Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2022, Síða 24

Víkurfréttir - 15.12.2022, Síða 24
Hvernig og hvenær lá leið Suður- nesjakonunnar í Flensborgar- skólann? Ég hóf störf við Flensborgarskólann árið 2016. Þá hafði ég verið kennari við hinn dásamlega Myllubakka- skóla í tíu ár og langaði að breyta til og stíga aðeins út fyrir þægindaram- mann. Flensborg auglýsti eftir félags- greinakennara og þar sem ég er með BA próf í stjórnmálafræði fannst mér það spennandi og ákvað að sækja um. Ég hef kennt m.a. félagsfræði, stjórnmálafræði, fjölmiðlafræði og vísindaleg vinnubrögð ásamt því að hafa umsjón með nýnemum í áfanga sem við köllum Hámark. Ég tók að mér fagstjórn í félagsvísindum eftir nokkur ár í starfi og endaði svo á því að leysa af sem aðstoðarskóla- meistari frá því í ágúst 2020. Af- leysingin átti að vara í 6 mánuði en dróst á langinn en það var svo í lok nóvember sem ég fékk formlega ráðningu eftir nokkurra vikna um- sóknarferli. Hver eru helstu verkefni aðstoðar- skólameistara Flensborgarskólans? Verkefnin eru ansi mörg og fjöl- breytt. Það er í mörg horn að líta í framhaldsskólunum og mikið um að vera flesta daga. Ég vinn í miklu samstarfi við skólameistara alla daga og er staðgengill hans. Verkefnin eru fjölmörg allt frá því að sinna nem- endamálum og því sem upp kemur í daglegum störfum yfir í að sinna innra mati, mætingarmálum, starfs- mannamálum, áætlana- og skýrslu- gerð, teymisstörfum og allt þar á milli. Svo fæ ég líka aðeins að kenna en ég held utan um útskriftarefnin á síðustu önninni sinni og styð við þau á lokasprettinum í námi. Það er alltaf skemmtilegasti hlutinn við starfið, að styðja við og efla nemendur í því sem þau eru að fást við. Skólinn á sér langa sögu, hverjar eru helstu áherslur í dag? Já, skólinn á ansi langa sögu sem skólastofnun og er með elstu starf- andi skólum á Íslandi þó skólastarfið hafi breyst í gegnum tíðina. Hann var upphaflega stofnaður sem barnaskóli árið 1877 en var breytt í „alþýðu- og gagnfræðaskóla“ fimm árum síðar, árið 1882, og aldur skólans er mið- aður við það. Við fögnuðum 140 ára afmæli skólans núna í haust en hann hefur verið fjölbrautaskóli síðan árið 1975. Skólinn er áfanga- skóli en nýnemar eru hins vegar í bekkjarkerfi á fyrsta námsárinu sínu áður en þeir fara út í áfangakerfið. Bekkjarkerfið er skólaþróunarverk- efni sem snýr að því að halda enn betur utan um nýnemana, gæta að vellíðan þeirra, efla námsmenn- ingu og auka skuldbindingu þeirra í námi. Við tókum fyrstu skrefin í þessu verkefni á meðan heimsfar- aldur gekk yfir og við vildum eiga möguleika á því að kenna nýnemum í húsi ef aftur kæmi til fjöldatak- marka. Verkefnið hefur svo þróast og er núna tilraunaverkefni hjá okkur og þykir spennandi nálgun. Við bjóðum upp á stúdentspróf á hefðbundnum bóknámsbrautum auk þess sem nemendur geta valið sér- svið. Íþróttaafrekssviðið er vinsælt en um 200 nemendur hjá okkur eru íþróttaafreksmenn og margir hverjir sterkir í sinni grein hvort sem það er sund, fótbolti, handbolti eða aðrar greinar. Við erum líka forystuskóli um heilsueflandi framhaldsskóla og í íþróttabænum Hafnarfirði svo það er kannski ekki skrýtið að íþróttaaf- rekssviðið sé vinsælt. Hvað með Keflvíkinginn Júlíu og fjölskyldu hennar, býr hún ekki enn í heimabænum og gerir og græjar eitthvað suður með sjó? Jú, svo sannarlega er ég enn í Keflavík og líklega þyrfti mikið til að ná mér þaðan. Það er svo gott að vera heima og er viðurkenni það að þegar ég renni inn í bæinn í lok vinnudags kemur stundum pínu hlýja í hjartað yfir því að vera komin aftur í bæinn minn. Mér finnst svo gott að vera í Keflavík þó ég gæti nú eflaust þrifist annarsstaðar líka. Hér er fólkið mitt auðvitað, foreldrar mínir, hluti tengdafjölskyldunnar og dásamlegu vinkonur mínar. Við höfum stöku sinnum rætt flutning, ég og Helgi maðurinn minn. Hann vinnur í Grindavík svo við erum bæði í keyrslu sem er kannski ekki endilega ákjósanlegt. Allar hug- myndir um flutning hafa þó fallið um sjálfa sig. Við keyptum fyrr á árinu hús foreldra minna sem við erum svo ánægð með svo líklega yrði erfitt að fara þaðan. Krakkarnir eru í skólum í Keflavík, FS og Heiðarskóla, og bæði á fullu í fótboltanum svo allir eru sáttir í sínu.“ Farin að kunna vel við Hafnfirðinga Keflvíkingurinn Júlía Jörgensen er aðstoðarskólameistari Flensborgarskólans í Hafnarfirði „Ég er mjög ánægð með að hafa fengið formlega ráðningu, þetta er skemmtilegt starf og góður vinnustaður og ég er meira að segja farin að kunna vel við þessa Hafnfirðinga. Það er verst hvað þeir eru allir hand- boltasjúkir, þar er ég alls ekki á heimavelli,“ segir Keflvíking- urinn Júlía Jörgensen en hún var nýlega ráðinn aðstoðar skóla- meistari Flensborgarskólans í Hafnarfirði. ..ég viðurkenni að þegar ég renni inn í bæinn í lok vinnudags kemur stundum pínu hlýja í hjartað yfir því að vera komin aftur í bæinn minn. Mér finnst svo gott að vera í Keflavík.. Páll Ketilsson pket@vf.is Júlía við útskrift í Flensborgarskólanum. Sendum öllum Suðurnesjamönnum bestu jóla - og nýárskveðjur, þökkum fyrir viðskiptin á árinu Fjölskyldan saman komin, Júlía, Helgi og börnin Ottó og Þórunn Elfa. 24 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.