þá líst mönnum mjög vel á nýja bátinn. Nýi Erling KE er reyndar um sex metrum styttri en núverandi Er- ling KE en á móti kemur að hann er þremur metrum breiðari og dekkið er á tveimur hæðum. Sömuleiðis þá eru íbúðir og matsalur mjög rúm- góðar og stórar. Grímsnes GK er ennþá að eltast við ufsann og kom með 12,2 tonn til Þorlákshafnar í einni löndun. Maron GK með 16,7 tonn í þremur og Halldór Afi GK 12,1 tonn í þremur og mest 9,1 tonn sem er nú svo til fullfermi hjá bátnum. Maron GK og Halldór Afi GK hafa að mestu verið með netin sín við Garðskagavita og þar hefur neta- báturinn Kap VE verið líka við veiðar en hann veiðir í sig og siglir svo til Vestmannaeyja með aflann. Kom þangað með 60 tonn í einni löndun. Kap VE hefur reyndar siglt inn til Keflavíkur og legið og lesendur hafa örugglega tekið eftir Kap VE þar. Eitt sem vekur athygli núna undir lok ársins, og það er kannski ekki það skemmtilegasta að horfa á, en svo til allar einstaklingsútgerðir eru að hverfa. Núna er aðeins einn línubátur að róa frá Suðurnesjum sem ekki tengist stóru útgerðinum. Er það Dúddi Gísla GK sem er í eigu fjölskyldufyrirtækis í Grindavík. Það eru jú bátar á færum en enginn á línu sem mætti kalla ein- staklings- eða fjölskylduútgerðir, þetta er mikil breyting frá því sem var eitt sinn. Þetta er síðasti pistill fyrir jólin og vil ég því óska lesendum gleði- legra jóla og farsæls komandi nýs árs. aFlaFrÉttir á suÐurNesJum Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Einstaklings- útgerðir að hverfa VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum // 69 Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða! Flísa- og múrþjónusta Gunnars Gröfuþjónusta P. Gíslasonar 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.