Rökkur - 01.12.1932, Blaðsíða 44
122
R O K K U R
verða afleiðingin af þessari
stefnu. Stefnuskráin ætti að
vera þessi: Framleiðið sem mest
og á sem stystum tíma, en stytt-
ið vinnutíma hvers verkamanns,
án þess að fækka verkamönn-
unum. — Með öðrum orðum:
Menn mega ekki láta vinnuvís-
indin og vclavísindin leiða til
hörmunga fyrir þjóðirnar. Þess
vegna ber að hefja alþjóðasam-
vinnu um stytting vinnutímans
og hækkun vinnulauna. — Fyr-
ir þessu er í raun og veru for
dæmi: Genfar-sáttmálinn um
átta stunda vinnudag. — Hvers
vegna ætti ekki alveg eins að
vera hægt að koma á 36 eða
32 vinnustunda viku og hækka
verkalaunin? Eg get ekki séð
neitt því til fyrirstöðu, að allar
þjóðir gerðu með sér samkomu-
lag um þetta.“
Húsabyggingar í Lundúnum.
Á seinni árum hefir iðulega
verið um það rætt i breskum
blöðum, að útlit Lundúnahorg-
ar væri mjög að breytast, hún
væri að fá á sig annan svip
smátt og smátt. Þetta er ekki
kynlegt, þvi að stöðugt er verið,
að rífa gamlar byggingar og
reisa aðrar nýjar i staðinn,
byggingar, sem í ýmsu eru mjög
frábrugðnar gömlu byggingun-
um ekki síst að því levli, að þær
eru yfirleitt hærri. Til dæmis
að taka hafa verið reist svo
mörg ný hús við Regent Street,
að útlit götunnar er gerbreytt
frá því er var fyrir fáum árum.
Mestum breytingum er Lund-
únaborg uiuiirorpin i þeim
hluta borgarinnar, sem stór-
verslanir eru flestar. Mörg ný
og' stór verslunarhús bafa verið
reist í miðhluta borgarinnar.
Seinasta stórhýsið er Unilever
House, hin nýja bækistöð Lever
Brothers, sem gnæfir á annað
hundrað fet yfir Thamesfljót
við Blackfriars Bridge. Er hús
þetta eitthvert mesta og feg-
ursta verslunarhús í Lundúna-
horg. Gólfflötur þess er 27,000
ferh.fet ensk og nægilegt rými
er þar fyrir 4000 manns.
Þangað til fyrir skömmu síð-
an leyfðu yfirvöld Lundúna-
borgar eig'i, að bygð væri hærri
hús en 80 fet, nema undanþág'-
ur væri veittar, en til þess kom
mjög sjaldan. Nú hefir London
County Council fyrir skömmu
levft að reisa alt að því 100 feta
há liús, og hærri hús má reisa,
ef undanþága fæst, en það mun
verða gerl, ef sérstökum skil-
yrðum verður fullnægt. Hins-
vegar er búist við, að þess muni
eig'i langt að bíða, að ieyft verði
að reisa hús í Lundúnaborg, er
séu 150—200 feta liá. Þó mun
alls eig'i vaka fyrir breskum